Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Þrettán íslenskar ungliðahreyfingar krefjast þess að ný útlendingalög verði samin í samráði við sérfræðinga í málaflokknum, mannréttindasamtök og hagsmunaaðila. Þau fordæma breytingarnar sem á að gera á útlendingalögunum og krefjast þess að allar lagabreytingar séu gerðar með mannréttindi að leiðarljósi. Við ræddum við Árna Kristjánsson frá ungliðahreyfingu Amnesty og Aníta Soley Scheving frá Andófi.
    Nýlega var birt skýrsla um stöðu hafsins víða um heim á vegum alþjóðahaffræðinefndarinnar. Við ræddum við Hrönn Egilsdóttur, sviðsstjóra hjá hafrannsóknastofnun og fulltrúa íslands í framkvæmdastjórn alþjóðahaffræðinefndarinnar um þær ógnir sem steðja að hafinu.
    Edda Olgudóttir kom svo í Vísindaspjall.
    Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir.
    55 min
  • Heiðursmorð og annað ofbeldi, Háskóli unga fólksins, málfar og dómsmál um „græna“ grísi
    Það var sláandi fyrirsögn á visi.is í síðustu viku, þar sem faðir ungrar konu segir, Hefði slátrað dóttur sinni byggju þau í arabalandi. Svokölluð heiðursmorð tíðkast í mörgum ríkjum, þau tengjast æru fjölskyldunnar og allir taka þátt, foreldrar, systkini og jafnvel ömmur og afar. Slíkt mál var þingfest í síðustu viku hjá Héraðsdómi Reykjaness, þar sem átta manns er ákært fyrir ofbeldi í nánu sambandi. Stígamót vinna með alla vega mál sem koma upp, þar sem ofbeldi á sér stað, bæði gagnvart íslenskum konum jafnt og erlendum. Við ræðum við Drífu Snædal talskonu Stígamóta eftir skamma stund.
    Stjarneðlisfræði, mennska, gervigreind, sýndarveruleiki og áfram má telja. Háskóli unga fólksins er í fullum gangi í Háskóla Íslands þar eru 250 nemendur á aldrinum 12-14 ára að kynnast heimi fræða og vísinda og stundatafla vikunnar ansi þétt. Við ræðum við skólastjórann, Kristínu Ásu Einarsdóttur, og tökum púlsinn á krökkunum sem sum eru komin með skýrari mynd af því hvernig þau vilji svara spurningunni sem sífellt dynur á ungu fólki - hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór.
    Við heyrum málfarsmínútu og svo fáum við Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna í spjall um grísi sem sagðir voru grænir en ekki reyndist innistæða fyrir slíkum fullyrðingum.
    Tónlist:
    VALDIMAR - Blokkin.
    SCORPIONS - Wind Of Change.
    MOSES HIGHTOWER - Lyftutónlist.
    Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir.
    1 hr
  • Vasinn hennar Lísu og fleiri forvitnilegir munir, að úða garðinn eða úða ekki, málfar og upptaka úr safni RÚV
    Það leynast gjarnan gamlir, mögulega verðmætir hlutir á heimilum landsmanna sem forvitnilegt væri að heyra af. Þjóðminjasafnið hefur stundum boðið fólki að koma með slíka muni, sem kunnáttumenn skoða. Sjálfsagt eru margir hér á landi sem hafa séð breska þáttinn Antik roadshow, þar sem vel er mætt með alla vega hluti, sagðar sögur og fá verðmat. Við ræðum við Lilju Árnadóttur fyrrverandi sérfræðing hjá Þjóðminjasafni Íslands eftir skamma stund.
    Að úða eða úða ekki - það er spurning sem brennur á mörgum. Við ætlum að ræða garðaúðun við Ísak Sigurjón Bragason, sérfræðing hjá umhverfisstofnun.
    Svo förum við 16 ár aftur í tímann og kynnumst starfsemi verslunarinnar Brynju við laugaveg, en árið 2008 átti verslunin, sem nú er hætt, 90 ára afmæli. Elísabet Indra Ragnarsdóttir, dagskrárgerðarmaður, miðlaði stemmningunni í versluninni og ræddi við starfsfólk og fastakúnna.
    Tónlist:
    JONI MITCHELL - Big Yellow Taxi.
    ÁSGEIR TRAUSTI - Myndir.
    Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir.
    56 min
  • Brúarvinnuflokkar sameina krafta sýna í Elliðaárdal, Baskasetur og hátíð á Djúpavík, dýraspjall um sæotur
    Brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar eru tveir, annar í Vík í Mýrdal og hinn á Hvammstanga og þessa dagana sameina þeir krafta sína í Elliðaárdalnum í Reykjavík. Brúin yfir Elliðaár, neðan við Árbæjarstíflu, þurfti allsherjar yfirhalningu - vegriðið orðið slappt, steypan léleg, það þarf að skipta um legur og þensluraufar og hvaðeina. Við kíktum á framkvæmdina á dögunum og ræddum við VIlhjálm Arnórsson, yfirverkstjóra flokksins frá Hvammstanga og matráðinn Hrefnu Magnúsdóttur sem tilheyrir flokknum frá Vík - bæði hafa verið í brúarvinnuflokki í átján ár.
    Við heyrum svo í Ólafi J. Engilbertssyni, hann er formaður Baskavinafélagsins og er staddur á Djúpavík á ströndum. Þar á að setja á fót sérstakt Baskasetur og þessa dagana er þar hátíð þar sem menningu Baska og tengslum þeirra við Ísland er fagnað með sýningu, vinnustofum, málþingi og tónleikum.
    Vera Illugadóttir kemur svo til okkar í lok þáttar í dýraspjall - til umræðu er hinn frægi sæotur 841.
    Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir.
    Tónlist:
    Lónlí blú bojs - Heim í Búðardal.
    THE KINKS - Sunny Afternoon.
    Olga Guðrún Árnadóttir - Kötturinn Sem Gufaði Upp.
    59 min
  • Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir.
    Fjallað um vetni sem orkugjafa en ekki bara vetni heldur líka hvernig það tengist lífsstarfi Þorsteins Inga Sigfússonar, heitins, sem var prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands og forstjóri nýsköpunarmiðstöðva. Í vikunni var blásið til heiðursmálþings í minningu Þorsteins í hátíðarsal aðalbyggingar háskólans, fjallað um fjölbreyttan feril hans og ástríðu fyrir vísindunum og hvernig hann tengdist og ruddi braut vetnis sem orkugjafa. Við símum til Svíþjóðar og ræðum við son Þorsteins, Davíð Þór Þorsteinsson Læknir og Guðrún Pétursdóttir, prófessor emeríta í lífeðlisfræði, hún var fundarstjóri á málþinginu og þekkti Þorstein vel og með henni verður Egill Tómasson, nýsköpunarstjóri Landsvirkjunar.
    Líkami okkar er flókinn. Við pælum kannski ekki mikið í því ef allt er í lagi. En þegar fólk kemst á efri ár byrjar gjarnan eitthvað að klikka. Eyrun er lítil vél sem getur bilað á ýmsan máta, stöðusteinaflakk er eitt af því sem fólk getur lent í. Rætt við Hólmfríði Sigurðardóttur sjúkraþjálfara og sérfræðing í meðferð stöðusteinaflakks.
    Málfarsmínúta um góðgæti og Umhverspistill frá ungum umhverfissinnum - Esther Jónsdóttir

  • Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir og Fanney Birna Jónsdóttir
    55 min
  • Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir og Fanney Birna Jónsdóttir
    55 min
  • Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir og Fanney Birna Jónsdóttir
    59 min
  • Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur velti fyrir sér hvað við eigum að kalla eiginmann forseta, þar sem í fyrsta sinn er maki karlkyns, Ýmsu var velt upp svo sem forsetamaki, forsetaherra o.fl. Einnig var talað um að kjósa taktískt, strategísk eða með hjartanu.
    Hraunið flæðir eins og engin sé morgundagurinn á Reykjanesi, verið er að nýta það sem undirlag í vegagerð, en er hægt að nýta það sem byggingarefni? Arnhildur Pálmadóttir arkitekt og sonur hennar Arnar Skarphéðinsson kynntu hugmyndir að nýtingu hrauns á Hönnunarmars fyrir nokkrum árum. Rætt var við Arnhildi um það og samstarf hennar við dönsku arkitektastofuna Lendager, sem sérhæfir sig í endurnýjanlegum byggingum í Danmörku og víðar. Verið er að byggja nokkrar byggingar eftir hönnun Arnhildar, við forvitnumst um hvernig gengur. Rætt við Björgvin Smári Jónsson o.fl.
    Steyptar tröppueiningar svífa yfir brekkunni fyrir neðan Akureyrarkirkju - það hefur ekki verið hægt að ganga upp kirkjutröppurnar frá því þær voru fjarlægðar í fyrra sumar - en nú styttist í að nýju tröppurnar verði allar með tölu (umdeilt hver sú tala er) komnar á sinn stað. Við tökum framkvæmdirnar út og ræðum við fólk á staðnum
    Tónlist:
    Það vantar spýtur - Ólafur Haukur Símonarson - Olga Guðrún Árnadóttir
    I got you under my skin - Frank Sinatra
    Beðið eftir skömminni - Valdimar
    59 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners