
Sign up to save your podcasts
Or


Ólafur og Andri settust niður til að ræða þrjú íslömsk ríki á árnýjöld; Ottómanaríkið, Safavídaríkið í Persíu og Mógúlaríkið á Indlandi, sem stundum hafa verið flokkuð til hinna svokölluðu "púðurvelda", eða gunpowder empires.
Hugtakið er eignað bandarísku heimssögusagnfræðingunum Marshall Hodgson og William McNiell, en þá var vísað til ýmissa þátta sem þessi þrjú ríki áttu sameiginlega, og til þess að þau risu fram sem öflug miðstýrð ríki á persneskum, tyrkískum og íslömskum grunni á öld byssupúðursins. Hugtakið er þó komið til ára sinna og er ekki óumdeilt.
Ottómanaríkið varð til í Anatólíu á 13. öld og varð eitt af stærstu heimsveldum sögunnar. Það réði austurhluta Miðjarðarhafsins þar til veldið leystist upp eftir fyrri heimsstyrjöld. Safavídar og Mógúlar komu komu fram á 16. öld og liðu ríki þeirra undir lok á 18. og 19. öld. Þessi þrjú ríki voru mikilar menningarmiðstöðvar, öflug hernaðarveldi og bjuggu að miklum ríkidæmum, og mætti ætla að þau gætu talist fyrirrennarar nútímaríkjana Tyrklands, Írans og Pakistans.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Andri og Ólafur ræða í þessum þætti gang og afleiðingar Krímstríðsins 1853-1856 milli Rússa annars vegar og Frakka, Breta, Tyrkja og Sardiníumanna hins vegar.
Krímstríðið var fyrsta styrjöldin sem háð var á milli evrópsku stórveldanna eftir Vínarfundinn 1815. Hún var einnig fyrsta stórveldastríðið í Evrópu eftir að iðnbyltingin hóf innreið sína með tilheyrandi tækninýjungum. Þetta var svo að segja fyrsta stríðið sem fékk daglega athygli fjölmiðla heimafyrir, og í fyrsta sinn sem beint var athygli að velferð og heilsu hins óbreytta hermanns á vígvellinum, þar sem m.a. áttu sér stað framfarir í hjúkrun særðra.
Krímstríðið var afleiðing og orsök þess að hið margumrædda valdajafnvægi Evrópukonsertsins fór að sveiflast og skjálfa, og í kjölfar hennar hófst þróun í samskiptum stórveldanna sem leiddi að lokum til fyrri heimsstyrjaldar.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur aðdraganda Krímstríðsins 1853-1856 og hið pólitíska landslag Vínarfundarins í Evrópu sem komið var á laggirnar 1815 þegar Napóleon var yfirbugaður.
Styrjöldin var háð á milli Rússneska keisaradæmisins og bandalags Frakka, Breta, Sardiníumanna og Tyrkja, en hún batt enda á áratuga langt friðartímabil í Evrópu sem kennt hefur verið við evrópska konsertinn, eða "evrópsku hljómkviðuna".
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í tilefni jólanna komu Söguskoðunarmenn saman til að ræða Jesú Jósefsson frá Nasaret, en hann fæddist (samkvæmt vestrænni hefð) á þessum degi fyrir 2727 árum, nánar tiltekið árið u.þ.b. 4 fyrir okkar tímatal. Ólafur setti upp guðfræðingagleraugun og fór yfir helstu atriði um hinn sögulega Jesú í tilefni dagsins.
Eins eins og flestir vita var Jesús krossfestur árið c.a. 30, og eftir hans dag varð til stór trúarhreyfing sem er í dag ein útbreiddustu trúarbrögð heims. En var hann til? Og hvaða heimildir eru til um þennan mann? Er Nýja testamentið einungis trúarrit eða er það sagnfræðileg heimild?
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn sögu Austurríkis á árunum milli stríða, 1918-1938. Austurríki-Ungverjaland var 50 milljón manna fjölmenningarríki sem hrundi eftir fyrri heimsstyrjöld, þjakað af þjóðernisdeilum. Árið 1918 var hið nýja Austurríki 6 milljón manna smáríki með ofvaxna höfuðborg, og glímdi við pólitiskan óróa og efnahagsörðugleika.
Árið 1934 var komið á rammkaþólskri einræðistjórn í Austurríki undir Engilbert Dollfuss, sem var myrtur af nasistum, og eftirmanni hans Kurt Schuschnigg. Stjórnin hefur ýmist verið bendluð við fasisma (Austrofaschismus), eða korporatisma (Ständestaat) en hún barðist hart gegn nasistum og öðrum pan-germanistum sem vildu sameiningu við Þýskaland.
Austurríki var loks innlimað í Þýskaland vorið 1938 í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar, og Adolf Hitler var fagnað með fánum og blómsveigum við innreið sína í gamla heimalandið.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um Kelta á Íslandi og keltnesk áhrif á íslenska menningu, tungumál og sögu.
Norrænir menn komust í mikil tengsl við Kelta á Bretlandseyjum um það leyti er Ísland var að byggjast á árunum 800 til 1000. Enginn vafi leikur á því að hluti landnámsmanna voru frá Bretlandseyjum og af keltneskum uppruna og hefur þetta verið óumdeilt. Ekki allir eru þó sammála um það hve stór hluti landnámsþjóðarinnar voru Keltar, og að hversu stórum hluta keltnesk menning og tunga hefur haft áhrif á íslenska menningu og tungu.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn galdrafárið í Evrópu og galdramálin á Íslandi á 17. öld. Í Evrópu voru tugir þúsunda meintra norna og galdramanna brennd á báli, eða tekin af lífi með öðrum hætti fyrir það að stunda svartagaldur og hvítagaldur. Langstærstur fjöldi þeirra voru konur.
Á Íslandi voru 22 brennd á báli fyrir ástundun galdurs, þar af ein kona. Galdrafárið á Íslandi, ef svo mætti kalla, var helst að finna á Vestfjörðum og stóð hin svokallaða brennuöld yfir á tímabilinu 1625-1690 þegar síðasti brennudómurinn var kveðinn upp.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Andri og Ólafur koma saman í þættinum í dag til að ræða silkiveginn í víðu og þröngu samhengi.
Silkivegurinn er nafið sem loðað hefur við leiðina frá Miðjarðarhafinu (Evrópu og Rómarveldi), í gegnum Mið-Austurlönd og Mið-Asíu og til Kína á fornöld og á miðöldum fram til ca. 1500. Á þessu svæði fór fram verslun, m.a. með silki, en einnig fór þar um straumur hugmynda, trúarbragða, menninga, tungumála og sjúkdóma fram og til baka. Á Silkiveginum risu og féllu öll helstu heimsveldi og trúarbrögð fornaldar, en þar var líka að finna hæstu fjallgarða, þrengstu dali og fjallaskörð og mannskæðustu eyðimerkur heims.
Tvær nýlegur bækur voru ræddar eftir sagnfræðinga sem hafa látið sér málið varða: The Silk Road: A New History eftir Valerie Hansen, og The Silk Roads: A New History of the World eftir Peter Frankopan.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri kenningu sagnfræðingsins Anthony Kaldellis um "býsanska lýðveldið" sem hann birti í bók sinni The Byzantine Republic sem kom út árið 2015. Kaldellis er góðvinur hlaðvarpins enda hefur hann oft borið á góma þegar rætt er um málefni Austrómverska ríkisins. Segja má að bækur hans The Byzantine Republic og Romanland séu uppistöðurit í hans leiðangri að draga fram nýja og líflegri sýn á fyrirbærið sem við köllum Býsanska ríkið.
Með kenningunni um "býsanska lýðveldið" skorar Kaldellis á ríkjandi sýn sagnfræðinga um býsanskt stjórnkerfi og samfélag sem hefur lítt breyst frá miðri 20. öld og því óhætt að segja að hér sé um djarfa kenningu að ræða.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Söguskoðunarmenn komu saman í eigin persónu, í annað sinn síðan hlaðvarpið hóf göngu sína, og ræddu heima og geima áður en haldið var í sumarfrí.
Þessi þáttur er aðgengilegur með hljóði og mynd á Youtube: https://youtu.be/NADuRUF6xn0
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
From the publisher's feed
Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum.

462 Listeners

141 Listeners

22 Listeners

130 Listeners

90 Listeners

19 Listeners

17 Listeners

27 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

20 Listeners

15 Listeners

12 Listeners

27 Listeners

14 Listeners