
Sign up to save your podcasts
Or


Gísli er Skipstjóri á Páli Jónssyni og er 71 árs og ann að. 55 ár til sjós og 48 ár sem Skipstjóri. Gísli fer yfir bóksaflega allt saman og það stærsta sem lifir í minningunni er þegar hann og áhöfn misstu mann útbyrðis á brjálaða hrygg fyrir vestan í einu versta veðri sem Gísli hefur orðið vitni af.
2 tímar af sögum og minningum með Gísla.
í þessum þætti hitti ég Valdemar Víðátta. Hörku viðtal við Valdemar þar sem hann fer djúpt í sínar minningar, td þegar Dísarfell fór niður og þegar hann barðist í brjáluðu veðri í tvo tíma í sjónum og margt fl.
2 tímar af Sjósögum
Það þarf varla að kynna manninn en Sæmi Páls er viðmælandi þáttarins. Sæmi er fæddur 1949 og er Akureyringur í húð og hár. Sæmi á heilmikla sögu á sjónum og segir frá öllu því helsta.
Í þessum þætti fór ég norður til Akureyrar og tók viðtal við Ívar Baldursson. Ívar er fæddur 1942 og á mikinn og stóran feril á sjónum og hefur verið víða. hans eftirminnilegasta atvik á sjónum var þegar þeir fengu brot á sig og fylltu brúnna af sjó. Ívar hefur verið vitni af þremur dauðsföllum á sjó, meðal annars fósturpabba sínum. Ívar segir frá allri sinni sögu frá A-Ö
Eyjamaðurinn Emil Sigurður Magnússon fer yfir alla sína sögu. Hann er í dag 1. Stýrimaður á Júlíusi Geirmundssyni ÍS-270. Það má segja að hann hefur kisst 50% af öllum flotanum. Skemmtilegur kall í alla staði.
Kristinn Gestsson eða Diddi eins og hann er oft kallaður er viðmælandi dagsins.
Hann er meðal annars fyrverandi skipstjóri á Snorra Sturlussyni Ve 28 og Þerney RE 101. Hann kemur að vestan og við þræðum söguna þaðan og förum í gegnum sjóferilinn og endum í hampiðjunni. Magnaður ferill hjá Didda.
Kristinn Gestsson var til sjós í 48 ár og skipstjóri í 38 ár⚓️
Bergur Garðarsson er viðmælandi þáttarins. Hann hefur verið til sjós í 45 ár og hefur verið á öllum veiðarfærum og lent í slæmum atvikum.
Beggi er að Akureyringur og er sögumaður að bestu gerð
Þorvaldur Guðmundsson er fæddur 1939 og byrjaði til sjós 1955, Í þessu viðtali segir Þorvaldur frá öllum sínum ferli, en hann hefur komið víða við meðal annars í Noregi og Argentínu.
Í þessum þætti spjalla ég við Chyntiu. Cynthia er 21 árs sjókona frá Hellisandi og við spjöllum um hve erfitt er fyrir konur að komast á sjóinn og margt fl. Hún hefur lokið Vélavörðinn og kláraði Fisktækninn. Hún hefur verið á sjó m.a. á Klakk ÍS 903, Kap VE 7, Jón á hofi og Fróða.
Í þessum þætti varð Árni Rúnar fyrir valinu og förum yfir hans sögu. Árni er 1. Stýrimaður á Björg EA7. og á um 20 ára Feril. Alltaf flottur hann Árni
From the publisher's feed