Söguskoðun

Söguskoðun

By Söguskoðun hlaðvarpLeisureHistory
Download on the App Store

Söguskoðun episodes

  • 49 - Rússneska keisaradæmið

    Þessi þáttur er sjálfstætt framhald síðasta þáttar um uppruna Rússlands sem stórveldis. Pétur mikli færði höfuðborg keisaradæmisins frá Moskvu, þriðju Róm, vestur til Pétursborgar í upphafi 18. aldar og er sú breyting táknræn fyrir þá áherslu sem Rússar fóru nú að leggja á Evrópu á öllum sviðum.  

    Á 18. öld varð rússneska keisaradæmið að evrópsku stórveldi. Árið 1812 stóðu Rússar uppi sem sigurvegarar yfir Napóleon og á 19. öld varð tsarinn í Pétursborg varðhundur afturhaldsins í álfunni, þar til bolsévikar felldu síðasta einvaldinn í Evrópu árið 1917. 

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 41 min
  • 48 - Þriðja Róm

    Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri sögu Rússlands á miðöldum og frameftir til þess að skoða hvaðan þetta mikla veldi kemur, en hegðun Rússa sem stórveldi hefur verið mikið í umræðunni síðustu misseri.

    Stórfurstadæmið Moskva reis undan valdi Mongóla og austrómversku kirkjunnar á 15. öld og þandist hratt út. Rússland varð þegar fram liðu stundir að einu stærsta ríki veraldar. Samhliða þessu varð til keisaraleg hugmyndafræði byggð m.a. á hugmyndinni um þriðju Róm.  Sumir litu svo á að Moskva væri arftaki Konstantínópel sem verndari austurkirkjunnar. Þannig komust Rússakeisarar í hóp þeirra sem gerðu tilkall til þess að vera arftakar Rómarkeisara.

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 24 min
  • 47 - Strategikon og herkænska Austrómverja

    Hernaður er mikið í deiglunni þessa dagana svo við höldum okkur á þeim nótunum að sinni. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hernað og herkænsku Austrómverska ríkisins en þetta gríska áframhald Rómarveldis átti í stöðugum ófriði við nágrannaþjóðir sína á öllum hliðum, nær stanslaust frá 6. öld og fram á 15. öld. 

    Rómverjar höfðu mikla aðlögunarhæfni, bjuggu vel af digrum sjóðum gulls og óhætt að segja að herkænska þeirra hafi verið frábrugðin því sem við þekkjum úr Vestur Evrópu.

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 20 min
  • 46 - Rússarnir koma!

    Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri innrás Rússa í Úkraínu sem er í brennidepli þessa dagana. Við erum að upplifa sögulega tíma og margir spá því að átökin í Úkraínu og uppgangur kalda stríðins milli vesturlanda og Rússlands sé upphafið að nýju sögulegu tímabili í Evrópu. 

    Fréttaritari hlaðvarpsins í herbúðum NATO í Norður-Noregi segir frá því sem gengið hefur á í fjarvist hlaðvarpsins síðustu vikna.

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 49 min
  • 45 - Leitin að eyjunni hans Ingólfs

    Í desember síðastliðnum kom út ný bók um landnám Íslands: Eyjan hans Ingólfs eftir Ásgeir Jónsson. Í bók Ásgeirs eru meðal annars settar fram kenningar um veiðimennsku og útflutning rostungsafurða á Landnámsöld, en þær hugmyndir eru frekar nýlegar í rannsóknum á landnáminu. Um þetta hefur Bergsveinn Birgisson skrifað í bók sinni Leitin að svarta víkingnum sem kom út á íslensku árið 2016, en Bergsveinn hefur nú sakað Ásgeir um ritstuld, nánar tiltekið hugmyndastuld, og skotið málinu fyrir siðanefnd Háskóla Íslands.

