Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Á rúntinn með sjúkraflutningamönnum, borholubruni, málfar
    Við kynnum okkur störf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, förum í heimsókn í björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð í Reykjavík, spjöllum við fólk og förum svo í óvissuferð í forgangsakstri.
    Málfarsmínúta - romhelg.
    Rifjum upp bruna sem varð í heitavatnsborholu í Mosfellsdal í byrjun árs, þar sem hús brann til kaldra kola. Heyrum endurflutt viðtal Guðmundar Pálssonar við Egil Maron Þorbergsson, sérfræðing hjá Veitum.
    55 min
  • Árið 2023 gert upp í vísindum
    Í dag verðum við með með hugann við ýmis vísindi; stofnfrumur, geimvísindi, gervigreind. Hvað gerðist í heimi vísindanna á þessu ári sem innan skamms líður í aldanna skaut?
    Við byrjum á að spjalla við Eddu Olgudóttur sem hefur haldið okkur við efnið í ár, komið hingað í Samfélagið í vikulegt vísindaspjall á miðvikudögum og alltaf með eitthvað spennandi í farteskinu. Edda fer yfir það sem henni fannst markverðast í heimi vísindanna á þessu ári, 2023.
    Svo koma þau Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands og Erna Magnúsdóttir, dósent í sameindalíffræði og fósturfræði við læknadeild Háskóla Íslands, og halda áfram að gera upp þetta vísindaár, ræða stórar uppgötvanir á sínum fræðasviðum, vísindaumhverfið á Íslandi og framtíðina.
    55 min
  • Grýla og jólafólin, möndlugrautur og jólablót
    Við ætlum að fjalla um heiðin jól. Jólablót Ásatrúarfélagsins fara fram víða um land í dag, við ræðum þessa hefð og heiðnina almennt við Ragnar Elías Ólafsson Þveræingagoða.
    Ævar Örn Jósepsson fjallar um Grýlu og hennar hyski, öll jólafólin sem eru víst hátt í tvö hundruð talsins þegar allt er talið. Grýla hefur fylgt Íslendingum um aldir og er sennilega alræmdasta mannæta Íslandssögunnar. Í dag er hún þó líklega þekktust sem móðir jólasveinanna þrettán sem nú tínast til byggða, einn af öðrum. Þeir eru þó aðeins lítið brot af öllum þeim aragrúa afkvæma sem Grýla hefur eignast á langri ævi og með mörgum tröllkörlum, enda sérlega frjósöm og fönguleg skessa. Dagrún Ósk Jónsdóttir segir frá Grýlu og jólafólaskaranum öllum. Jórunn Sigurðardóttir þylur nöfn fólanna og Atli Sigþórsson les brot úr Grýlukvæði Stefáns Ólafssonar frá Vallanesi.
    Við heyrum líka eina málfarsmínútu þar sem Anna Sigríður Þráinsdóttir fjallar um möndlugraut.
    55 min
  • Hjálpræðisherinn, neytendajól og umhverfispistill
    Neysla nær vissu hámarki fyrir jól, fólk þræðir búðir eða vefverslanir og eyðir peningum í gríð og erg, í allri ösinni er miklvægt að huga að réttindum sínum og það á svo sem ekkert síður við eftir jól, þegar það á að fara að skila eða nýta gjafabréf. Við ræðum neytendamál sem snúa að jólunum við Brynhildi Pétursdóttur hjá neytendasamtökunum.
    Nú þegar þrír dagar eru til jóla er í nógu að snúast hjá Hjálpræðishernum á Íslandi. Stór jólamáltíð á morgun, þúsund jólagjafir í innpökkun og sjálfboðaliðar að safna framlögum og selja Herópið. Hjördís Kristinsdóttir er svæðisforingi Hjálpræðishersins á Íslandi.
    Við fáum svo umhverfispistil frá Finni Ricart Andrasyni í lok þáttar.
    55 min
  • Prís, kirkjugarðar um jól, hugheilar kveðjur og mannsheilinn
    Alþýðusamband Íslands kannar reglulega verðlag á matvöru og birti fyrr í vikunni könnun á verði á jólamat. Samkvæmt henni hefur jólakarfan hækkað um 6 til 17% milli ára. Og í dag kynnti ASÍ nýtt app í farsíma, Prís, þar sem hægt er að skoða mismunandi verðlagningu vara á milli verslana með því að skanna strikamerki. Benjamín Julian, verkefnastjóri verðlagseftirlits hjá ASÍ segir okkur frá þessu.
    Við förum í stuttan göngutúr um Fossvogskirkjugarð, margir hafa það fyrir sið að huga að leiðum látinna ástvina fyrir jólin, setja jafnvel ljós og skreytingu, og smám saman byrja garðarnir að ljóma - eða í það minnsta nýrri hlutar þeirra. Við ræðum verkefnin í desember við Helenu Sif Þorgeirsdóttur, sviðsstjóra umhirðu hjá kirkjugörðum reykjavíkurprófastsdæma.
    Við heyrum jólalega málfarsmínútu og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vikulegt vísindaspjall. Hún ætlar að tala um mannsheilann.
    55 min
  • Eldgos, DNA varpar ljósi á útbreiðslu hafíss, umhverfispistill
    Eldgos hófst norður af Grindavík í gærkvöldi. Og það hófst með miklu meiri krafti en fyrri gos undanfarið á Reykjanesi. Mikið dró úr kraftinum þegar leið á nóttina og virknin afmarkast nú við 300 til 500 metra langa rein um miðbik upphaflegu gossprungunnar. Brennisteinslosun á tímaeiningu var sögð tífalt meiri en var í síðustu þremur gosum á Reykjanesi. Við ætlum að tala um gös, gufur og móðu við Þorstein Jóhannsson sérfræðing í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun og velta fyrir okkur hvort útlit sé fyrir loftmengun vegna gossins.
    En við tölum ekki bara um eldgos. Við fjöllum líka um DNA-rannsóknir á steingervðum svifþörungum. Sara Harðardóttir, doktor í þörungafræði hjá Hafrannsóknastofnun, ætlar að segja okkur frá rannsóknum sínum, en hún hefur rannsakað plöntu- og dýrasvif á norðurhveli jarðar í um áratug og rannsóknir hennar varpa meðal annars ljósi á áhrif loftslagsbreytinga sem koma hraðast fram á pólunum.
    Páll Líndal umhverfissálfræðingur flytur pistil - sinn síðasta fyrir jól.
    55 min
  • Próf og námsmat, verkefnið eitt barn - öll börn, upptaka frá 1957
    Próf hafa verið svolítið í umræðunni undanfarið; niðurstöður PISA-könnunar, mikilvægi samræmds námsmats og svo er prófatíð margra skóla nýlokið. Við fjöllum um próf og námsmat, eru próflausir skólar framtíðin eða eru próf nauðsynleg? Hvað er leiðsagnarmat? Við tökum púlsinn á fólki á Háskólatorgi og ræðum við Berglindi Gísladóttur, lektor á menntavísindasviði Háskóla Íslands.
    Benedikt Hallgrímsson, prófessor við háskólann í Calgary í Kanada, kynnti í síðustu viku rannsóknir sínar tengdar heilsu barna. Hann hefur búið þar ytra í um 40 ár og telst nú með fremstu vísindamönnum Kanada. Í fyrirlestrinum sagði hann frá verkefninu One child, every child eða Eitt barn, öll börn sem skoðar heilsu barna í víðu samhengi. Verkefnið fékk stóran, margra ára styrk frá kanadíska ríkinu, þann stærsta sem Calgary-háskóli hefur hlotið. Við ræðum við Benedikt um efni fyrirlestursins.
    Við bregðum okkur aftur til ársins 1957, hlustum á upptöku úr safni Ríkisútvarpsins um jólaskreytingar í kirkjugörðum.
    55 min
  • Mansal og tækni, heimsókn á bílaverkstæði, málfar og jólatré
    Mansal, hvernig birtist það? Hvernig nýta glæpamenn tæknina til að selja fólk mansali og hvað stendur helst í vegi fyrir því að yfirvöldum takist að uppræta þessi mál? Nú stendur yfir stór ráðstefna um þessi mál, að henni standa norræna ráðherranefndin, háskólinn í Reykjavík, mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og dómsmálaráðuneytið. Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjvík og Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur hjá lögreglunni á Suðurnesjum ræða þetta.
    VIð lítum inn á bílaverkstæðið við Ægisíðu, fáum tilfinningu fyrir stemningunni meðal starfsmanna þar og litumst um í þessu forvitnilega kringlótta húsi sem séð úr lofti líkist helst hjálmi.
    Málfarsmínúta.
    Jólatré og jólatrjáasala. Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, fræðir okkur um jólatré og sögu þeirra.
    55 min
  • Útflutningur á sorpi, jólamarkaður Virknimiðstöðvar, krossfiskar
    Sorpa hefur sent út fyrstu gámana með rusli til Svíþjóðar þar sem það verður nýtt til orkuframleiðslu. Þetta er rusl sem annars hefði farið í urðun er hluti af áætlunum Sorpu um að hætta nær allri urðun á Álfsnesi á næstunni og alveg árið 2030. Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta- og þróunarstjóri, Sorpu ætlar að segja okkur allt um þetta.
    Við bregðum okkur á jólamarkað Virknimiðstöðvar Reykjavíkur á Borgarbókasafninu í Spönginni, þar stendur Árni Elvar H. Guðjohnsen við afgreiðsluborð sem hann smíðaði sjálfur. Við ræðum við Árna og fleiri um markaðinn og starf Virknimiðstöðvarinnar.
    Við fáum svo glóðvolgar fréttir úr heimi vísindanna. Nýjar rannsóknir á krossfiskum hafa leitt í ljós stórmerkilegar og æsispennandi uppgötvanir á líffræði þeirra og þróun. Arnar Pálsson erfðafræðingur gerir grein fyrir þessum nýju uppgötvunum.
    55 min
  • Hringvangur, símað til suðurskautslandsins, málfar og vísindaspjall
    Í dag verður haldinn stofnfundur félagasamtakanna Hringvangs - en það er vettvangur fyrir samskipti um hringrásarhagkerfið í byggingariðnaði. Samtökin Grænni byggð og Húsnæðis og mannvirkjastofnun koma að þessum samtökum ásamt fleirum. Við ætlum að forvitnast um Hringvang á eftir þegar þær setjast hjá okkur Áróra Árnadóttir hjá Grænni byggð og Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.
    Við hringjum langlínustímtal. Ekki alla leið á Suðurpólinn en langleiðina. Friðrik Rafnsson leiðsögumaður og þýðandi hefur undanfarnar tvær vikur verið á siglingu við suðurskautslandið og er núna staddur um borð í skipi sem kennt er við franska vísindamanninn Jean-Baptiste Charcot. Friðrik hefur frætt farþega um Charcot og notið þess að ferðast um þessar framandi slóðir.
    Við heyrum eina málfarsmínútu í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur.
    Edda Olgudóttir kemur til okkar í vísindaspjall. Hún ætlar að fjalla um nýjar rannsóknir á heilsufari og vegan mataræði.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners