
Sign up to save your podcasts
Or


Andri og Ólafur komu saman til að ræða um Júgóslavíu sem sögulegt fyrirbrigði, stofnun hennar og fyrstu áratugi þess ríkis 1918-1941.
Júgóslavía (Konungsríki Serba, Króata og Slóvena) varð til 1. desember 1918 við samruna Serbíu, Svartfjallalands, og suður-slavnesku landsvæðanna sem áður höfðu tilheyrt Austurríki-Ungverjalandi, Króatíu, Slóveníu og Bosníu. Ríkið var afleiðing Friðarráðstefnunnar í París, og Serbía var eitt af sigurvegararíkjum fyrri heimsstyrjaldar.
Júgóslavismi sem þjóðernishyggja Suður-Slava á rætur að rekja til 19. aldar. Króatar og Serbar lögðu ólíkan skilning í framkvæmd hennar vegna mismunandi sögu og reynslu þjóðanna. Segja má að sambúðin hafi verið strembin frá upphafi, en Júgóslavía flosnaði upp árið 1941 í kjölfar innrásar Öxulveldanna í síðari heimsstyrjöld.
Þessi þáttur er fyrri hluti umræðna um Júgóslavíu. Í síðari hluta verður rætt um sósíalísku Júgóslavíu eftir stríð, sem flosnaði aftur upp á 10. áratugnum.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um síðustu ár Austurríkis-Ungverjalands og þáttöku þess í fyrri heimsstyrjöld.
Austurríki-Ungverjaland var eitt þeirra gömlu keisaradæma sem féll eftir stríðið mikla 1914-1918, og tvístraðist í hin ýmsu þjóðríki. Fyrri heimsstyrjöld hófst þegar Austurríki-Ungverjaland lýsti yfir stríði gegn Serbíu eftir morðið á austurríska ríkiserfingjanum Franz Ferdinand í Sarajevo í júní 1914. Austurríki leið gríðarlega ósigra á vígstöðvunum í Galisíu gegn Rússum veturinn 1914-1915 og urðu þeir til þess að austurrísk-ungverski herinn var hreinlega þurrkaður út.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um J. Robert Oppenheimer og fæðingu kjarnorskusprengjunnar
Ólafur las bókina American Prometheus: The Triumph and Tragedy of J. Robert Oppenheimer eftir Kai Bird and Martin J. Sherwin en eftir henni var gerð kvikmynd um vísindamanninn með sínar ýmsu hliðar sem fékk mikla athygli á síðasta ári.
Kjarnorkusprengjan var afrakstur rannsókna vísindamanna frá mörgum löndum og í stríðinu voru öll helstu stórveldin með einhverskonar kjarnorkuverkefni í gangi. Það voru Bandaríkjamenn sem kláruðu verkefnið og urðu til þess að beita þessu gereyðingarvopni í fyrsta og eina sinn árið 1945, og má segja að Sprengjan hafi haldið heiminum í heljargreipum allar götur síðan fram á þennan dag.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn rómarkeisarann Konstantínus I, sem er einn þeirra sem fengið hafa nafnbótina hinn mikli.
Konstantínus ruddist til valda í Rómaveldi árið 306 eftir talsvert valdabrölt innan fjórveldisins sem Díókletíanus kom á laggirnar eftir þriðju aldar kreppuna. Hann varð einvaldur árið 324 og ríkti sem slíkur í 19 ár. Var hann þaulsetnasti rómarkeisarinn á eftir Ágústusi.
Konstantínus hélt áfram umbótum Díokletíanusar og kom á stöðuleika í nokkur ár. Umgjörð síðrómverska ríkisins og síðar austrómverska ríkisins er arfleifð hans en hann stofnaði nýja höfuðborg Rómaveldis í Nýju Róm, Konstantínópel, sem átti eftir að vera miðpunktur nýs Rómaveldis í meira en þúsund ár. Þar fyrir utan var Konstantínus fyrsti kristni rómarkeisarinn og vann hann ötullega að því að koma kirkjunni á koppinn, en fyrir hans daga voru kristnir menn reglulega ofsóttir í Rómaveldi.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur sögu Rómverska keisaradæmisins á 3. öld e. kr. en þá geisaði hin svonefnda þriðju aldar kreppa, sem varð ríkinu næstum að falli.
Rómaveldi þanndist talsvert út á öldunum í kringum kristsburð. Fyrstu tvær aldir keisaradæmisins eru stundum talin gullöld ríkisins, en á 3. öldinni virtist allt ætla að fara á versta veg fyrir Rómverja. Á "tímabili herkeisaranna" var veldið þjakað af innbyrðis deilum, mjög svo óstöðugum valdaskiptum, klofningi ríkisins, innrásum Persa og Germana og stanslausum hernaði.
Á þriðju öldinni má sjá þróun þeirra þátta sem áttu eftir að einkenna síðrómverska ríkið, m.a. varanlega skiptingu þess í vestur- og austurhluta. Vesturrómverska ríkið féll endanlega á 5. öld.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í framhaldi af umræðum okkar um Al-Andalus ræðum við í þættinum í dag um "endurheimtina", eða reconquista, þegar kristnu ríkin á Íberíuskaga endurheimtu land Vísigota úr höndum múslíma.
Reconquista var ekki eitt stríð, heldur aldalöng hægfara barátta - af og á - á milli hinna ýmsu ríkja múslíma og kristnu konungsríkjanna, Astúrías, Navarra, Kastillíu, Aragon, León og Portúgals. Endurheimtin var oft vettvangur krossferða, einn fárra staða þar sem slíkur hernaður hafði varanlegan ávinning, auk þess sem hún var suðupotturinn sem nútímaríkin Spánn og Portúgal urðu til úr.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur veldi múslima á Spáni 711-1492.
Á 7. og 8. öld breiddist íslam leiftursnökkt út frá Arabíu í allar áttir. Árið 711 féll ríki Vísigota á Íberíuskaga fyrir Aröbum og Berbum frá Norður-Afríku, og á nokkrum árum lögðu múslimar nánast allan skagann undir sig.
Ríki múslima á Spáni var kallað Al-Andalús. Það var hluti av heimsveldi Umayyada, um tíma sjálfstætt emírdæmi og kalífadæmi. Höfuðborgin Cordoba var blómleg heimsborg, sem iðaði af verslun og menningu, en Al-Andalús var einnig þjakað af stanslausum hernaði við kristnu ríkin í norðri. Frá 11. öld þrýstu kristnu ríkin múslímum hægt og rólega sunnar og sunnar. Síðasta vígi múslima á Spáni féll árið 1492 eftir nær 800 ára yfirráð.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í framhaldi af umræðum okkar um Rauða krossinn ræða Söguskoðunarmenn í dag um málefni tengd Genfarsáttmálanum og öðrum alþjóðareglum sem gilda í stríði.
Menn hafa frá örófi alda reynt að hafa einhverjar hömlur á framgangi hernaðar. Í Evrópu á fornöld og á miðöldum þróaðist kenningin um réttlátt stríð, en á 19. og 20. öld urðu til umfangsmiklar alþjóðareglur um stríð og frið, um mannréttindi, og um viðurlög stríðsglæpa.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur sögu Rauða krossins, frá stofnun hans árið 1863 og fram á miðja 20. öld, en á þessu ári eru einmitt 100 ár síðan landsdeild Rauða krossins á Íslandi var stofnuð í desember 1924.
Rauði krossinn er ein stærstu mannúðarsamtök heims með starfsemi öllum ríkjum heims. Höfuðstöðvar alþjóðahreyfingar Rauða krossins hafa alltaf verið í Genf í Sviss, en Alþjóðaráð Rauða krossins og Rauða hálfmánans nýtur sérstakrar stöðu í heiminum, vernduð af alþjóðalögum sem óháð og hlutlaus stofnun á stríðstímum.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í tilefni af 80. þætti hlaðvarpsins bregðum við út af vananum og ræðum eitthvað allt, allt annað...
Við kynnum einnig til leiks nýja vefsíðu þáttarins: Soguskodun.com.
Söguskoðun er einnig á Facebook , og á Youtube.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
From the publisher's feed
Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum.

462 Listeners

141 Listeners

22 Listeners

130 Listeners

90 Listeners

19 Listeners

17 Listeners

27 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

20 Listeners

15 Listeners

12 Listeners

27 Listeners

14 Listeners