Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Ritskoðun barnabóka - pallborðsumræður. Vísíndaspjall með Eddu.
    Er mikið varið í barnabækur í dag? Er úrvalið nógu gott? Þarf að uppfæra bókakostinn og þær hugmyndir sem haldið er að börnum í takt við nýja tíma? Er réttlætanlegt að aðlaga barnabækur eða ritskoða þær?
    Við förum á dýptina í pallborðsumræðum.
    Þátttakendur:
    Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, sagnfræðingur og rithöfundur, bókarýnir, foreldri og sérstök áhugamanneskja um múmínbækur.
    Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri BF-útgáfu, undir það heyra nokkur félög, meðal annars Almenna bókafélagið og barnabókaútgáfan Unga Ástin mín sem gefur út harðspjaldabækur fyrir yngstu börnin. BF-útgáfa gefur meðal annars út bækur byggðar á sjónvarpsþáttunum um Blæju og Hvolpasveit og svo hinn klassíska bókaflokk skemmtilegu smábarnabækurnar sem hafa notið vinsælda í áratugi - og þykja sumar umdeildar.
    Una Margrét Jónsdóttir, dagskrárgerðarmaður hér á Rás 1, hún varð læs þriggja ára og las alls konar klassískar bækur ung óritskoðaðar, hún hefur mikið velt fyrir sér barnamenningu og barnaefni í gegnum tíðina- og gefið út bækur um barnasöngva og leiki.
    Embla Rún Halldórsdóttir, stjórnmálafræðinemi, mikill áhugamaður um bóklestur, bókaáhrifavaldur hjá Forlaginu og fulltrúi yngri kynslóðarinnar í þessu pallborði.
    Vísindaspjall - Edda Olgudóttir, vísindamiðlari samfélagsins, segir okkur frá Nóbelsverðlaununum í efnafræði.
    Tónlist:
    THE KINKS - Picture book.
    TALKING HEADS - The Book I Read.
    1 hr
  • Torfbæir, rafrusl, umhverfisvænn arkítektúr og ljósvist
    Kort sem syngur afmælissöng, skór með blikkandi sólu, stafrænir myndarammar og rafrettur - allt eru þetta raftæki og eins og útvarpið nú eða síminn eða tölvan sem þú ert að hlusta á okkur í verður þetta einhvern tímann rafrusl. Við ræðum raftækjaúrgang; umfang, ógnir og tækifæri við tvo starfsmenn Úrvinnslusjóðs - þær Írisi Gunnarsdóttur viðskiptastjóra og Eddu Andrésdóttur samskiptastjóra.
    Við verðum við með hugann við byggðir og vistarverur og áhrifin sem þær hafa á okkur og umhverfið. Í pistli dagsins fjallar Páll Líndal, umhverfissálfræðingur, um ýmislegt sem tengist ljósvist og borgarskipulagi.
    Síðan fáum við til okkar Áróru Árnadóttur, framkvæmdastjóra Grænnar byggðar, og Arnhildi Pálmadóttur arkitekt til að ræða um umhverfisvænan arkitektúr, loftslagsvæna torfbæi, sjálfbærar byggðir og fleira í þeim dúr.
    1 hr
  • Fólk á förnum vegi um stjórnarslitin, Stjörnu-Sævar og halastjarnan, ástarbrjef frá Holdsveikispítalanum
    Það eru umbrotatímar í pólitíkinni. Við heyrum hvað fólki á förnum vegi finnst um stjórnarslitin og framtíðina - gefum fólki sem í morgun var á rölti um Kringluna, Borgartún, Katrínartún og Snorrabraut orðið.
    Og úr pólitíkinni yfir í önnur stórmál, kannski á öðrum skala. Freðinn risi úr öðru sólkerfi hefur undanfarið tekið þátt í að lýsa upp næturhimininn - við fáum Sævar Helga Bragason, jarðfræðing og vísindamiðlara með meiru, til þess að segja okkur frá Halastjörnunni Tsuchinshan-Atlas C/2023 A3.
    Við förum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands - þar segir Jón Torfi Arason, skjalavörður, okkur frá harmþrungu ástarbréfi sem fannst inni í vegg gamals húss á Ísafirði fyrir tæpum fimmtíu árum og skilaði sér nýlega til safnsins. Það reyndist vera frá manni sem skrifaði konu sinni frá holdsveikispítalanum í Laugarnesi.
    Tónlist:
    Nelson, Willie - Georgia on my mind.
    Una Torfadóttir - Í löngu máli.
    1 hr
  • Hamlar bókafæð lestraráhuga barna? Óvinsælasta skordýr landsins og pistill frá Birgittu Björgu
    VIð höldum áfram að fjalla um barnabækur - eftir ritskoðunarumfjöllun síðustu daga. Kiddi klaufi er skáldsagnapersóna sem nýtur mikilla vinsælda meðal barna hér á landi - en Þór Bergmann Orrason og Kristín María Jóhannesdóttir, krakkar sem Samfélagið ræddi við á skólabókasafni Seljaskóla í Breiðholti, viðurkenndu að hafa lesið sömu Kidda klaufa bækurnar mörgum sinnum og að þær bötnuðu ekki beinlínis við fimmta lestur. Dröfn Vilhjálmsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur í Seljaskóla, segir allt of fáar barnabækur gefnar út á íslensku og að það dragi úr lestraráhuga barna.
    Við fjöllum um ákveðið dýr, nánar tiltekið skordýr sem valdið hefur miklum usla hérlendis á síðustu árum. Dýrinu er lýst svona í grein á Vísindavefnum:
    „Tiltölulega stuttir vængir leggjast flatir yfir afturbol, vængæðar sérstakar. Karldýr hafa fjaðurgreindar svipur fálmara. Munnlimir eru mótaðir til að rista húð og sjúga upp blóðvessa.“
    Gísli Már Gíslason, prófessor emerítus í Líffræði við Háskóla Íslands ræðir við okkur um lúsmý og fleiri flugur.
    Við heyrum pistil frá Birgittu Björgu Guðmarsdóttur, pistlahöfundi Samfélagsins. Hún fer yfir sögu kaffibrennslu á Íslandi, ræðir sérstaklega hylkjavélar nútímans en þó fyrst og fremst vægi ákveðinna ferla í lífi okkar.
    Tónlist og stef í þættinum:
    Pónik og Einar - Léttur í lundu.
    Garson, Mort - Music to soothe the savage snake plant.
    Beirut - Nantes.
    ALVA NOTO & RYUICHI SAKAMOTO, ALVA NOTO & RYUICHI SAKAMOTO, ALVA NOTO & RYUICHI SAKAMOTO, ALVA NOTO & RYUICHI SAKAMOTO - Microon II.
    58 min
  • Nóbelsverðalaunahafi gagnrýnir gervigreindarfrömuð, snjóflóð af mannavöldum, meira um ritskoðun barnabóka
    Í dag fjöllum við um gervigreind. Við fáum til okkar Eyrúnu Magnúsdóttur, umsjónarmann þáttanna Vélvitið, sem voru á dagskrá hér á Rás 1 snemma árs. Hún verður með okkur um það bil aðra hvora viku til að fjalla um gervigreind, og við byrjum í dag með umfjöllun um nóbelsverðlaunahafann Geoffrey Hinton og Sam Altman, framkvæmdarstjóra gervigreindarfyrirtækisins Open AI
    Síðan ætlum við að fjalla um snjóflóð, þá helst snjóflóð af mannavöldum. Það var þemað á snjóflóðaráðstefnu sem haldin er í dag. Ég kíkti í heimsókn og ræddi við snjóflóðaspekúlanta, vísindafólk og fólk sem hefur sjálft lent í og komið af stað snjóflóði.
    Í gær fjallaði Samfélagið um ritskoðun barnabóka - þessi ritskoðun er íþyngjandi hugræn byrði fyrir foreldra en samt útbreidd á íslenskum heimilum, einkum þegar kemur að bókum fyrir yngstu börnin þar sem kyni persóna eða söguframvindu er breytt eða orð sem talin eru óviðeigandi tekin út. Í dag heyrum við sýn Drafnar Vilhjálmsdóttur, bókasafnsfræðings í Seljaskóla í Reykjavík. Hún er ekki á því að ritskoða eigi bækur ætlaðar börnum á grunnskólaaldri.
    Tónlist:
    ELIS REGINA & ANTONIO CARLOS JOBIM - Aguas de Marco.
    Moses Hightower - Fjallaloft.
    1 hr
  • Ritskoðun barnabóka, Nóbelsverðlaun og risafurur
    Ritskoðun er ekki bara stunduð af stjórnvöldum í einræðisríkjum - hún er daglegt brauð á þúsundum íslenskra heimila, við rúmstokk barna. Er nauðsyn að ritskoða barnabækur eða óþarfi? Hversu langt á að ganga? Af hverju gerir fólk svona mikið af því? Samfélagið birti fyrirspurnir í nokkrum Facebook-hópum sem snúa að börnum, uppeldi og menntun og fékk á fimmta tug svara frá foreldrum og kennurum sem ritskoða bækur. Við ræðum líka við Evu Mattadóttur, markþjálfa og rithöfund en hún hefur mikið velt ritskoðun barnabóka fyrir sér.
    Á þessum tíma árs, ár hvert, kemur í ljós hverjir hljóta hin virtu Nóbelsverðlaun fyrir alls konar vísindi og listir og svoleiðis. Á mánudaginn var tilkynnt að tveir bandarískir vísindamenn myndu hljóta Nóbelsverðlaunin í læknisfræði. Þeir uppgötvuðu míkróRNA, sem hjálpar vísindamönnum að skilja hvernig gen virka í líkamanum. Til að hjálpa okkur að skilja hvað míkróRNA er, ætlar Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, að kíkja til okkar í vísindaspjall.
    Og síðan fáum við pistil frá Esther Jónsdóttur, ungum umhverfissinna. Í honum fjallar hún um risafurur og tímann, tengingar og samfélög.
    Tónlist í þætti:
    MGMT - Mother Nature.
    ELÍN HALL - Rauðir draumar.
    1 hr
  • Hitafundur um Coda Terminal, Stiknun eða króknun? Málfarsspjall um orðmyndanir
    Í dag fjöllum við um umdeilt mál í Hafnarfirði. Mikill hitafundur var haldinn í Bæjarbíói í Hafnarfirði í gær, þar sem kynntar voru breytingar á aðalskipulagi sem tengjast Coda Terminal-verkefninu, svokallaða. Verkefnið hefur mætt talsverðri andstöðu íbúa, og það kom bersýnilega í ljós á fundinum í gær
    Samfélagið var á fundinum í gær og ræddi við kjörna fulltrúa, talsmenn Carbfix, og íbúa Hafnarfjarðar.
    Króknum við eða stiknum í framtíðinni? Við fáum Halldór Björnsson, loftslagsfræðing á Veðurstofunni til okkar í loftslagsspjall. Styrkur koltvísýrings í andrúmsloftinu stendur nú í 422 milljónahlutum, er á niðurleið eftir sumar á norðurhvelinu. Það er árssveiflan - en grafið fyrir síðustu áratugi sýnir skarpa og stöðuga hækkun og samhliða hækkar meðalhiti á jörðinni. Við ræðum við Halldór um hitamet nýliðins sumars, fellibylji, veltihringrás atlantshafsins og hættuna á kólnun á Íslandi.
    Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur kemur svo til okkar í málfarsspjall um orðmyndanir og slettur, meðal annars.
    Tónlist í þættinum:
    Joplin, Janis - Mercedes Benz.
    59 min
  • Getuleysi Sameinuðu þjóðanna, kaffinördismi, reykingar í flugvélum
    Í dag er ár liðið frá hrottalegri árás Hamas á Ísrael - í heilt ár hafa Ísraelsmenn varpað sprengjum á Gaza og nú Líbanon. Sprengjum sem myrt hafa á fimmta tug þúsunda. Fyrir helgi ræddum við við Fidu Abu Libdeh, athafnakonu, sem er uppalin í Palestínu. Í hennar huga er síðastliðið ár brot af miklu lengri sögu átaka og kúgunar. Í dag ætlum við að velta fyrir okkur hvað heimurinn getur gert. Hvers er alþjóðasamfélagið megnugt og hvers vegna stoppa Sameinuðu þjóðirnar þetta ekki af? Við ræðum mátt og máttleysi Sameinuðu þjóðanna við Völu Karen Viðarsdóttur, framkvæmdastjóra Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.
    Og síðan kíkjum við í heimsókn til ungs kaffinörds sem rekur svona hálfgert kaffinördakaffihús á Akureyri. Við pælum aðeins í kaffi: Kaffimenningu, kaffinördisma, kaffiáhrifavöldum. Og við hellum að sjálfsögðu upp á kaffi líka.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kemur svo til okkar með upptöku úr safninu, mál sem klauf samfélagið á sínum tíma, í það minnsta reykfyllt bakherbergi þess.
    1 hr
  • Hafsbotninn í brennidepli, svipmynd af Textílmiðstöðinni á Blönduósi
    Samfélagið heilsar frá tveimur landshlutum í dag. Arnhildur er stödd í Öskju, sem er heimili náttúruvísindanna í Háskóla Íslands. Þar er í gangi haustráðstefna jarðfræðafélags Íslands. Hafsbotninn hefur verið í brennidepli undanfarið - kortlagning hans, námugröftur á hafsbotni - þýðing hans fyrir lífríkið og ég ætla hér á eftir að spjalla við Anett Blischke, jarð- og jarðeðlisfræðing hjá íslenskum orkurannsóknum og Tinnu Jónsdóttur, jarðfræðing og verkefnastjóra Auðlindaeftirlits Orkustofnunar.
    Pétur sendir hins vegar út frá Textílmiðstöðinni á Blönduósi. Við fáum innsýn inn í starfsemina hér; kannski smá svipmynd af samfélaginu hér í kringum miðstöðina. Þar eru sauðfjárbændur að spinna þræði úr alls konar ull, útlenskir listamenn í resedensíum að skapa list og fræðifólk að rannsaka og kenna og pæla. Við ræðum líka við Erlu Arnardóttur, forstöðumann Textílmiðstöðvarinnar.
    Tónlist:
    PRINS PÓLÓ - Læda slæda.
    THE KINKS - Dedicated Follower Of Fashion.
    57 min
  • Lýðræðishrun á útvarpsþingi, Palestínumenn á Íslandi og vísindaspjall um kefír og múmíur
    Hið árlega Útvarpsþing var haldið hér í útvarpshúsinu í dag. Því lauk núna rétt áður en við hófum útsendingu. Á þinginu er fjallað um ýmislegt sem snýr að fjölmiðlum, og kannski sérstaklega Ríkisútvarpinu. Í ár var yfirskrift þingsins fjölmiðlar og fræðsla Við fáum til okkar tvö þeirra sem héldu erindi á þinginu, Skúla Braga Geirdal, verkefnastjóra hjá Fjölmiðlanefnd og Ingunni Láru Kristjánsdóttur, fréttamann og verkefnastjóra fréttaþjónustu á samfélagsmiðlum RÚV. Þeirra erindi fjölluðu einna helst um samfélagsmiðla, í breiðum skilningi. Við ræðum við þau hér í upphafi þáttar.
    Hvernig upplifa Palestínumenn hér á Íslandi orðræðu og umfjöllun um árásir Ísraelsmanna á Gaza og Líbanon? Við ræðum við Fidu Abu Libdeh, stofnanda og framkvæmdastjóra nýsköpunarfyrirtækisins Geosilica. Hún fylgist með hryllingnum í heimalandinu úr fjarlægð.
    Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, ræðir kefír og múmíur í spjalli dagsins.
    Tónlist:
    Hjálmar - Allt er eitt.
    HATARI - Klefi _ Samed (ft. Bashar Murad).
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners