
Sign up to save your podcasts
Or


Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Guðmund Ólafsson hagfræðing um nýjar tillögur ríkisstjórnar í húsnæðismálum, loftlagsmálin, Styrkivexti sem skila ekki tilætluðum árangri -- og fleira gott 30. okt. 25
Mr. He Rulong, Kínverski Sendiherrann á Íslandi verður hér í viðtali á Sögu í dag og ræðir um mikilvægustu málin í Kína - samskipti þeirra við Bandaríkin - heimsókn Höllu Tómasdóttir Forseta Íslands til Kína - opnun fiskimarkaða í Kína gagnframt Íslenskum fyrirtækjum - uppsveiflu fjármálamarkaðarins í Kína - hvað er helst að sjá í Kína og síðan er tekið við símtölum frá hlustendum. -- 30. okt. 2025
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Fjölnir Sæmundsson rannsóknarlögreglumaður og formaður Landssambands lögreglumanna um störf lögreglunnar. Hvað segja lögreglumenn um ábyrgð ríkislögreglustjóra á fjármálagjörningum við verktaka og starfsmenn sem gegna ekki lögreglustörfum. 29. okt. 2025
Stjórnmálaumræðan: Pétur Gunnlaugsson ræðir við Ólaf Adólfsson nýkjörinn þingflokksformann og alþingismann Sjálfstæðisflokksins í Umhverfis- og Samgöngunefnd um atvinnuástandið í norð-vesturkjördæmi eftir spenna-bilunina á Grundartanga. -- 28. okt. 2025
Netsvindl: Guðrún Kristín Ívarsdóttir miðill og heilari ræðir við Arnþrúði Karlsdóttur um varasamar blekkingar á netinu og hlustendum gefst kostur á að hringja í útsendinguna í síma 588 1994 og ræða um netsvindl. -- 24. okt. 2025
Rafbílar: Kristján Örn Elísson ræðir við Egil Jóhannsson forstjóra Brimborgar um stöðuna á bílamarkaði, innflutningur á nýjum bílum og verðbreytingar og skattaálögur á eigendur bifreiða. -- 23. okt. 2025
Stjórnmálaumræðan: Pétur Gunnlaugsson ræðir við Arnar Þór Jónsson lögmann og formann Lýðræðisflokksins um breytingar á stjórnarháttum Alþingis þegar Ísland gerðist aðili að EES samningnum fyrir rúmum 30 árum. Alþingi var gerð að einni málstofu en hafði áður verið í efri og neðri deild þingsins. -- 23. okt. 2025
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson alþingismann og fyrrverandi utanríkisráðherra um varnarsamningurinn við Bandaríkin og undirritun núverandi utanríkisráðherra undir viljayfirlýsingu um tvíhliða milliríkjasamning í varnar og öryggismálum við Þjóðverja. Mikilvægi hafnarsvæða við Ísland og Evrópusambandið. -- 22. okt. 2025
Pétur Gunnlaugsson og Haukur Hauksson ræða við Ólaf Ragnar Grímsson fyrrverandi forseta Íslands um Hringborð norðursins og mál Norðurslóða, ásamt öðrum málum sem tengjast heimsmálum þessa tíma. Einnig hringja hlustendur inn í þættinum og koma með spurningar. -- 21. okt. 2025
Upphaf og endir umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu í stjórnartíð Jóhönnu og Steingríms. Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Jón Bjarnason fyrrverandi sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra sem átti sæti í þeirri ríkisstjórn. Gríðarlega margt gekk á eftir bankahrunið og stóra málið var umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Arnþrúður og Jón Bjarnason rifja þetta tímabil upp. 20. okt. 2025
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

468 Listeners

138 Listeners

129 Listeners

2 Listeners

19 Listeners

67 Listeners

28 Listeners

21 Listeners

0 Listeners

0 Listeners

15 Listeners

34 Listeners

14 Listeners