Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

By RÚVArts
Download on the App Store

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur episodes

  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fyrrverandi ráðherra og þingmaður hætti á þingi fyrir nokkrum mánuðum og gerist eftir nokkra daga sendiherra Íslands í London. Hún fer yfir ferilinn og ákvörðunina um að bjóða sig ekki fram til formanns, ákvörðun sem var henni erfið. Hún ræðir líka æskuárin á Akranesi, hvað mótaði hana mest og hvað framundan er.
    41 min
  • Rósa Ólöf Ólafíudóttir
    Rósa Ólöf Ólafíudóttir ólst upp í mikilli fátækt og bjó á mörgum vistheimilum þar sem hún hlaut misgott atlæti. Hún þráði ekkert heitar en að fá að búa hjá móður sinni sem þráði að hafa börn sín hjá sér en fékk ekki. Rósa vinnur nú að því að skrifa sögu bróður síns heitins, Lalla Johns.
    42 min
  • Sema Erla Serdaroglu
    Sema Erla Serdaroglu hefur verið áberandi undanfarið ár í baráttu fyrir réttindum flóttafólks. Hún hefur fengið hótanir í ýmsu formi síðan hún hóf að vinna fyrir þennan hóp og hefur ekki tölu á öllum þeim hótunum sem henni hafa borist. Gjarnan er vísað í uppruna hennar en Sema er hálf tyrknesk en hefur alltaf búið á Íslandi, gekk hér í skóla og er fermd til kristinnar trúar þó hún aðhyllist engin sérstök trúarbrögð í dag. Hún ræðir ofsóknirnar, baráttuna og unglingsárin þar sem örlagarík ferð á Neyðarvistun Stuðla breytti miklu í hennar lífi.
    43 min
  • Auður Guðjónsdóttir
    Auður Guðjónsdóttir hefur í yfir þrjá áratugi barist fyrir rannsóknum á mænuskaða eftir að Hrafnhildur dóttir hennar lamaðist í alvarlegu bílslysi. Við heyrum sögu Auðar og Hrafnhildar heitinnar í þættinum í dag.
    44 min
  • Patrik Atlason
    Þegar Patrik Atlason var lítill ætlaði hann að verða betri en pabbi sinn í fótbolta. Þegar það gekk ekki eftir sneri hann sér alfarið að tónlistinni og það hefur heldur betur skilað sér enda er hann einn vinsælasti tónlistarmaður landsins í dag. Hann reynir ekki að fela hvaðan hann kemur og segist hafa fengið meira en margir aðrir. Hann ræðir lífið, ferilinn og áfallið sem mótaði fjölskylduna þegar frændi hans var myrtur.
    42 min
  • Gerður Jónsdóttir - Gerða Inshape
    Íþróttafræðingurinn Gerða Jónsdóttir hefur slegið í gegn með líkamsræktarnámskeið sín undir nafninu Inshape. Hún ræðir æskuna í Mosfellsdalnum, íþróttirnar, sáran systurmissi, áföll og hvernig getur hjálpað manni á öllum aldursskeiðum.
    45 min
  • Bríet Ísis Elfar
    Söngkonan Bríet hefur verið lengi í sviðsljósinu þrátt fyrir ungan aldur. Hún var 16 mánaða þegar hún byrjaði að fara í svett indjánaathafnir með móður sinni sem hún segir hafa mótað sig mikið. Hún ræðir bernskuna, ferilinn og það sem framundan er.
    43 min
  • Gulla Bjarnadóttir
    Gulla Bjarnadóttir átti óvenjulega æsku. Fyrsta árið var hún vistuð á barnaheimili þar sem foreldar hennar deildu um forræði yfir henni. Móðir hennar var andlega veik og faðir hennar glímdi við alkhólisma en hann fékk á endanum forræðið yfir henni. Hann hvarf oft í nokkra daga þegar hann datt í það en móðir hennar brýndi fyrir henni að láta engan vita af því svo kerfið myndi ekki skipta sér af. Hún var oft með móður sinni á geðdeild sem barn og segir hafa verið hálfgerður heimalningur þar. Þrátt fyrir óvenjuleg og erfið bernskuár segist hún engu vilja breyta þar sem reynslan geri hana að því sem hún er í dag.
    42 min

About Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

From the publisher's feed

Gestur úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir

More shows like Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

17 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners

True crime Ísland by True Crime Ísland

True crime Ísland

3 Listeners