Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Loftlagsmót, gróðureldar og slökkviliðsfólk, málfar og hamfaraldrar
    Samfélagið kíkti á loftlagsmót á Grand Hótel og forvitnaðist um hvað þar fór fram. Pétur Pétursson slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu: gróðureldar, viðbúnaður við þeim og staða slökkviliðsfólks. Málfarsmínúta Edda Olgudóttir: vísindaspjall um hvernig hamfarahlýnun eykur líkurnar á fleiri heimsfaröldrum.
    55 min
  • Rannsókn á gróðureldum, tölvuleikur, ruslarabb og spjalla um slettur
    Þröstur Þorsteinsson prófessor í umhverfis- og auðlindaverkfræði HÍ rannsakar gróðurelda á Íslandi, hættuna á þeim, útbreiðslu og viðbrögð. Brynja Ingadóttir dósent í hjúkrunarfræðingTölvuleikur til að undirbúa börn fyrir svæfingu eða aðgerð á spítala Ruslarabb um kertavax Málfarsspjall um slettur, Anna Sigríður Þráinsdóttir
    55 min
  • Hafréttur og hækkandi sjávarborð, veiðikort, málfar og neytendaaðstoð
    Hvaða áhrif hefur það á tilkall ríkis til hafsvæðis þegar yfirborð sjávar hækkar og landsvæði færist á kaf? Dr. Snjólaug Árnadóttir lektor við Háskólann í Reykjavík. Veiðikortakerfið íslenska er 25 ára um þessar mundir - Áki Ármann Jónsson formaður Skotvís. Málfarsmínútan - Guðrún Línberg Guðjónsdóttir. Evrópska neytendaaðstoðin veitir hollráð á ferðalögum erlendis - Ívar Halldórss stjórnandi evrópsku neytendaaðstoðarinnar.
    55 min
  • Börn og netið, Ásdís Thoroddsen, málfarsmínúta og verndun villtra dýra
    Umboðsmaður barna kynnti í morgun nýjar leiðbeiningar til foreldra, ábyrgðaraðila og starfsfólks í skóla- og frístundastarfi sem varða netið, samfélagsmiðla og börn - Salvör Nordal, umboðsmaður barna. Þrjátíu ár eru nú síðan kvikmyndin Ingaló var frumsýnd - Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður segir frá myndinni og heimildamyndum sem hún hefur gert síðan. Málfarsmínúta - Guðrún Línberg Guðjónsdóttir. Dýraspjall um verndun villtra dýra á Íslandi - Snorri Sigurðsson sviðsstjóri hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.
    55 min
  • Bændablaðið, inngilding, lífrænn úrgangur og ruslarabb
    Bændablaðið nýtur mikilla vinsælda og er dreift víða. Nýr ritstjóri tekur við blaðinu 1. júní - Guðrún Hulda Pálsdóttir ritstjóri. Inngilding er þýðing á enska orðinu inclusion og nær yfir þær aðferðir og aðgerðir sem miða að því að sem flestir hópar og einstaklingar séu virkir þátttakendur í samfélaginu - Snorri Rafn Hallsson ræðir við Björgu Árnadóttur og Miriam Petru Ómarsdóttur Awad. Hafdís Hanna Ægisdóttir flytur pistil um lífrænan úrgang og jarðgerð. Eiríkur Örn Þorsteinsson hjá Sorpu ræðir um hvernig maður losar sig við gömul segulbönd; videospólur og hljóðsnældur.
    55 min
  • Íþróttir fyrir alla, erfðanefnd, málfar og ljóstillífun
    Hvernig er hægt að mæta þeim sem vilja æfa íþróttir án þess að þurfa að beygja sig undir kröfur um afreksmennsku og verðlaun? Sveinn Þorgeirsson doktorsnemi og kennari í íþróttafræði við HR. Hvað gerir Erfðanefnd landbúnaðarins og hvers vegna er mikilvægt að standa vörð um erfðaauðlindir? Halldór Runólfsson formaður Erfðanefndar landbúnaðarins. Málfarsmínúta - Guðrún Línberg Guðjónsdóttir. Ljóstillífun og erfðir - Edda Olgudóttir.
    55 min
  • Hús íslenskunnar, rafbílaferðalög og snyrtilegt umhverfi
    Hús íslenskunnar rís nú við Arngrímsgötu í Vesturbæ Reykjavíkur. Samfélagið heimsótti húsið - Guðrún Nordal forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hvað blasir við rafbílaeigendum þegar haldið verður út á vegi landsins ferðasumarið 2022? Tómas Kristjánsson formaður Rafbílasambandsins. Páll Líndal umhverfissálfræðingur flytur pistil.
    55 min
  • Kolefnislosun, vegaframkvæmdir á Vestfjörðum, rusl, málfar og fléttur
    Þóróddur Sveinsson jarðræktarfræðingur og deildarforseti við Landbúnaðarháskólann og Jóhann Þórsson, vistfræðingur hjá Landgræðslunni: Er losun kolefnis frá landbúnaði, þar sem land er ræst fram með skurðum, ofmetin? Ný rannsókn Landbúnaðarháskólans virðist benda þess - en Landgræðslan segir það ekki vera svo. Hvort er það? Hulda Birna Albertsdóttir deildarstjóri og starfandi forstöðumaður: Nú standa yfir miklar vegaframkvæmdir á sunnanverðum Vestfjörðum þar sem meðal annars á að þvera þrjá firði. Þessu fylgir mikið rask fyrir umhverfið og mikilvægt að fylgjast með og tryggja að umhverfisáhrifin verði ekki meiri en lagt er upp með - og raunar bara sem minnst. Náttúrustofa Vestfjarða gegnir þar lykilhlutverki. Ruslarabb um frágang á rafmagnsplastleikföngum Málfarsmínúta Starri Heiðmarsson fléttufræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands með pistil um samband fléttusveppa við ljóstillífandi félaga.
    55 min
  • Ráðstefna um Alþjóðasamvinnu, málfar og stökklar
    Samfélagið sendir beint út frá ráðstefnu í Norræna húsinu sem ber heitið Alþjóðasamvinna á krossgötum - Hvert stefnir Ísland. Rætt var við tvö þeirra sem fluttu framsögu á ráðstefnunni, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Albert Jónsson. Fjallað um öryggismál á norðurslóðum og stöðu alþjóðastofnana- og samstarfs. Málfarsmínúta Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners