Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Keppt í púsluspili, heimsókn til rannsóknarnefndar samgönguslysa, pistill um umhverfisáhrif sætuefna
    Við tölum um púsluspil og púslmenningu. Svanhildur Eva Stefánsdóttir í Spilavinum er sérfræðingur í púsli og öllu sem viðkemur þeirri ágætu dægradvöl. Og það má segja að hún sé í rauninni keppnismanneskja þegar kemur að púsli - því Spilavinir ætla á sunnudaginn að efna til púsluspilakeppni í fyrsta sinn. Febrúar er nefnilega púslmánuður þar á bæ og meðal annars geta púslarar skipst á púslum eða losað sig við notuð púsluspil.
    Það sem af er ári hafa sjö látist í banaslysum í umferðinni. Það eru fleiri en létust allt árið 2019. Þetta er mikið áhyggjuefni. Öll þessi slys koma inn á borð Rannsóknarnefndar samgönguslysa og verða rannsökuð í þaula. Við ætlum að ræða umferðaröryggi, það sem þarf að bæta hér og störf rannsóknarnefndarinnar almennt við tvo starfsmenn hennar þá Helga Þorkel Kristjánsson, rannsóknarstjóra á umferðarsviði, og Björgvin Þór Guðnason, rannsakara á sama sviði.
    Pistill frá Stefáni Gíslasyni umhverfisstjórnunarfræðingi. Stefán ræðir um sætuefni sem safnast upp í lífríkinu og hafa meðal annars áhrif á vatnalífverur í ám í Serbíu.
    55 min
  • Málþing um grænmetisrækt, svikasímtöl sjaldan algengari, málfar og vísindaspjall
    Samtök grænkera á Íslandi boða í dag til málþings um hindranir og tækifæri í framleiðslu grænkerafæðis á Íslandi. Borghildur Gunnarsdóttir umhverfis- og auðlindafræðingur er aðalfyrirlesari á málþinginu en hún fjallaði í meistararannsókn sinni um stöðu nýliða í grænmetisrækt á Íslandi. Hún ætlar að ræða við okkur hér rétt á eftir um framtíð grænmetisræktar á Íslandi, hindranir í veginum og stöðuna í dag.
    Einhverjir hlustendur Samfélagsins hafa vafalítið lent í því undanfarið að fá símhringingar úr ókunnugum erlendum símanúmerum. Jafnvel oft. Og á öllum tímum sólarhringsins. Það er mikilvægt að svara ekki svona símtölum og hringja alls ekki til baka - þetta eru nefnilega svikasímtöl sem geta kostað skildinginn. Fjarskiptastofa hefur sent frá sér aðvörun vegna mikils fjölda slíkra símtala undanfarið og við ætlum að ræða þessi mál við Þorleif Jónasson sviðsstjóra hjá Fjarskiptastofu.
    Við fáum málfarsmínútu í tilefni öskudags, sem er í dag og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall um mislinga.
    55 min
  • Viðlagakassinn, Trukkaveitan, sprengidagsspeki og pistill umhverfissálfræðings
    Eru til 12 lítrar af vatni á hvern heimilismeðlim, þurrmatur, hleðslubanki, prímus. Hér á landi er lagt upp með að fólk geti bjargað sér í þrjá daga ef neyðarástand skapast og innviðir bresta, til dæmis vegna náttúruhamfara. Við ætlum að ræða viðlagakassann við Gylfa Þór Þorsteinsson, teymisstjóra hjá Rauða krossinum, ekki síst í ljósi yfirstandandi hamfara á Reykjanesskaganum.
    Trukkaveitan - hvað er nú það? Hrefna Hallgrímsdóttir forstöðumaður hitaveitu hjá Veitum ræðir þetta við okkur. 1800 tonn af heitu vatni á 10 tankbílum sem fóru um 140 ferðir með fulla tanka af 80 gráðu heitu vatni koma við sögu og úrræðagóðir veitustarfsmenn.
    Í dag er sprengidagur og eflaust margir hlustendur saddir og sælir eftir hádegismatinn. Við ætlum í tilefni dagsins að rifja upp viðtal frá árinu 2010 þar sem rætt var við Árna Björnsson, þjóðháttafræðing, um sprengidag, saltkjöt og baunir fyrir Síðdegisútvarpið á Rás 2.
    Við fáum svo pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi í lok þáttar.
    55 min
  • Brú yfir Fossvog, söguhópur Ský, málfar og heimsókn frá Safni RÚV
    Við kynnum okkur stöðuna á nýrri brú sem á að leggja yfir Fossvog innan fárra ára. Hönnunarsamkeppni fór fram árið 2021 og það stefnir í að útboð vegna landfyllinga fari fram innan skamms. Ásdís Kristinsdóttir, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu, og Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri Höfuðborgarsvæðisins hjá Vegagerðinni, fara yfir þessi mál með okkur.
    Nokkur vörubretti af skriftvélum, gataspjöldum og ýmsum gömlum vélbúnaði og hugbúnaði sem ekki telst lengur brúklegur hjá íslenskum fyrirtækjum eru nú varðveitt í rúmgóðum kössum. Það er alltaf að koma fram einhver ný tæki sem leysir aðra af hólmi og þessi tæki geyma merkilega sögu. Við ætlum að fjalla um gömul tæki og varðveislu þeirra en hjá Ský, áður skýrslutæknifélagi Íslands, er starfandi söguhópur. Tveir meðlimir hans, Þorsteinn Hallgrímsson og Guðmundur Hannesson, ræða sögu tölvubúnaðar við Samfélagið.
    Við heyrum svo málfarsmínútu og fáum bolludagsglaðning frá Safni RÚV.
    59 min
  • Heitavatnsleysi, algóriþminn sem elur okkur upp, tilraunaeldhús Matís og fræskiptamarkaður
    Dregið hefur verulega úr eldgosinu á Reykjanesskaga - en enn er heitavatnslaust og sums staðar kaldavatnslaust. Þorgils Jónsson, fréttamaður sem er búinn að vera á vaktinni á Suðurnesjum í dag verður á línunni hjá okkur.
    Börn verja mörg miklum tíma á netinu og þar er ýmislegt sem þarf að varast. Skúli Bragi Geirdal, fjölmiðlafræðingur og verkefnastjóri miðlalæsis hjá Fjölmiðlanefnd, hefur undanfarið haldið fyrirlestra með yfirskriftinni - Algóriþminn sem elur mig upp. Hvernig geta foreldrar sett börnum sínum mörk og verndað þau í síbreytilegum stafrænum veruleika - veruleika sem þeir þekkja kannski ekki almennilega sjálfir? Ráða fullorðnir sjálfir við tækin?
    Við heimsækjum Matarsmiðju Matís sem er suðupottur þegar kemur að nýsköpun á sviði matargerðar. Ræðumvið Óla Þór Hilmarsson, kjötiðnaðarmann og verkefnastjóra og hittum einn af þeim sem nýta smiðjuna, Jón Örvar Geirsson hjá fyrirtækinu Bone and marrow.
    Nú fer fram fræskiptamarkaður í Borgarbókasafninu í Sólheimum. Lísbet Perla Gestsdóttir, sérfræðingur á Sólheimasafninu, segir okkur frá honum.
    55 min
  • Íslenska með hreim, opinberar ráðleggingar um hreyfingu fyrir öll, málfar og vísindaspjall um sjónhimnuna
    Við ræðum um hreim og hvernig fólk sem talar íslensku að móðurmáli bregst við erlendum hreim, hvað það les í hann og hvaða ályktanir það dregur um fólk sem talar með hreim. Stefanie Bade er nýdoktor í íslenskri málfræði og rannsakaði viðhorf til hreims í doktorsrannsókn sinni.
    Í dag fór fram kynningarfundur um endurskoðaða útgáfu opinberra ráðlegginga um hreyfingu og takmörkun kyrrsetu. Helsta breytingin frá fyrri ráðleggingum er m.a. að nú eru ráðleggingar fyrir fatlað fólk sérstakur liður í útgáfunni. Við ætlum að ræða þessar ráðleggingar við Gígju Gunnarsdóttur, verkefnastjóra hjá embætti Landlæknis, og Valdimar Gunnarsson, sem stýrir verkefninu Allir með.
    Málfarsmínúta - þorrablót og að blóta.
    Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur - sjónhimnan og nýjar uppgötvanir tengdar henni.
    Tónlist:
    Hjálmar - Lof.
    ROY ORBISON - You Got It.
    1 hr
  • Kynfræðsla í grunnskólum, landvarðanámskeið og málfarsspjall með Önnu Sigríði
    Hvernig á að fá grunnskólakennara til að kenna kynfræðslu? Hvernig má styðja betur við þá og gera kennsluna markvissari? Þetta rannsakaði Íris Valsdóttir í meistaraverkefni sínu í kennslufræðum. Íris hefur sjálf kennt á miðstigi í grunnskóla og þekkir óöryggi þegar kemur að kynfræðslu og hvernig skuli bera sig að af eigin raun. Í rannsókninni tók hún viðtöl við sjö skólastarfsmenn; umsjónarkennara, náttúrufræðikennara, íþróttakennara og skólahjúkrunarfræðing og í þessum viðtölum kom fram að það skorti yfirsýn og samræmda nálgun, að það beri enginn einn ábyrgð á kynfræðslunni, hún sé oft af skornum skammti og kennarar einir á báti þegar kemur að því að útfæra hana.
    Nú stendur yfir reglulegt námskeið á vegum Umhverfisstofnunar fyrir landverði en þeir sinna fjölbreyttum verkefnum í þjóðgörðum og á öðrum náttúruverndarsvæðum um allt land. Kristín Ósk Jónasdóttir hefur umsjón með landvarðanámskeiðum Umhverfisstofnunar og ræðir þau við okkur.
    Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur, ræðir við okkur um íslenskt mál og gaurinn sem við grípum stundum til þegar við viljum lýsa einhverju sem við munum ekki hvað heitir, vitum ekki hvað heitir eða vantar einfaldlega orð á íslensku yfir.
    1 hr
  • Bólusetningar og viðbrögð við mislingum, niðurrif húss við Laugaveg, málfar og fyrsti falsaði peningaseðillinn á Íslandi
    Á dögunum greindist erlendur ferðamaður með mislinga, maðurinn var tiltölulega nýkominn til landsins með flugi og því fjöldi fólks sem kann að hafa orðið útsettur fyrir smiti. Mörg hafa í dag sent fyrirspurnir á heilsuveru, foreldrar barna sem eru of ung til að fá bólusetningu hafa sumir áhyggjur og fólk keppist við að reyna að fá yfirsýn yfir eigin bólusetningar já og barnanna - en það getur verið snúið. Við ræðum aðgengi að bólusetningargögnum og viðbrögð við mislingum við Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar á heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu.
    Reynir Magnús Jóelsson vinnur hjá ABL-taki við að rífa gömul hús. Þessa dagana er hann að rífa hluta Gamla sjónvarpshússins við Laugaveg í Reykjavík. Við fræðumst um niðurrif bygginga og skoðum aðstæður á vettvangi.
    Málfarsmínúta í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur málfarsráðunautar - að blóta.
    Heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands. Sigríður Hjördís Jörundsdóttir skjalavörður sýnir okkur meðal annars elsta falsaða peningaseðilinn sem vitað er um á Íslandi og fer yfir lífshlaup Þorvaldar Þorvaldssonar sem falsaði þann seðil.
    59 min
  • Nýtt bann við aldursmismunun, framgangur Vaxa technologies og umhverfispistill
    Um verslunarmannahelgina í fyrra mátti fólk undir 23 ára aldri ekki tjalda á tjaldsvæðinu á Flúðum, stundum eru haldin böll þar sem engum undir þrítugu er hleypt inn og fyrir nokkrum árum var fjallað um það í fréttum að Icelandair væri hætt að ráða flugfreyjur og flugþjóna yfir 35 ára aldri. Við höldum áfram að ræða aldurstakmarkanir hvers konar í Samfélaginu í dag, meðal annars þær sem fyrirtæki setja en það eru breytingar í farvatninu, í sumar taka gildi lög sem banna mismunun á grundvelli aldurs á öllum sviðum, en slík mismunun er þegar bönnuð á vinnumarkaði. Við ræðum þetta við Jón Fannar Kolbeinsson, lögfræðing hjá Jafnréttisstofu.
    Íslenska hátæknifyrirtækið VAXA Technologies hefur gert tímamótasamning við matvælarisann Oterra um nýtingu á hráefnum úr smáþörungarækt fyrirtækisins á Hellisheiði. Við ætlum að kynnast þessu fyrirtæki, Vaxa technologies, og starfsemi þess og fáum framkvæmdastjórann, Kristinn Hafliðason, og markaðsstjórann, Hörð Ágústsson, í spjall.
    Við heyrum svo umhverfispistil frá ungum umhverfissinnum, endurfluttan frá því í fyrra, en þar gerir Finnur Ricart Andrason upp loftslagsráðstefnuna, COP 28.
    Tónlist:
    Una Torfadóttir - Stundum.
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    58 min
  • Þingmaður um aldurstakmarkanir, nýtt eldsneyti þróað á skip, málfar og vísindaspjall um lyfleysur.
    Við höldum áfram að ræða aldurstakmarkanir í lögum - kíktum í heimsókn á Alþingi til Lilju Rannveigar Sigurgeirsdóttur, þingmanns Framsóknar, en hún hefur mikið velt þessu fyrir sér og lagði nýlega fram frumvarp ásamt nokkrum samflokksmönnum þar sem lagt er til að hætt verði að gera þá kröfu að forseti Íslands þurfi að vera orðinn 35 ára á kjördag,
    Verkfræðistofan Verkís mun leiða umfangsmikið, fjölþjóðlegt orkuskiptaverkefni sem er styrkt af Evrópusambandinu og snýst um að aðlaga stórt flutningaskip þannig að það geti notað rafeldsneyti í stað olíu. Ammóníak, metanól og vetni koma þarna við sögu og kostnaður við verkefnið er um 2,5 milljarðar króna. Kjartan Due Nielsen, nýsköpunarstjóri Verkís, ætlar að segja okkur frá þessu verkefni.
    Málfarsmínúta - framhjáhald.
    Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur - lyfleysur og lyfleysuáhrif.
    Tónlist:
    Björgvin Halldórsson - Himinn og jörð.
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    59 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners