Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Upplýsingaóreiða, andúð á hinsegin fólki og eldri loftslagsaktivistar
    Við ætlum að ræða við einn fyrirlesaranna, Jón Gunnar Ólafsson, nýdoktor í fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands, um fjölmiðlun, - nánar tiltekið um helstu rannsóknir á stöðunni í upplýsingaheiminum með tilliti til lýðræðisumræðu, samfélagsmiðla, upplýsingaóreiðu og gervigreindar.
    Í vikunni varð gestur á ráðstefnu um hinsegin málefni fyrir grófri líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Málið er rannsakað sem hugsanlegur hatursglæpur. Við ræðum við Álf Birki Bjarnason, formann samtakanna 78 um þetta atvik og aukna andúð á hinsegin fólki í samfélaginu og hvernig hún birtist.
    Ljúkum svo þættinum á því að bregða okkur á málstofu um eldra fólk og loftslagsmál á Norðurlöndunum, en þar eru staddir aðgerðasinnar úr hópi eldri borgara sem hafa tengslanet, tíma og þekkingu og vilja leggja unga fólkinu lið í baráttunni fyrir aðgerðum í loftslagsmálum.
    55 min
  • Vistkjöt, hermisetur, málfar og vísindaspjall
    Hvað er vistkjöt og hvernig tengist íslenskt líftæknifyrirtæki framleiðslu á slíku kjöti? Við komumst að því í þætti dagsins þegar Berglind Rán Ólafsdóttir forstýra ORF líftækni kemur til okkar. Vel þess virði að sperra eyrun og hlusta á það.
    Við heimsækjum svo færni- og hermisetur í Eirbergi, þar sem kennsla fer fram í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði. Við skoðum aðstöðuna hátt og lágt, fáum að taka púlsinn á sýndarsjúklingi og forvitnast um það sem er framundan. Og það er margt.
    Við fáum málfarsmínútu frá Önnu Sigríði Þráinsdóttur málfarsráðunauti og Edda Olgudóttir kemur til okkar í vísindaspjall.
    55 min
  • FHAM, vandamál umhverfismenntunar og pistill frá Páli Líndal
    Við kynnum okkur foreldramiðaða hugræna atferlismeðferð þar sem foreldrum barna með kvíðaröskun eru kenndar aðferðir til að hjálpa börnum sínum að ná tökum á kvíða. Heilsugæslan og Háskólinn í Reykjavík vinna nú að því að koma á fót slíkri þjónustu yfir netið, með stuðningi frá heilbrigðisráðuneytinu. Tölum við Brynjar Halldórsson dósent í sálfræði og Önnu Sigríði Íslind dósent í tölvunarfræði. Bæði frá Háskólanum í Reykjavík.
    Hver eru vandamál umhverfismenntunar og hvaða lausnir eru í boði? Unnur Björnsdóttir kafaði ofan í þetta í lokaverkefni sínu í listkennslufræði og byggði á landsfundi sem samtökin Ungir umhverfissinnar héldu og buðu öllum framhaldsskólanemum landsins á - út úr því komu ýmsir umræðupunktar og ljóst að unga fólkið vill vera haft meira með í ráðum.
    Við fáum svo pistil í lok þáttar frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi.
    55 min
  • Rjúpur, seðlaver, málfar og Laufskálinn
    Við tölum um rjúpuna í þætti dagsins. Staða rjúpnastofnsins hefur ekki verið góð undanfarin ár. Í sumar var viðkoma rjúpu mæld um allt land og ungar taldir. Niðurstaðan bendir til þess að ástand stofnsins sé síst að batna. Við ætlum að ræða þetta við Ólaf Karl Nielsen fuglafræðing hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.
    Frá árinu 2017 hafa bankarnir rekið sameiginlegt seðlaver á háleynilegum stað á höfuðborgarsvæðinu. Þar er höndlað með háar fjárhæðir, tekið við peningum, þeir taldir og svo sendir aftur út í hringrásina. Við fengum að skoða starfsemina og ræddum við Ragnhildi Geirsdóttur forstjóra reiknistofu bankanna, Eystein Jónsson sem er yfir seðlaveri og fleiri starfsmenn.
    Málfarsmínútan er á sínum stað og við fáum heimsókn úr safni RÚV. Það er Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri sem rifjar upp spennandi upptökur úr safninu.
    55 min
  • Mustang-klúbbur Íslands, ný sýn á skólastarf og vísindaspjall með Eddu
    Við förum á fund hjá Mustang-klúbbi Íslands, kynnumst fólki sem brennur fyrir bíla, sem brenna miklu eldsneyti og hafa hátt. Hvað er það við Mustanginn sem vekur svona mikla aðdáun?
    Getur verið að skólakerfið brjóti sum börn niður í stað þess að byggja þau upp? Íris Friðmey Sturludóttir kynnti á dögunum lokaverkefni sitt í meistaranámi í listkennslufræði við Listaháskóla Íslands. Hún var eitt þeirra barna sem fann sig ekki í grunnskólakerfinu og vill að börn hafi meira um það að segja hvað þau læra og hvenær.
    Edda Olgudóttir kemur í Vísindaspjall og ræðir um ónæmismeðferð gegn heilaæxlum.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners