Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Heimsókn í flokkunarstöð Sorpu, hvað er úrvalsmjólk og hvernig er hún framleidd, málfar og vísindaspjall
    Frauðplastsdemantar, villt dýr og ást íslendinga á VHS-spólum koma við sögu í Samfélaginu í dag. Við fjöllum á næstunni um plast og plastumbúðir - og ætlum að hafa spakmælið: Í upphafi skyldi endinn skoða, sem leiðarljós. Vegferðin byrjar því í Mótttöku- og flokkunarstöð Sorpu í Gufunesi.
    Sjö mjólkurframleiðendur í Þingeyjarsveit náðu þeim frábæra árangri að framleiða og fá greitt fyrir úrvalsmjólk alla mánuði ársins 2023. Frá þessu er sagt í umfjöllun á vef Þingeyjarsveitar. Við í Samfélaginu urðum forvitin um þessa úrvalsmjólk og hvernig hún er frábrugðin annarri mjólk sem íslenskir kúabændur framleiða í milljónum lítra á hverju ári. Samvinnufélagið Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Og veitir viðurkenningar þeim sem ná að framleiða úrvalsmjólk alla mánuði ársins. Jóhannes Hreiðar Símonarson framkvæmdastjóri Auðhumlu segir okkur allt um úrvalsmjólk, gæði mjólkur og hvernig henni er safnað frá kúabúum landsins.
    Við heyrum málfarsmínútu og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í sitt vikulega vísindaspjall.
    55 min
  • Erfið mál á Grænlandi, Læst úti - þjóðfundur ungs fólks, málfarsspjall um bændur
    Við hringjum til Nuuk í Grænlandi og tölum við Ingu Dóru Guðmundsdóttur eins og við gerum nokkuð reglulega. Að þessu sinni ætlum við að fjalla um tvö alvarleg mál. Um 150 grænlenskar konur hafa stefnt danska ríkinu vegna lykkjuherferðarinnar sem svo er kölluð en á sjöunda áratugnum var þúsundum stúlkna og ungra kvenna gert að fá lykkjuna - oft án þess að vera upplýstar um það. Við ræðum þetta við Ingu Dóru og sömuleiðis snjóflóð sem féll fyrir nokkrum dögum nálægt Nuuk þar sem tveir rúmlega tvítugir menn létust.
    Á föstudaginn blésu Öryrkjabandalag íslands, Landssamband ungmennafélaga og Landssamtök stúdenta til málþings í hugmyndahúsinu Grósku undir yfirskriftinni Læst úti: Gerum eitthvað í því. Á málþinginu fjallaði ungt fólk um hindranir sem hamla þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu, fötlunarfordóma og hvernig megi hugsa hlutina upp á nýtt svo öll geti tekið jafnan þátt. Við ræðum við tvo þátttakendur á málþinginu þau Eið Welding og Evu Brá Önnudóttur.
    Anna Sigríður Þráinsdótir, málfarsráðunautur kemur svo til okkar í spjall um íslenskt mál - og við ræðum orðaforða tengdan bændum.
    57 min
  • Mælirinn fullur hjá háskólakennurum, Fundur með börnum frá Grindavík og Oddrúnarmálið
    Samkvæmt nýlegri könnun er meira en þriðjungur starfsmanna í háskólum í hættu á kulnun. Nemendafjöldi hefur aukist en kennurum hefur ekki fjölgað að sama skapi, vinnuvikan er löng og stór hluti kennara nýtir frítíma sinn til að sinna rannsóknum og kennslu. Ragna Bene­dikta Garðars­dótt­ir, sem sit­ur í stjórn Fé­lags pró­fess­ora við rík­is­háskóla og Sigrún Ólafsdóttir formaður félagsins ræða þetta við okkur .
    Síðar í vikunni ætla Umboðsmaður barna og Grindavíkurbær að halda stóran fund í Laugardalshöll með börnum í Grindavík, heyra þeirra sjónarmið og koma á framfæri við stjórnvöld. Salvör Nordal umboðsmaður barna og Jóhanna Lilja Birgisdóttir yfirsálfræðingur hjá Grindavíkurbæ ræða við okkur um stöðu barna frá Grindavík.
    Svo heimsækjum við þjóðskalasafn Íslands, ræðum við Helgu Hlín Bjarnadóttur skjalavörð um Oddrúnarmálið svokallaða.
    1 hr
  • Dúfur, áhrif COVID-19 á Vestfjörðum, útför Navalnís
    Við ætlum að tala um COVID-19 en fyrr í vikunni voru 4 ár liðin frá fyrsta covid 19 smitinu hér á landi. Lára Jóhannsdóttir prófessor í umhverfis- og auðlindafræðum fór fyrir rannsókn á samfélagslegum áhrifum og lýðheilsuaðgerðum vegna COVID-19 á Vestfjörðum. Hún segir okkur frá rannsókninni og helstu niðurstöðum.
    Útför rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalnís fór fram í Moskvu í dag. Hann lést í öryggisfangelsi í Síberíu 16. febrúar síðastliðinn, þar sem hann afplánaði langan dóm, var gefið að sök að hafa stofnað og rekið öfgasamtök. Oddur Þórðarson, fréttamaður, hefur fylgst grannt með og ræðir við okkur.
    Dýraspjall. Vera Illugadóttir ræðir um meinta njósnadúfu í Mumbai.
    Tónlist:
    Hljómar - Við saman.
    JOHN MAYER - Carry Me Away.
    59 min
  • Opið samtal um aldursfordóma í íslensku samfélagi
    Erum við einhvern tímann of gömul? Skilgreinir aldurinn okkur? Mótast viðhorf okkar til annarra af aldursfordómum - og hvað með viðhorfin til okkar sjálfra?
    Á þriðjudaginn var fór fram opið samtal um þetta á Borgarbókasafninu í Grófinni og þangað mættu tíu konur sem deildu reynslu sinni og sýn. Konur með mismunandi bakgrunn. Samfélagið fékk að taka þátt - og þátturinn í dag verður helgaður umræðum um aldur og aldursfordóma.
    1 hr
  • Gervigreind og persónuvernd, það sem brennur á ungu fólki, málfar og vísindaspjall
    Hvernig getur það farið ef ríkisstofnanir fara að nýta gervigreindina til að vinna persónuupplýsingar um borgara, fela henni það jafnvel alfarið. Félag forstöðumanna Ríkisstofnana hélt í gær málþing um gervigreind og þar talaði meðal annarra Inga Amal Hasan, lögfræðingur hjá Persónuvernd. Það er nefnilega að ýmsu að huga. Við ræðum við Ingu.
    Nýr forseti Landssambands ungmennafélaga var kjörinn um helgina en það eru regnhlífarsamtök fyrir félagasamtök ungs fólks á Íslandi með meira en fjörutíu aðildarfélög. Sylvía Martinsdóttir er þessi nýi forseti og hún ætlar að segja okkur frá þeim málefnum sem brenna á ungu fólki.
    Við heyrum málfarsmínútu og Edda Olgudóttir kemur til okkar í vísindaspjall um húðina og örveruflóruna.
    Tónlist:
    Bobby Hebb - Sunny.
    Procol Harum - A whiter shade of pale.
    SPILVERK ÞJÓÐANNA - Landsímalína.
    1 hr
  • Sprettur og fjölmenning í HÍ og víðar, staðlar og staðlaráð Íslands, umhverfissálfræði
    Innflytjenda- og útlendingamál hafa verið í brennidepli í þjóðfélagsumræðunni undanfarið og ríkisstjórnin kynnti á dögunum aðgerðir til að sporna gegn því að fólk sæki hér um vernd. Inngilding hefur líka verið áberandi í umræðunni. Eitt er víst, íslenskt samfélag sem lengi var einsleitt er breytt, við ætlum að ræða þessar breytingar og viðbrögð við þeim við Juan Camilo Roman Estrada, verkefnastjóra Spretts og fjölmenningarfulltrúi Háskóla Íslands. Ræða hvernig unnið er að jöfnun tækifæra innan háskólans og hvernig hann vill sjá Ísland þróast til framtíðar.
    Við fjöllum um staðla. Hvernig staðlar eru settir og hvert markmiðið er með þessum stöðlum öllum sem gilda um vörur, þjónustu, tækni og vinnubrögð. Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs, leiðir okkur í allan sannleika um staðla.
    Pistill frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi - að sjá þrjú tré út um gluggann.
    Tónlist:
    BUDDY HOLLY - That'll Be The Day.
    GDRN - Af og til.
    55 min
  • Þórólfur um sýklalyfjaónæmi, Ísland og fyrsta hnattflugið 1924, Sigur Íslands í heimsmeistarakeppninni 1989 rifjaður upp
    Starfshópur um aðgerðir til að bregðast við auknu sýklalyfjaónæmi hefur lokið störfum og skilað tillögum sínum. Þær eru viðamiklar og taka til áranna 2025-2029. Þórólfur Guðnason fyrrverandi sóttvarnalæknir var formaður starfshópsins. Hann fer yfir tillögurnar með okkur á eftir.
    Við ætlum að fara hundrað ár aftur í tímann og rifja upp fyrsta hnattflugið, stórmerkilegan leiðangur sem hafði viðkomu á Íslandi og hreyfði aldeilis við þjóðinni. Ræðum þetta og sögu flugsins við Leif Reynisson, sagnfræðing.
    Í dag, 26. febrúar eru 35 ár síðan íslenska karlalandsliðið bar sigur úr býtum í B heimsmeistarakeppninni í handbolta í Frakklandi. Ísland vann Pólland í leiknum um gullið, 29-26. Alfreð Gíslason varð markahæstur Íslendinga í leiknum með 7 mörk og Kristján Arason skoraði 6. Við rifjum upp umfjöllun frá því rétt fyrir úrslitaleikinn í Dægurmálaútvarpinu. Stefán Jón Hafstein var í París þar sem leikurinn fór fram og tók stuðningsmenn tali.
    Tónlist:
    THE BEATLES - I'll Follow The Sun.
    1 hr
  • Jarðkönnun í Grindavík, sjálboðaliðar í dreifbýli og nýr kolkrabbi
    Almannavarnir kynntu fyrr í vikunni stöðuna á jarðkönnunarverkefni sem hefur staðið yfir í nokkrar vikur og er hluti af heildaráhættumati fyrir Grindavík. Verkefnið hefur samkvæmt tilkynningu frá Almannavörnum þann tilgang að auka öryggi einstaklinga með því að rannsaka og kortleggja sprunguhættu. Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri Almannavarna segir okkur nánar frá þessu.
    Má kvenfélagið selja sveitarstjórninni kökur ef það er bakari á staðnum? Hvað finnst fólki um sjálfboðaliðastörf, hvenær finnst því í lagi að gefa vinnu sína og hvaða þýðingu geta þessi störf haft? Eru þau alltaf og alls staðar vinnumarkaðsbrot eða bara stundum og sums staðar? Jónína Einarsdóttir, prófessor í mannfræði hefur rannsakað þann sið að senda börn í sveit frá ýmsum hliðum, í framhaldinu beindi hún sjónum sínum að sjálfboðastörfum fólks sem kemur hingað erlendis frá og því næst rannsakaði hún viðhorf til sjálfboðaliðastarfa almennt, í sveitum og dreifbýli. Við ræðum við hana.
    Það var sagt frá því í Morgunblaðinu á dögunum að íslenskir vísindamenn hefðu lýst nýrri tegund kolkrabba í grein í tímaritinu Zoological Letters. Kolkrabbi þessi hefur hlotið heitið Ægir, eða Muusoctopus aegir. Steinunn Hilma Ólafsdóttir sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun er einn höfunda greinarinnar. Hún ætlar að segja okkur frá þessari uppgötvun og ræða við okkur um rannsóknir í undirdjúpunum.
    55 min
  • Veðurskeytastöðvar á hverfanda hveli, heilbrigðisstarfsfólk um nikótínpúða, umhverfispistill - vistkjöt
    Samfélagið fjallaði á þriðjudag um markaðssigur nikótínpúðanna á Íslandi Þriðjungur karla undir 35 ára aldri notar púðana daglega og fimmtungur ungra kvenna. Púðarnir hafa nánast jarðað íslenska neftóbakið og það sem meira er, þeir hafa hafið innreið sína í grunnskólana. Við ætlum að ræða við Viðar Jensson, sem sinnir tóbaksvörnum hjá Embætti landlæknis og Láru G. Sigurðardóttur, lækni og doktor í lýðheilsuvísindum og spyrja, Er þetta skaðlegt? Er þetta kannski að einhverju leyti jákvætt? Hvað vitum við í raun?
    Við tölum um veðrið. Með nýrri tækni og aukinni sjálfvirkni hefur mönnuðum veðurskeytastöðvum fækkað mikið undanfarin ár. Það fer að verða liðin tíð að fólk dúði sig í öllum veðrum, lesi á mæla, horfi til himins og skrifi ályktanir sínar í stílabók sem svo eru sendar sem veðurskeyti til Veðurstofu Íslands. Við tölum um veðurathuganir í fortíð, nútíð og kannski framtíð, við Guðrúnu Nínu Petersen veðurfræðing.
    Pistill frá ungum umhverfissinna; Natalía Reynisdóttir fjallar um svokallað vistkjöt.
    1 hr

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners