Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Fjarskiptatruflanir, dagbækur Sveins og Rauði krossinn tilnefndur
    Í gær bárust fréttir af því að ekkert símasamband væri sumstaðar í Eddu, húsi íslenskunnar. Ástæðan er sögð koparklæðning utan á húsinu sem hindrar að fjarskiptamerki berist inn í húsið. Við ætlum að forvitnast um þetta, hvað veldur og hvað annað getur valdið því að fjarskipti truflist. Þorleifur Jónasson fjarskiptatæknifræðingur og sviðsstjóri hjá Fjarskiptastofu sest hjá okkur eftir smástund.
    Við kynnum okkur dagbækur Sveins Þórarinssonar, amtskrifara á Akureyri. Hann hélt dagbók frá því hann var unglingur fram á dánardag árið 1869 og þykja bækurnar einstakur aldarspegill. Rithöfundurinn Jón Sveinsson, Nonni, var sonur Sveins. Una Haraldsdóttir, sagnfræðinemi, hefur rannsakað dagbækur Sveins í sumar og unnið að því að koma þeim yfir á stafrænt form.
    Rauði krossinn á Íslandi er tilnefndur til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs. Í ár beinir dómnefndin sjónum sínum að þeim miklu áskorunum sem fólgnar eru í framleiðslu og notkun á textíl. Árið 2021 söfnuðust tæplega 2300 tonn af textílefnum í gegnum fatasöfnunarkerfi Rauða krossins og þetta viðamikla verkefni er semsagt eitt af sjö verkefnum á Norðurlöndunum sem er tilnefnt. Guðbjörg Rut Pálmadóttir hjá Rauða krossinum segir okkur frá þessu á eftir.
    55 min
  • Gagnýrni á heimildakaup, hollvinir SAK og gamlar dómabækur
    Samfélagið heldur áfram að fjalla um valkvæðan markað með kolefniseiningar. Guðmundur Sigbergsson, framkvæmdastjóri Loftslagsskrár Íslands, hefur verið leiðandi á þessum markaði hér. Á sama tíma og hann hefur trú á sölu kolefniseininga er hann gagnrýninn á þá ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfisráðherra, að kaupa losunarheimildir af Slóvakíu til að gera upp síðara skuldbindingatímabil Kyoto-bókunarinnar.
    Við kynnum okkur starfsemi Hollvinasamtaka Sjúkrahússins á Akureyri sem nýlega áttu tíu ára afmæli og gáfu spítalanum, sem á bráðum 150 ára afmæli, nýja hryggsjá. Jóhannes G. Bjarnason, íþróttakennari og fyrrum bæjarfulltrúi Framsóknar er formaður stjórnar samtakanna.
    Ólafur Valdimar Ómarsson, skjalavörður á Þjóðskjalasafninu, hefur rýnt í gamlar dómabækur og hefur fundið ýmislegt mjög áhugavert.
    55 min
  • Afmæli blóðbankans, losunarbókhald og langreyðar
    Blóðbanki snýst um miklu meira en að taka fólki blóð. Blóðbanki Landspítalans á sjötíu ára afmæli og því er fagnað þessa dagana, meðal annars með ráðstefnuröð þar sem meðal annars er fjallað um vefjaverkfræði og stofnfrumur. Við ræðum við Ólaf E. Sigurjónsson en hann stýrir rannsóknum og nýsköpun hjá Blóðbankanum.
    Bráðabirgðatölur Umhverfisstofnunar um losun Íslands benda til þess að losunin hafi staðið í stað árið 2022, allt útlit er hins vegar fyrir að hún aukist í ár og heljarinnar átak framundan ætli stjórnvöld að standa við loftslagsloforð. Rafn Helgason, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun ræðir við okkur um þetta.
    Málfarsmínúta.
    Dýraspjall. Edda Elísabet Magnúsdóttir, hvalafræðingur, fræðir okkur um langreyðar - að gefnu tilefni.
    55 min
  • Græni lykillinn, Úkraínuverkefnið og matsveppir
    Íslandshótel reka 17 hótel víða um land. Þar af 7 í höfuðborginni. Nýlega var sagt frá því að hótelin sjö í Reykjavík væru komin með umhverfisvottun, auk 6 hótela á landsbyggðinni. Vottunin er kölluð Green Key og er alþjóðlega viðurkennt vottunarkerfi í ferðaþjónustu. Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela segir okkur hvað felst í þessu.
    Við kynnum okkur Úkraínuverkefni Háskóla Íslands en fjöldi fólks kemur að því að fjalla um Úkraínu frá ýmsum hliðum og halda ýmsa viðburði. Ræðum við Val Gunnarsson og Helgu Brekkan.
    Nú er runninn upp tími matsveppa og rétti tíminn til að fylla körfurnar og safna forða til vetrarins. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, sveppafræðingur, gefur góð ráð um sveppatínslu fyrir byrjendur.
    55 min
  • Veggjalýs, skynmat og músarannsóknir
    Veggjalús á sér langa og stormasama sögu á Íslandi Karl Skírnisson, doktor og sníkjudýrasérfræðingur skrifaði ritrýnda grein í nýjasta tölublað Náttúrufræðingsins þar sem saga þessa kvikindis er rakin.
    Á Matís er starfrækt sérstök skynmatsdeild þar sem þjálfaðir starfsmenn smakka á hinu og þessu og meta bragð, lykt og áferð. Við ræðum við Aðalheiði Ólafsdóttur, skynmatsstjóra Matís um hvernig þessari aðferð er beitt og til hvers.
    Vísindaspjall: Edda Olgudóttir segir frá rannsóknum á ólíkum áhrifum streitu á kvenmýs og karlmýs.
    55 min
  • Skaftárhlaup, sýndarveruleiki og Páll Líndal
    Nú er hafið Skaftárhlaup. Aukið rennsli mælist í ánni og aukin leiðni auk þess sem brennisteinslykt hefur fundist. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni má búast við hefðbundnu hlaupi - sem vonandi gefur fyrirheit um að engin vá sé fyrir dyrum. Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi vegna hlaupsins. Við ætlum að fræðast um Skaftárhlaup á eftir þegar Þorsteinn Þorsteinsson sérfræðingur á sviði jöklarannsókna hjá Veðurstofunni sest hjá okkur.
    Ímyndaðu þér að geta verið hvað sem þú vilt, flakkað í tíma og rúmi og talað við hvern sem er. Bergur Kári Björnsson er tvítugur og hefur frá fermingu verið hluti af sýndarveruleikaheimi í gegnum tölvuleikinn VR Chat, kynnst fólki frá öllum heimshornum og hannað sýna eigin hliðarheima. Hann segir okkur frá reynslunni af lífinu og samskiptum í sýndarveruleikanum.
    Svo fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi sem snýr aftur eftir sumarleyfi.
    55 min
  • Fréttir af dómsmálum, COP, málfar, ruslarabb og Ævar á Akranesi
    Við ætlum að forvitnast um Loftslagsþing Sameinuðu þjóðanna, sem er oftast kallað COP og svo fylgir tala. Í fyrra var COP 27 og í haust fer COP 28 fram. Halldór Þorgeirsson formaður Loftslagráðs kemur til okkar og segir okkur allt um COP.
    Við ætlum að skoða hvert frelsi fjölmiðla er til fréttaflutnings við meðferð sakamála, eftir fréttabann sem héraðsdómur skellti á við aðalmeðferð stóra kókaínsmálsins í byrjun þessa árs. Sigrún Ingibjörg Gísladóttir lögmaður kemur til okkar og veltir upp öllum hliðum þessa máls.
    Við fáum góða heimsókn úr safni RÚV. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri kemur hingað með skemmtilega upptöku. Að þessu sinni rifjar hún upp heimsókn Ævars Kjartanssonar á Akranes árið 1986.
    Við heyrum málfarsmínútu og svo dustum við rykið af ruslarabbinu í umsjón Þórhildar okkar Ólafsdóttur.
    1 hr
  • Stýrivextir, rafskútuslys og geitungar
    Stýrivextir voru í vikunni hækkaðir í fjórtánda skipti í röð og fólk er farið að finna fyrir háu vaxtastigi og verðbólgu. Við ræðum við Kristínu Eir Helgadóttur ráðgjafa hjá Hagsmunasamtökum heimilanna, sem í ár hefur aðstoðað áttatíu manns í skuldavanda og horfir sjálf á afborganirnar af húsnæðisláninu hækka og hækka.
    Frásögn konu á Akureyri sem lenti í slysi á rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis hefur vakið nokkra athygli. Konan sagði frá slysinu á Facebook og þar kom fram að hún reyndist höfuðkúpubrotin, kinnbeinsbrotin og kjálkabrotin eftir skoðun á sjúkrahúsi. Hún sagðist skammast sín fyrir að hafa tekið þessa ákvörðun og vonast til að enginn þurfi að lenda í því sama. En er eitthvað hægt að gera til að koma í veg fyrir að fólk geti leigt sér slík hjól undir áhrifum? Eða takmarka virkni hjólanna þannig að minni líkur séu á alvarlegum slysum? Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Hopp ætlar að ræða það við okkur á eftir.
    Svo fáum við dýraspjall í lok þáttar. Á þessum árstíma verða geitungar oft ágengari en hvers vegna? Og hafa þeir einhvern tilgang í vistkerfinu? Ragnhildur Guðmundsdóttir, líffræðingur og sérfræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands ræðir við okkur um þá.
    55 min
  • Tilfinningar tengdar skólabyrjun og vistun ungs fólks á elliheimilum
    Skólabyrjun og tilfinningar sem henni tengjast. Samfélagið fór í heimsókn í Lindaskóla í Kópavogi og ræddi við Nönnu Hlín Skúladóttur kennara og Ásu Margréti Sigurjónsdóttur skólasálfræðing.
    Það hefur lengi tíðkast að vista ungt fólk með fötlun á hjúkrunarheimilum og Atli Þór Kristinsson, sagnfræðinemi, er að skoða þessa tilhneigingu sem teygir sig aftur til þriðja áratugarins þegar fyrstu heimilin fyrir aldraða voru stofnuð.
    Stefán Gíslason flytur umhverfispistil um áhyggjur og andvaraleysi í loftslagsmálum.
    55 min
  • Þroskunarerfðafræði, íslenskunám, málfar og vísindaspjall
    Benedikt Hallgrímsson hefur nokkra titla, en einn þeirra er þroskunarerfðafræðingur. Benedikt var hér á landi í síðustu viku og talaði á málþingi um þróun, líffræðilega fjölbreytni og sjúkdóma. Við heyrum í honum og Arnari Pálssyni einum skipuleggjenda málþingsins.
    Matseðlar á ensku, starfsfólk sem talar ensku og áhyggjur af því að ferðaþjónustan grafi undan íslenskunni - þetta hefur verið töluvert í deiglunni í sumar. Flavio Spadavecchia er frá Ítalíu. Hann vann í ferðaþjónustu á Suðurlandi í nokkur ár og hefur upplifað hvernig það er að reyna að læra íslensku samhliða löngum vöktum.
    Málfarsmínútan verður á sínum stað í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur.
    Edda Olgudóttir kemur svo í lok þáttar í vísindaspjall.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners