Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Guðmundur Fertram, málfarsmínúta og dýrasýning í Örfirisey
    Það vakti mikla athygli í fyrra þegar íslenska fyrirtækið Kerecis var selt dönsku stórfyrirtæki fyrir 1,3 milljarða dollara. Ef við gerum tilraun til að reikna það í krónur þá eru það um 180 íslenskir milljarðar. Sem þykir dágott og þar með varð Kerecis fyrsta íslenska sprotafyrirtækið sem er metið á meira en milljarð Bandaríkjadala. Fyrirtækið notar þorskroð til að græða sár sem gróa seint og illa, t.d. vegna sykursýki og áverka vegna bruna og hefur tryggt sér nokkur einkaleyfi tengd aðferðum og vörum fyrirtækisins. Nýsköpunarvika hefst síðar í þessari viku og í tengslum við hana ætlar Guðmundur Fertram Sigurjónsson uppfinningamaður, stofnandi og forstjóri Kerecis að ræða meðal annars um uppgötvanir fyrirtækisins og þátt einkaleyfa í velgengni þess. Við ætlum að ræða við Guðmund Fertram á eftir um þetta.
    Við heyrum líka málfarsmínútu eins og jafnan á mánudögum og svo kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV í heimsókn og rifjar upp áhugavert efni úr safninu.
    1 hr
  • Orkuvinnsla í geimnum, Heimsókn í Skalla, málfar og dýraspjall með Guðmundi Fylkissyni.
    Við ætlum að forvitnast um hugmyndir um orkuframleiðslu í geimnum. Þetta hljómar dálítið eins og vísindaskáldskapur en slíkar hugmyndir hafa verið uppi í hálfa öld. Og nú hefur íslenska loftslagsfyrirtækið Transition Labs gert samstarfssamning við breska fyrirtækið Space Solar sem hefur hannað sólarorkuver sem staðsett verða á sporbaug um jörðu. Þar mundu þau virkja geisla sólarinnar og miðla orkunni til jarðar með útvarpsbylgjum. Kjartan Örn Ólafsson framkvæmdastjóri Transition Labs segir okkur meira.
    Guðlaug Steingrímsdóttir, kaupmaður í söluturninum Skalla við Hraunbæ í Árbæjarhverfi í Reykjavík, bauð öllum sem vildu upp á ís úr vél í gær í tilefni af fjörutíu ára starfsafmæli sínu - við ræðum við hana um þessi tímamót, sjoppurekstur og það hvað einkennir sjoppuna Skalla sem á sér meira en hálfrar aldar sögu.
    Við heyrum málfarsmínútu, og svo fræðumst við um fjölskyldulíf þeirra Jóns og Söru, sem nýlega fluttust í Hafnarfjörðinn. Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður og dýravinur, hefur kynnst þessu álftapari vel og aðstoðað þau við að koma ungum á legg. Hann kemur til okkar í lok þáttar.
    Tónlist:
    GDRN - Ævilangt.
    KLASSART - Landamæri.
    Una Torfadóttir, Sigurður Halldór Guðmundsson Tónlistarm. - Þetta líf er allt í læ.
    58 min
  • Þrítugsafmæli aðildar Íslands að EES-samningnum, Dýraverndarsambandið skorar á stjórnvöld, málfar og vísindaspjall með Eddu Olguddóttur
    Við ætlum að fjalla um evrópusamvinnu. Þrítugsafmæli EES-samningsins er fagnað í dag - með málþingi og uppskeruhátíð. Þessi samningur hefur haft mikla þýðingu fyrir íslenskt samfélag - áhrifa hans gætir í viðskiptum og nýsköpun, rannsóknum, menntamálum, hann hefur haft áhrif á menningu, íþróttir og æskulýðsmál, skapað ýmis tækifæri fyrir fólk og fyrirtæki, en hann er líka umdeildur, hefur í för með sér ýmsar kvaðir - og ekki gulltryggt að aðild Íslands að honum verði eilíf. Við ætlum að ræða þessi tímamót við Ágúst Hjört Ingþórsson, forstöðumann Rannís.
    Svo sláum við á þráðinn til Önnu Berg Samúelsdóttur, stjórnarmanns í Dýraverndarsambandi Íslands. Samtökin halda því fram að of mörg dýr á Íslandi búi við hungur, ótta og þjáningu, víða sé illa búið að dýrum og eftirlit bitlaust. Hátt í fjögur þúsund skrifuðu undir áskorun sem samtökin afhentu forsætisráðherra fyrr í vikunni.
    Við heyrum málfarsmínútu og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspall í lok þáttar. Við ræðum rannsóknir sameindalíffræðinga á áhrifum hreyfingar á hin ýmsu líffæri - einkum nýrnahettur.
    Tónlist:
    LAY LOW - Vonin.
    THE LUMINEERS - Stubborn Love.
    Fleet Foxes - Mykonos.
    1 hr
  • Tegundastigveldi í rannsóknum, álfasala SÁÁ, málfarsspjall - ýmis læti.
    Við tölum um það sem kallað er verndarlíffræði og niðurstöður stórrar rannsóknar á því efni sem voru birtar nýlega. Ragnhildur Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands, og Áki Jarl Láruson, stofnerfðafræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, ræða við okkur um rannsóknina og niðurstöðurnar.
    Á morgun hefst álfasala SÁÁ þegar hópur sölumanna um allt land býður álfinn til sölu til að afla fjár fyrir meðferðarstarf SÁÁ. Álfurinn dúkkar alltaf upp á vorin og hefur gert í áratugi. Og núna áðan, í hádeginu, var átakið kynnt þegar Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ afhenti heilbrigðisráðherra fyrsta álfinn. Anna Hildur ræðir við okkur um álfinn, fjáröflun SÁÁ og starfið.
    Og Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur lítur við hjá okkur í það sem við köllum málfarsspjall.
    Tónlist:
    JAMES TAYLOR - Fire And Rain.
    TOM PETTY AND THE HEARTBREAKERS - The Waiting.
    Ítarefni:
    Hlekkur á verndarlíffræðirannsókn
    https://www.cell.com/cell-reports-sustainability/fulltext/S2949-7906(24)00110-1?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTAAAR0ykQVDSA57gLSj9k9Vf-Rzo-9dxL99l3ilc55mVd2-n2XG8873-xFzFhc_aem_Af4Grlf-u-XlPjjPhPMkRu5UiPn9jZLmXdpdLpni01Vl9a65rAgMBo5FoJtlvUXdhNwCT6tb9vT8LQonXY769mUV
    1 hr
  • Ungir frumkvöðlar, kíkt í gamla kassa hjá Landvernd, málfar og rafræn skjalavarsla á Þjóðskjalasafninu
    Fyrir helgi var Netaprent, fyrirtæki í eigu fjögurra Verslunarskólanema, valið fyrirtæki ársins í fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla – JA Iceland. Þetta fyrirtæki, Netaprent, framleiðir þrívíddarprentefni úr notuðum fiskinetum og var eitt þeirra 30 fyrirtækja frá 15 framhaldsskólum sem komust í úrslit og mun taka þátt í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla sem fer fram á Sikiley í sumar. Við forvitnumst um Unga frumkvöðla og Netaprent hér á eftir - tölum við Petru Bragadóttur,framkvæmdastjóra Ungra frumkvöðla, og tvo úr hópnum sem stendur að baki fyrirtækis ársins, þá Andra Clausen og Erik Gerritsen.
    Við mælum okkur mót við Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formann Landverndar, samtökin standa í flutningum og enginn veit hvað átt hefur fyrr en flutt hefur. Saga félagsins spannar rúma hálfa öld og starfsfólk fann við undirbúning flutninganna fjölda kassa með áhugaverðum skjölum - við kíkjum í einn slíkan og ræðum við Þorgerði um áherslur umhverfisverndarhreyfingarinnar fyrr og nú.
    Við heyrum málfarsmínútu í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur málfarsráðunautar og í lok þáttar heimsækjum við Þjóðskjalasafn Íslands og fræðumst um rafræna skjalavörslu, þar tekur Haukur Kristófer Bragason á móti okkur.
    Tónlist:
    ELVIS COSTELLO & THE ATTRACTIONS - Good Year For The Roses.
    1 hr
  • Snerpa Power, öryggi smábátasjómanna, tíð og Ólympíuleikar
    Við tölum við Írisi Baldursdóttur. Hún er framkvæmdastjóri fyrirtækisins Snerpa Power sem hefur sérhæft sig í gerð hugbúnaðar sem gerir stórnotendum rafmagns og öðrum þátttakendum á raforkumarkaði kleift að fullnýta lifandi gagnastrauma og sjálfvirkni til lækkunar á raforkukostnaði og stuðla að ábyrgri nýtingu endurnýjanlegra auðlinda, eins og það er orðað í kynningu. Nú hefur Snerpa Power verið valið til að vera stofnaðili að norska rannsóknarsetrinu SecurEL, en tilgangur þess er að gera raforkukerfið betur í stakk búið til að styðja við kolefnisleysi.
    Ný­sköp­un­ar­fyr­ir­tækið Alda ör­yggi býður nú ís­lensk­um smá­báta­sjó­mönn­um sér­hannað ör­ygg­is­stjórn­un­ar­kerfi fyr­ir smá­báta end­ur­gjalds­laust. Um er að ræða snjallforrit, sem er sagt nú­tíma­væða, auðveld­a og ein­fald­a allt ut­an­um­hald ör­ygg­is­mála hjá smá­báta­sjó­mönn­um á sta­f­ræn­an máta. Þeir Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Öldunnar og Gunnar Rúnar Ólafsson, þróunarstjóri Öldu öryggi spjalla við okkur um öryggi sjómanna.
    Við heyrum málfarsmínútu og í lok þáttar kemur Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður í heimsókn. Hann ætlar að tala við okkur um Ólympíuleikana sem verða settir í París þann 26. júlí næstkomandi.
    55 min
  • Skipulag og náttúruvá, orkuskipti í flutningum og umhverfispistill
    Í dag ætlum við að fjalla um náttúruvá og skipulagsmál en skipulagsgerð er mikilvægur vettvangur til þess að takast á við þær áskoranir sem fylgja náttúruvá hvort sem er af völdum loftslagsbreytinga, eldsumbrota eða annarra þátta í náttúru- og veðurfari. Sigrún Karlsdóttir, skrifstofustjóri náttúruvárþjónustu Veðurstofu Íslands, segir okkur frá vinnu við gerð áhættumats við skipulagsgerð í ljósi nýlegrar reynslu af eldsumbrotum og til framtíðar.
    Og við tölum um orkuskipti í þungaflutningum. Nýlega var undirrituð viljayfirlýsing um kaup fimm íslenskra fyrirtækja á nýjustu tegund vetnisknúinna vörubíla frá þýska vörubílaframleiðandanum MAN. Það er fyrirtækið Íslensk nýorka sem hefur haft forgöngu um þetta verkefni og við ætlum að tala við framkvæmdastjórann Jón Björn Skúlason á eftir.
    Svo heyrum við umhverfispistil í lok þáttar frá Stefáni Gíslasyni umhverfisstjórnunarfræðingi.
    59 min
  • Upphitun fyrir 1. maí, Reykjavíkurmaraþon í 40 ár, pistill frá Páli Líndal
    Kröfugöngur, baráttufundir, þrusuræður, kaffiveitingar og lúðrahljómur - já 1. maí er á morgun. Við ætlum af því tilefni að ræða stemninguna þennan dag og helstu baráttumál samtímans við Örnu Jakobínu Björnsdóttur, formann Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu - en hún verður fundarstjóri á útifundi á Ingólfstorgi í Reykjavík á morgun.
    Á þessu ári er því fagnað að 40 ár eru liðin frá því að Reykjavíkurmaraþon var fyrst haldið og eflaust eru einhverjir hlauparar farnir að huga að því ágæta hlaupi í ár og æfa stíft. Við ætlum að tala um maraþonhlaup við Sigurbjörn Árna Arngrímsson skólameistara og doktor í íþróttafræðum.
    Við fáum svo pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi í lok þáttar, í pistlinum rekur hann rannsóknir á því hvernig mismunandi arkitektúr verkar á fólk.
    Tónlist:
    Bubbi Morthens - Hulduþula.
    BOB MARLEY & THE WAILERS - Buffalo Soldier.
    59 min
  • Nýr verkefnastjóri yfir málefnum Grindavíkur hjá forsætisráðuneytinu, útilistaverkin í borginni, málfar og þvottalaugarnar 1957
    Gylfi Þór Þorsteinsson sem lengi hefur starfað fyrir Rauða krossinn og tekið að sér ýmis flókin verkefni, t.d. uppsetningu og rekstur farsóttarhúsa á tímum COVID og móttöku flóttafólks frá Úkraínu hefur verið ráðinn til að leiða samhæfingu vegna Grindavíkur í forsætisráðuneytinu. Í því felst meðal annars að samhæfa samskipti og upplýsingagjöf til Grindvíkinga vegna jarðhræringanna á Reykjanesi. Gylfi Þór ræðir við Samfélagið.
    Þau eru alls konar og stundum umdeild. Við ætlum að fjalla um útilistaverk, en það eru vel á annað hundrað slík í Reykjavík, við spjöllum um strauma og stefnur, hugsunina á bak við þessi verk, ný verk og gömul og umsjón þeirra við Ólöfu Kristínu Sigurðardóttur, safnstjóra Listasafns Reykjavíkur.
    Við heyrum málfarsmínútu og í lok þáttar kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri til okkar með áhugaverða upptöku úr safni RÚV, upptakan er frá árinu 1957 og fjallar um þvottalaugarnar í Laugardal.
    Tónlist:
    GDRN, Hjálmar - Upp á rönd.
    BRUNO MARS - It Will Rain.
    1 hr

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners