Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Hvað verður um fötin? Líkamsrefsingar og tæplega 300 ára gamalt morðmál
    Örlítill hluti fatnaðar sem íslendingar losa sig við ratar í endursölu og nær allur textíll er sendur í endurvinnslu til útlanda. Á föstudaginn fjölluðum við ítarlega um tísku og áhrif hennar á umhverfið og við höldum því áfram í dag. Í morgun fórum við í heimsókn í flokkunarstöð Rauða krossins og fræddumst um örlög textílsins sem við losum okkur við.
    Það var fyrst árið 2009 sem leitt var í lög skýrt bann við því að beita börn líkamlegum refsingum hér á landi. Ísland var eftirbátur margra nágrannaríkja sem bönnuðu þessar refsingum áratugum fyrr. Ingólfur V Gíslason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, hefur undanfarið rannsakað orðræðuna í kringum líkamsrefsingar barna og við ræðum við hann á eftir.
    Við ljúkum svo þættinum á heimsókn í Þjóðskjalasafn Íslands. Þar ætlar Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir, verkefnastjóri heimildaútgáfu að fara með okkur tæp 300 ár aftur í tímann á nokkuð ógnvænlegar slóðir.
    Tónlist og stef í þættinum:
    MAC DEMARCO - Salad Days.
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    1 hr
  • Föt, tíska og umhverfið
    Í dag fjöllum við um föt. Við fjöllum um föt sem við kæðumst og föt sem við kaupum og klæðumst aldrei, og áhrif þeirra á umhverfið. Síðasta áratug hafa fatahönnunarnemendur í Listaháskóla Íslands hannað og framleitt föt úr óseljanlegum fötum úr fatasöfnun Rauða krossins, og í tilefni þess var haldið málþing um tísku og umhverfi í Norræna húsinu, á vegum LHÍ og Umhverfisstofnunnar. Við ræðum við kennara, sérfræðinga og nemendur sem tengjast verkefninu og ræðum um áhrif tískunnar á umhverfið.
    Tónlist í þættinum:
    THE TEMPTATIONS - Get Ready.
    59 min
  • Minningardagur trans fólks, rýnt í gestabækur reðasafnsins, átök um fjármagn á COP 29
    Í gær var haldin minningarstund í húsnæði Samtakanna 78. Tilefnið var minningardagur trans fólks sem haldinn er árlega, þann 20. nóvember, þar sem þess trans fólks sem hefur verið myrt eða tekið eigið líf er minnst. Við fórum í heimsókn síðdegis í gær til að fylgjast með undirbúningi athafnarinnar og ræða við skipuleggjendur.
    Gestabækur geta veitt innsýn inn í skoðanir, viðhorf og tilfinningar þeirra sem í þær skrifa og gildi þeirra sem sagnfræðileg heimild hefur aukist á síðustu árum. Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í sagnafræði, hefur rannsakað gestabækur Hins íslenska reðasafns og hann kíkir í heimsókn og segir okkur frá ýmsu gáfulegu sem birtist í bókunum.
    Og síðan heyrum við tólfta innslag Þorgerðar Maríu Þorbjarnardóttur, formanns Landverndar, sem er á COP29-ráðstefnunni í Aserbaídjan.
    59 min
  • Kolefniseiningamarkaður, Dularfullt símasambandsleysi í Breiðholti, Öldrun flugna
    Getur Ísland náð markmiðum sínum í loftslagsmálum með því að framleiða eða kaupa kolefniseiningar? Á ríkið að selja fyrirtækjum sem vilja rækta kolefnisskóga land? Og hvernig á að tryggja að kolefniseiningar sem eru framleiddar eða keyptar geri gagn, dragi úr losun eða þoki heiminum nær kolefnishlutleysi?
    Við ætlum að fjalla um kolefniseiningar, kaup og sölu á þeim en starfshópur um stöðu og tækifæri til viðskipta með kolefniseiningar hér á landi, skilaði í gær skýrslu með tillögum sínum, eftir rúmlega árs vinnu. Jónas Friðrik Jónsson, hæstaréttarlögmaður leiddi starfshópinn og hann spjallar við okkur í upphafi þáttar.
    Og í neyslusamfélaginu í dag rannsökum við dularfullt símasambandsleysi í Breiðholtinu. Á Facebook-síðu íbúasamtakanna Betra Breiðholts greina margir íbúar frá óútskýrðu sambandsleysi víða í hverfinu. Við fáum til okkar sérfræðing til að reyna að skilja mögulegar ástæður og átta okkur á því hvað sé til ráða.
    Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, mætir svo glóðvolg í vísindaspjallið í síðari hluta þáttarins.
    Tónlist í þættinum:
    BIG THIEF - Certainty.
    Wilson, Steven - Personal Shopper.
    57 min
  • Innslag frá COP29 í Bakú, loftslagsspjall við Mikael Allan Mikaelsson, málfarsspjall um stórforeldri
    COP29, loftslagsráðstefna Sameinuðuþjóðanna, fer nú fram í Bakú í Aserbaísjan. Meðal yfirlýstra markmiða ráðstefnunnar er að marka stefnu til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis á heimsvísu. Gestgjafaþjóð ráðstefnunnar, Aserbaísjan, er hins vegar mikil jarðefnaeldsneytisþjóð, og erfitt gæti orðið að sannfæra stjórnvöld þar í landi, og víðar, að breyta út af venjunni. Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, er á ráðstefnunni. Hún hefur verið með regluleg innslög í Samfélaginu undanfarið og í dag segir hún okkur aðeins nánar frá jarðefnaeldsneytisþjóðinni Aserbaísjan.
    Og við höldum okkur við loftslagsmálin, vindum okkur í loftslagsspjallið að þessu sinni við Mikael Allan Mikaelsson, sérfræðing í loftslagsmálum og stefnumótun. Hann starfaði í tæpan áratug fyrir bresku utanríkis-, orku- og iðnaðarráðuneytin, hlaut MBE-orðu bresku krúnunnar - kannski einhvers konar hliðstæðu íslensku fálkaorðunnar, starfar nú hjá Stocholm Environment Institute og er einn af helstu höfundum nýja evrópska loftslagsáhættumatsins - en við ætlum ekki bara að ræða feril hans og afrek heldur fyrst og fremst heyra hvað honum finnst um stöðuna í loftslagsmálum, vænlegar aðgerðir og áherslur til framtíðar.
    Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur, mætir í málfarsspjall og ræðir meðal annars orðið stórforeldri.
    Tónlist:
    Mars Volta - Aegis.
    1 hr
  • 100 ferðir á Fálkafell, COP29 í Bakú, Alþingiskosningar 1949
    Fálkafell er gamall skátaskáli ofan Akureyrar. Skátaflokkurinn Fálkar reisti skálann árið 1932 og hann er alla jafna læstur nema skátarnir séu eitthvað að brasa þar - en vinsældir hans hafa stóraukist á árinu, allavega vinsældir gönguleiðarinnar þangað. Á hverjum degi gengur fjöldi fólks frá bílastæði við Súluveg upp nokkuð brattan vegslóða sem liggur að skálanum. Svo virðist sem auknar vinsældir leiðarinnar megi rekja til þeirra Heiðrúnar Jóhannsdóttur og Halldóru Magnúsdóttur sem í byrjun árs ákváðu að fara fimmtíu ferðir á fellið en stefna nú á hundrað - og halda utan um Fálkafells-samfélagið á Facebook-síðunni: 100 ferðir á Fálkafell.
    Hversu mikið fjármagn eiga þróuð ríki að veita þróunarríkjum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og vinna gegn skaðlegum afleiðingum hamfarahlýnunar. Þetta er meðal þess sem er rætt á COP-loftslagsráðstefnunni í Bakú í Aserbaídjan þessa dagana og Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, er þar að fylgjast með. Þorgerður María hefur verið með regluleg innslög í þáttinn síðustu vikur og í dag heyrum við tíunda innslag Þorgerðar í Samfélagið.
    Og við rifjum síðan upp kosningaumfjöllun frá því um miðbik tuttugustu aldar, ásamt Helgu Láru Þorsteinsdóttur, safnstjóra RÚV, og heyrum hvað hefur breyst í íslenskum stjórnmálum síðan, og hvað hefur haldist óbreytt.
    Tónlist og stef í þættinum:
    MITSKI - Bug Like an Angel.
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    JAMES BLAKE - The Wilhelm Scream (spilar á Sónar 2013).
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    Davis, Miles - Honky Tonk.
    1 hr
  • Sjálfstæðisdagur Póllands, Íslenskusénsinn og COP-29
    Á mánudaginn, 11. nóvember, var sjálfstæðisdagur Póllands haldinn hátíðlegur víða - meðal annars á Amtsbókasafninu á Akureyri. Á þessu ári voru 22 þúsund landsmanna fæddir í Póllandi og pólska innflytjendasamfélagið er það stærsta hér - nokkuð fjölmennara en á Akureyri. Við hittum á fullorðna og börn sem voru að fagna sjálfstæðisdeginum, fræddumst um hann og ekki síst um pólska samfélagið á Akureyri þar sem meðal annars er rekinn pólskur skóli með fjárhagslegum stuðningi pólska sendiráðsins.
    Á Ísafirði er verkefnið Gefum íslensku séns starfrækt, sem hefur það að markmiði að efla notkun íslenskunnar í samfélaginu og auðvelda innflytjendum að læra málið. Þau eru að undirbúa dagskrá í tilefni Dags íslenskrar tungu á morgun þar sem hvatningarverðlaunin Íslenskusénsinn verða afhent í fyrsta sinn. Gréta Sigríður Einarsdóttir fékk að heyra meira
    Og síðan fáum við níunda innslagið frá Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formanni Landverndar, sem er á COP-loftslagsráðstefnunni í Aserbaídjan
    59 min
  • Lyfjatengd andlát, vímuefni, geðheilbrigði og olíudropar á COP29
    Síðustu daga og vikur hefur talsvert verið fjallað um lyfjatengd andlát. Landlæknir birti nýlega tölur sem sýndu að árið 2023 urðu 56 andlát á Íslandi sem rekja mátti til eitrunar vegna ávana- og fíkniefna. Ein manneskja sem lést af völdum lyfjaeitrunar í hverri einustu viku, allt árið 2023, og rúmlega það. Þessi andlát eru birtingamyndir vandamála í heilbrigðiskerfinu, félagslega kerfinu, velferðarkerfinu, og víðar, og í dag fjöllum við um þessi vandamál.
    Við ræðum við Kristínu I. Pálsdóttur, framkvæmdarstjóra Rótarinnar og formann starfshóps um endurskoðun á stefnu um áfengis og vímuvarnir, og Grím Atlason, framkvæmdarstjóra Geðhjálpar.
    Við könnum líka hinar ýmsu hliðar COP-loftslagsráðstefnunnar í Baku í Aserbaídjan, í gegnum tvo pistla – annars vegar frá Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formanni Landverndar sem er á ráðstefnunni, og hins vegar Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi og föstum pistlahöfundi Samfélagsins.
    Tónlist úr þættinum:
    Marcin Wasilewski - Roxana's song.
    Marcin Wasilewski - Hyperballad.
    55 min
  • Er Ísland herlaust í raun? Lýðræðisþátttaka ungs fólks, vísindaspjall
    Ísland er stofnaðili að Atlantshafsbandalaginu, hér fara fram heræfingar og íslenskir ríkisstarfsmenn starfrækja loftvarnarkerfi. Ísland telst engu að síður herlaust land - og fólk stærir sig oft af því á alþjóðavettvangi - en stenst það? Bjarni Már Magnússon, prófessor og deildarforseti lagadeildar háskólans á Bifröst, hefur undanfarið velt því fyrir sér hvort þetta sé allt saman nógu gagnsætt.
    Hefur ungt fólk aðgang að lýðræðislegri umræðu? Skiptir lýðræðisleg þátttaka ungs fólk bara máli í aðdraganda kosninga, þegar stjórnmálaflokkar vilja tékka í box og sækja atkvæði til að endurnýja umboð sitt? Við ræðum við Söru Þöll Finnbogadóttur, stjórnmálafræðing, sem var að gefa út handbók fyrir ungt fólk sem hefur meðal annars það markmið að skapa umræðu meðal ungs fólk um lýðræði og kosningar og hvernig ungt fólk getur haft áhrif í lýðræðissamfélagi.
    Edda Olgudóttir, vísindamiðlari, kemur til okkar í Vísindaspjall og verður á genafræðilegum nótum.
    Tónlist og stef:
    DOPAMINE MACHINE - Hanagal.
    59 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners