Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Áhrif sumarhúsa á fugla, umhverfispistill, málfar og þernustörf um borð í Gullfossi
    Hvaða áhrif hefur það þegar fólk byggir sér sumarbústað úti í móa, í kjörlendi lóu, spóa og jaðrakans? Hvað þá þúsundir sumarbústaða? Á undanförnum tveimur áratugum hefur sumarbústöðum á Íslandi fjölgað úr um 10 þúsund í 15 þúsund og það eru 7000 til viðbótar á skipulagi. Aldís Erna Pálsdóttir nýdoktor í líffræði hefur árum saman rannsakað hvernig mófuglar bregðast við þegar búsvæðum þeirra er raskað með þessum hætti og er aðalhöfundur fræðigreinar sem birtist á dögunum í tímaritinu Animal Conservation.
    Við fáum pistil frá ungum umhverfissinna á eftir. Það er Stefán Örn Snæbjörnsson sem flytur okkur hann.
    Málfarsmínútan verður á sínum stað í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur og í lok þáttar ætlum við að grúska aðeins í safni RÚV. Við rifjum upp brot úr viðtali sem Hanna G. Sigurðardóttir tók í þættinum Fyrr og nú í apríl árið 2012. Þá talaði Hanna við Rannveigu Ásgeirsdóttur sem var þerna á Gullfossi í rúman áratug, frá árinu 1962.
    Tónlist:
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    MUGISON - Murr Murr.
    HJÁLMAR - Áttu vinur augnablik.
    Ragnar Bjarnason, Elly Vilhjálms - Sumarauki (Gullfoss með glæstum brag).
    59 min
  • Samtökin Akratorg, hleðsluinnviðir á Vestfjörðum, málfar og súrdeigsbakstur og samlíf fólks og örvera
    Miðbæjarsamtökin Akratorg á Akranesi safna núna undirskriftum í því skyni að fá bæjaryfirvöld til að skoða þann kost að láta breyta gamla húsi Landsbankans við Akratorg í ráðhús. Bjarnheiður Hallsdóttir er í stjórn þessara samtaka. Hún segir okkur nánar frá þessu máli.
    Svo tölum við aðeins um aðgengi að hleðslu fyrir rafbíla á Vestfjörðum. Hjá Bláma í Bolungarvík er unnið ýmsum verkefnum sem tengjast orkuskiptum í þeim landshluta og nýlega lagði Blámi mat á stöðu hleðsluinnviða á Vestfjörðum. Við ræðum við Þorstein Másson, framkvæmdastjóra Bláma.
    Við heyrum málfarsmínútu úr smiðju Önnu Sigríðar Þráinsdóttur, málfarsráðunauts, um sögnina fjölhæfu - að bera
    VIð kynnum okkur svo súrdeigsbrauð, fólk sem bakar það og hvernig bakararnir hugsa um og tengjast örverunum sem eiga stóran þátt í að skapa brauðið. Ragnheiður Maísól Sturludóttir, meistaranemi í þjóðfræði og forfallinn súrdeigsbakari til margra ára, er að rannsaka þetta og flutti erindi á ráðstefnu sem nú stendur yfir í Þjóðminjasafninu. Verkefni hennar er liður í stærra rannsóknarverkefni á vegum Háskóla íslands, svokölluðu öndvegisverkefni þar sem sjónum er beint að samlífi manna og örvera og hinum ýmsu birtingarmyndum þess í daglegu lífi.
    Tónlist:
    CROSBY, STILLS, NASH & YOUNG - Teach Your Children.
    LÓNLÍ BLÚ BOJS - Heim Í Búðardal.
    GRAFÍK - Bláir fuglar.
    1 hr
  • Hvernig getur gervigreindin létt undir á vinnustöðum, Veðrið á Seyðisfirði - „eins og tveir heimar“, handbók loftslagsaktivistans.
    Við ætlum að tala um gervigreind og þá sérstaklega Chat GPT. Þessi tækni sem á íslensku hefur verið kölluð spunagreind, er á fleygiferð og er nú aðgengileg öllum sem vilja. En hvernig getur almenningur nýtt sér þetta tól sem best í daglegum störfum? Er það þegar að gerast hér á landi og ættu t.d. vinnustaðir að tileinka sér chatGPT nú þegar og þjálfa starfsfólk sitt í að nota þessa tækni? Og hversu víða nýtist þessi tækni? Við kennslu í grunnskólum? Við almenn skrifstofustörf? Hjá ríkisstofnunum? Fjölmiðlum? Í heilbrigðiskerfinu? Sverrir Heiðar Davíðsson hugbúnaðarverkfræðingur og sérfræðingur í gervigreind hefur kennt námskeið hjá Endurmenntun um hagnýtar gervigreindarlausnir og starfar sem leiðtogi í hagnýtingu gervigreindar hjá Orkuveitunni. Hann ætlar að ræða við okkur.
    Mikil snjóþyngsli, snjóflóðahætta og rýmingar hafa undanfarnar vikur haft áhrif á líf fólks á Norður- og Austurlandi. Við ræðum við Hildi Þórisdóttur, oddvita Austurlistans í Múlaþingi, hún býr á Seyðisfirði og óttast að bærinn breytist hreinlega í sumarhúsabyggð verði ekki ráðist í að grafa göng undir Fjarðarheiði á næstu árum. Marsmánuður var mildur á höfuðborgarsvæðinu en Katrín Agla Tómasdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, telur að veturinn sé enn ekki búinn fyrir norðan og austan.
    Á morgun kemur út handbók loftslagsaktivistans, Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, ræðir hana við okkur, hverjar eru birtingarmyndir loftslagsaðgerða hér og hvernig verður fólk að (betri) loftslagsaktivistum.
    Tónlist:
    GEORGE MICHAEL & ELTON JOHN - Don't Let The Sun Go Down On Me.
    FRANK SINATRA - I've Got You Under My Skin.
    KÁRI - Into The Blue.
    BUDDY HOLLY - That'll Be The Day.
    1 hr
  • Gagnaglíma, öryggi undir stýri, málfarsmínúta og endurröðun DNA
    Hvað er gagnaglíma og hvað gerir Gagnaglímufélag Íslands? Við komumst að því þegar Hjalti Magnússon sérfræðingur í netöryggi og formaður Gagnaglímufélagsins sest hjá okkur og segir okkur allt um málið.
    Við fjöllum líka um öryggi undir stýri. Sigrún A. Þorsteinsdóttir sérfræðingur í forvörnum hjá Vís ræðir við okkur um notkun snjalltækja við akstur, hætturnar af því og líka tækifærin sem geta falist í nýrri tækni. Viðtal sem var áður á dagskrá í apríl í fyrra.
    Við heyrum málfarsmínútu og Edda Olgudóttir kemur svo til okkar í lok þáttar í vísindaspjall.
    1 hr
  • Fallandi fæðingartíðni, fíknsjúkdómur og meðferð og neip
    Fæðingartíðni lækkaði mikið á Íslandi eftir efnahagshrunið en í Covid tók hún hins vegar kipp og hækkaði töluvert. Þessi aukning í frjósemi varð á sama tíma og fæðingarorlof var lengt úr 10 mánuðum í 12. En nú er fæðingartíðnin að lækka hratt aftur. Við ætlum að tala við Ásdísi Aðalbjörgu Arnalds forstöðumann Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands og Sunnu Símonardóttur nýdoktor og aðjúnkt í félagsfræði við Háskóla Íslands. Þær hafa rannsakað þessi mál.
    Svo kemur Valgerður Rúnarsdóttir framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ til okkar. Hún ætlar að tala við okkur um fíknsjúkdóm, einkenni hans og þá meðferð sem SÁÁ hefur umsjón með.
    Í lok þáttar kemur svo Anna Sigríður Þráinsdóttir til okkar í málfarsspjall. Orðið neip mun bera á góma í því spjalli.
    58 min
  • Fiskmerkingar, eldflugur, málfar og gömul viðbragðsáætlun fyrir Vestmannaeyjar
    Við ætlum að forvitnast um fiskmerkingar við Ísland í Samfélaginu í dag. Slíkar rannsóknir hafa verið stundaðar hér í meira en hundrað ár og tæknin hefur auðvitað þróast í þessum rannsóknum eins og öðrum. Ingibjörg G. Jónsdóttir sjávarvistfræðingur hefur umsjón með þessum verkefnum hjá Hafrannsóknastofnun.
    Og við höldum okkur við náttúruvísindin, nokkrar dýrategundir hafa þann eiginleika að geta gefið frá sér ljós, eldflugur eru þeirra á meðal, en hvers vegna gera þær það og hvernig fara þær að því? Við ræðum ljósgjafa í lífríkinu við Arnar Pálsson, erfðafræðing við Háskóla Íslands.
    Við heyrum málfarsmínútu og í lok þáttar heimsækjum við Þjóðskjalasafn Íslands og tölum um viðbragðsáætlun Almannavarna vegna hugsanlegra náttúruhamfara í Vestmannaeyjum. Áætlun sem var gerð árið 1964, níu árum fyrir gosið í Heimaey. Andrea Ásgeirsdóttir ætlar að segja okkur frá þessu.
    Tónlist:
    EURYTHMICS - I Saved The World Today.
    Valgeir Guðjónsson - Þjóðvegur númer eitt.
    1 hr
  • Auglýsingaherferðin Blanksy, Óskar og Saxófónninn
    ÖBÍ, réttindasamtök öryrkja, hrundu á dögunum af stað auglýsingagjörningi þar sem þau virkjuðu áhrifavalda og sköpuðu dularfullan huldulistamann, Blanksy, sem gefið var að sök að hafa spreyað á bæði bíla og auglýsingaskilti. Í gær var hulunni svipt af öllu saman. Við ætlum að ræða hugsunina og aðferðafræðina á bak við þessa herferð og hvernig bæði áhrifavöldum og fjölmiðlum var beitt við Ölmu Ýrr Ingólfsdóttur, formann, ÖBÍ, Einar Ben forsvarsmann auglýsingastofunnar Bien og Guðmund Birki Pálmason, kírópraktor og áhrifavald.
    Við tölum um saxófóninn. Blásturshljóðfærið fallega sem var fundið upp um miðja 19. öld og er enn í þróun. Óskar Guðjónsson, saxófónleikari, hugsar mikið um þetta hljóðfæri og er á stöðugu ferðalagi í leitinni að besta sándinu, ég leyfi mér að sletta því þetta orð sánd þýðir í senn tónn, hljómur, hljóð og er eiginlega tilfinning. Óskar sest hjá okkur og fræðir okkur um galdurinn sem felst í saxófóninum og einkum munnstykkinu - sem er lykillinn að hinum eina sanna tóni.
    Tónlist:
    Beatles, The - I'll follow the sun.
    ADHD, Clay Camilla
    1 hr
  • Gos við Sundhnúkagíga, snjóflóðaeftirlit og snjallmælar
    Við ætlum að ræða aðeins um eldgosið við Sundhnúksgígaröðina. Gosið hefur nú staðið frá 16. mars og virknin talin stöðug. Tveir gígar eru nú virkir og samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Veðurstofunni hefur landris ekki mælst undanfarna daga sem þykir benda til þess að jafnvægi sé nú í aðstreymi kviku undir Svartsengi. Og í gær var hættustig Almannavarna fært af neyðarstigi á hættustig. Kristín Jónsdóttir deildarstjóri á Veðurstofunni ætlar að fara yfir stöðuna með okkur.
    Og við höldum okkur á veðurstofunni því undanfarið hafa fréttir af snjóflóðum og snjóflóðahættu verið tíðar og viðbragð vegna þess verið talsvert. Sveinn Brynjólfsson er sérfræðingur á sviði ofanflóðahættu. Hann ætlar að ræða við okkur á eftir.
    Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur fjallar svo um snjallmæla í pistli í lok þáttar.
    55 min
  • Gömul hús og gagnrýni á skipulagsmál, Havana-heilkennið, málfar og vísindaspjall
    Til stendur að rífa skátaskálann Fálkafell, ofan Akureyrar, Alþýðuhúsið eða Allinn var nýlega rifinn, það hefur verið í umræðunni árum saman að rífa hinn fræga skemmtistað, Sjallann og svo eru það örlög BSO, bifreiðastöðvar Oddeyrar, sem enn eru óráðin, en stöðin þarf að víkja fyrir lok maí. Nýtt er byggt og annað víkur - eða hvað? Árni Árnason, arkitekt og meðlimur í samtökunum Arfur Akureyrarbæjar, hefur verið gagnrýninn á skipulagsmál á Akureyri og hélt á dögunum erindi með yfirskriftinni - af hverju eigum við ekki að rífa gömul hús.
    Dularfull veikindi sem hafa verið kölluð Havana heilkennið hafa valdið miklum heilabrotum frá árinu 2016 þegar þeirra varð fyrst vart í Havana á Kúbu. Einkennin eru margvísleg, m.a. höfuðverkir, magakveisur, blóðnasir og undarlegt suð fyrir eyrum. Þessi veikindi hafa lagst á ýmsa sendifulltrúa Bandaríkjanna, fyrst á Kúbu eins og fyrr segir, en seinna víðar. Nú eru uppi kenningar um að þessi veikindi megi rekja til einhvers konar hljóðvopna og að sökudólgurinn sé rússneskur. Nýlega fjölluðu þrír fjölmiðlar; fréttaskýringaþátturinn 60 minutes, Der Spiegel og The insider um málið þar sem rök voru færð fyrir þessari kenningu. Oddur Þórðarson fréttamaður hefur fylgst með málinu og ætlar að fara yfir það með okkur.
    Við heyrum málfarsmínútu og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall.
    59 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners