
Sign up to save your podcasts
Or


Á jóladag 1066 var Vilhjálmur bastarður hertogi af Normandí, krýndur konungur Englands. Rúðujarlinn hafði þá leitt innrás franskra og normanskra riddara til Englands, sem yfirbuguðu húskarla síðasta engilsaxneska konungsins, Haralds Guðnasonar í hinni víðfrægu orrustu við Hastings.
Englendingar hafa síðustu aldir þakkað Ermasundinu sérstöðu sinni sem eyju, varin árásum frá meginlandinu, en innrás Normanna var í síðasta sinn sem slík innrás heppnaðist. Hún hafði víðtæk áhrif á sögu Englands, enda ætti hvert mannsbarn í hinum enskumælandi heimi að þekkja ártalið 1066.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Fyrr á þessu ári ræddum við sögu rússneska keisaradæmisins frá fæðingu þess á miðöldum og fram að þeim tíma er Rússland varð evrópskt stórveldi á 18. og 19. öld. Í þessum þætti ljúkum við þríleiknum með því að ræða fall keisaradæmisins og líf og störf síðasta keisarans.
Nikulás II Rússakeisari er stundum talinn síðasti konungborni einvaldurinn í Evrópu, þótt um þetta megi deila. Hann barðist gegn lýðræðisumbótum og bar síðastur valdhafa forna gríska titilinn "autocrat" framyfir byltinguna 1905 og allt til endaloka keisaradæmisins 1917. Nikulás var myrtur ásamt fjölskyldu sinni árið 1918 af byltingarmönnum.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Arngrímur Jónsson lærði er gamalkunnur góðvinur þáttarins. Arngrímur var höfundur fyrsta Íslandssöguritsins, Crymogæa, sem kom út á latínu árið 1609.
Sem ungur og upprennandi fræðimaður árið 1592 var Arngrímur í Kaupmannahöfn þar sem hann hafði kynnst sagnfræðingum sem höfðu mikinn áhuga á íslenskum fornsögum. Hann hafði með í fórum handrit að bók sem var svo gefin út árið eftir, einnig á latínu. Þetta var Brevis commentarius de Islandia, eða Stutt greinargerð um Ísland.
Brevis var fræðilegt deilurit, samin sem andsvar við "fáránlegum bábiljum og illkvitnislegum og ærumeiðandi skröksögum, sem í þann tíð moraði af í útlendum landafræðiritum og öðrum ritum sem fjölluðu um Ísland", eins og segir í umsögn um verkið frá miðri 20. öld.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í anda hrekkjavökunnar koma Söguskoðunarmenn saman í dag til þess að ræða varúlfa, raðmorðingja og annað skelfilegt.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Tyrkjaránið er vafalaust einn óhuggulegasti atburður Íslandssögunar. Sumarið 1627, á tímum gríðarlegra hallæra og fátæktar á Íslandi, og á hápunkti hins harða lúterska réttrúnaðar, gerðu sjóræningjar (eða víkingar) frá Norður-Afríku, sem þá tilheyrði veldi Tyrkjasoldáns, strandhögg á nokkrum stöðum á Íslandi. Þeir fóru um rænandi hendi, myrtu fólk, brenndu hús og numu á brott hátt í 400 Íslendinga sem seldir voru í þrældóm í Barbaríinu. Af þeim snéru aðeins 27 aftur heim um áratug síðar.
Andri og Ólafur ræða þetta mikla áfall, minningu þess, atburði, aðdraganda og eftirmála.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Eric Hobsbawm (1917-2012) er í hópi fremstu sagnfræðinga 20. aldar. Þekktastur er hann fyrir stórvirki sín um "löngu 19. öldina" 1789-1914, og framhaldið um öld öfganna, "stuttu 20. öldina" 1914-1991. Hobsbawm var kommúnisti alla sína tíð og var einn af fremstu fánaberum marxískrar söguskoðunar úr hópi sagnfræðinga.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þessum síðasta þætti hlaðvarpsins á þessari önn ræða Ólafur og Andri um innrás Sovétríkjanna í Finnland í nóvember 1939, og hið þriggja mánaða langa vetrarstríð sem eftir fylgdi. Fjölmargir illa búnir Rússar urðu hinum "hvíta dauða" að bráð þennan frostavetur, og hin eftirtektarverða vörn Finna vakti aðdáun um heim allan.
Vetrarstríðið hafði þær afleiðingar að Noregur og Danmörk drógust inn í hildarleikinn mikla, síðari heimsstyrjöld, þótt ekkert Norðurlandanna hafi þorað að hjálpa Finnum með beinni hernaðaríhlutun.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í júlí árið 1974 gerðu Tyrkir innrás í Kýpur og hefur hernám þeirra á norðurhluta eyjarinnar staðið yfir í 47 ár. Innrásin er mjög umdeild og hefur verið harðlega gagnrýnd af alþjóðasamfélaginu. Tyrkir segjast hafa verið að vernda tyrnkeska minnilutan á eyjunni, sem hafði verið ofsóttur af Grikkjum, en kýpríska þjóðvarðliðið, stutt af herforingjastjórn Grikkja, hafði skömmu áður framið valdarán með það fyrir marki að sameina eyjuna Grikklandi.
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn sögu Grikklands, Tyrklands og Kýpur á 20. öld og skoða aðdraganda innrásar Tyrkja á Kýpur.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þessum 50-51. þætti hlaðvarpsins í tveimur hlutum ræða Ólafur og Andri ævi og störf mögulega eins frægasta manns sögunnar. Julius Caesar hefur verið sagður einn merkasti stjórnmálaskörungur og herstjórnandi vestursins. Hann var upphafsmaður rómverska keisaradæmisins og eftir hann liggja djúp spor í söguvitund okkar heimshluta.
Í seinni hlutanum ræða Ólafur og Andri feril Caesars frá því hann gerðist landstjóri í Gallíu árið 58 f.kr., Gallastríðin, borgarstyrjöldina í Róm, leiðangurinn til Egyptalands og tíma hans sem diktator til lífstíðar, en sú lífstíð endaði snöggt þegar Caesar var myrtur árið 44. f.kr.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þessum 50. þætti hlaðvarpsins í tveimur hlutum ræða Ólafur og Andri ævi og störf mögulega eins frægasta manns sögunnar. Julius Caesar hefur verið sagður einn merkasti stjórnmálaskörungur og herstjórnandi vestursins. Hann var upphafsmaður rómverska keisaradæmisins og eftir hann liggja djúp spor í söguvitund okkar heimshluta.
Í fyrri hlutanum ræða Ólafur og Andri ævi Caesars fram að því er hann gerðist ræðismaður í Róm árið 59 f.kr.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
From the publisher's feed
Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum.

462 Listeners

141 Listeners

22 Listeners

130 Listeners

90 Listeners

19 Listeners

17 Listeners

27 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

20 Listeners

15 Listeners

12 Listeners

27 Listeners

14 Listeners