    Landnámið er geysivinsælt málefni innan íslenskrar sögu og hefur málið vakið mikla athygli í fjölmiðlum nú yfir jólin og áramótin. Í þessum fyrsta þætti ársins ræða Ólafur og Andri um Leitina að svarta víkingnum, Eyjuna hans Ingólfs og deiluna sem nú er í gangi um höfundarrétt hugmyndarinnar um "veiðimenningar-efnahag ", eins og Bergsveinn kallar hana, eða " veiðiþræla-viðskiptalíkan", sem Ásgeir kallar hana.

    Cover mynd þáttarins er fengin af forsíðu Eyjunnar hans Ingólfs.

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 35 min
  • 44 - Jólaþáttur 2021 - Jólasögur með Söguskoðunarbræðrum

    Jólasveinar, jólabjór, heiðin jól, neysluhyggja og kapítalismi, jólahefðir, fæðing frelsarans, jólahirðfífl, paradísareyjar, jólalambið og jólagölturinn, jól í skotgröfum og jól undir kommúnismanum. 

    Allt þetta og meira til ræða Söguskoðunarbræður í þessum jóla-special hlaðvarpsins fyrir jólin 2021. 

    Upphafsstef:  Þrjú á Palli - Það á að gefa börnum brauð.  Af plötunni: Hátíð fer að höndum ein, 1971. Troels Bendtsen. Halldór Kristinsson og Edda Þórarinsdóttir. Lag: Þjóðlag. Ljóð: Þjóðvísa.  Útgefandi: Íslenzkir tónar.

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    2 hr 22 min
  • 43 - Hinsegin saga

    Réttindabarátta hinsegin fólks hefur náð fram miklum sigrum og viðhorfsbreytingum á Íslandi síðastliðna áratugi, og sú þróun er enn að eiga sér stað mjög hratt í okkar samtíma. Saga hinsegin fólks hefur verið blóði drifin vegna fordóma og ofsókna, og í sagnaritun hingað til hefur oft verið skautað yfir hinsegin veruleika vegna túlkunar sagnfræðinga eða skorts á heimildum. Nú er hins vegar öldin önnur og mikil gróska hefur verið í hinsegin sagnfræði sem vaxið hefur fiskur um hrygg samfara réttindabaráttu hinsegin fólks. 

    Í þessum síðasta þætti ársins ræða Söguskoðunarmenn um hinsegin fólk í sögunni. 

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 35 min
  • 42 - Slésvíkurvandinn

    Frá miðbiki þarsíðustu aldar og fram á fyrri hluta þeirrar síðustu var stórt vandamál við landamæri Þýskalands og Danmerkur. Hertogadæmin tvö, Slésvík og Holstein, sem verið höfðu í persónusambandi við danska konunginn frá miðöldum, voru orðin að heitu bitbeini milli grannþjóðanna tveggja. Það þurfti tvö stríð og eina heimsstyrjöld til að leysa Slésvíkurvandann svokallaða, en svo nefndist vandamálið: Hvað á að gera við Slésvík?

    Í fyrra, árið 2020, fögnuðu Danir því að 100 ár voru liðin frá því að Norður Slésvík, eða Suður Jótland, kaus að ganga aftur til Danmerkur eftir hálfrar aldar veru innan landamæra Þýskalands. Í þessum þætti ræða Söguskoðunarmenn hvernig þetta kom til og hvernig fór. 

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 25 min
  • 41 - Ágústínus, hernaður og frjáls vilji

    Söguskoðun snýr aftur með nýtt season eftir talsvert hlé. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um heilagan Ágústínus frá Hippo, kirkjuföður og einn af áhrifamestu hugsuðum vestrænnar heimspeki. Ágústínus var uppi á síðfornöld, um það leyti er Rómarveldi var að líða undir lok í vestrinu og kristin kirkja var að fæðast. Hann er alla jafna talinn upphafsmaður kaþólsku kirkjunnar og voru heimspekikenningar hans hafðar í miklum hávegi á miðöldum.

    Eftir hina löngu fjarveru var einnig rætt um breytingar sem orðið hafa í lífi þáttastjórnenda, og í framhaldi af því spunnust langar umræður um hernað í nútíð, fortíð og framtíð. 

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 40 min
  • 40 - Þrjátíu ára stríðið

    Þessi þáttur er einnig aðgengilegur með hljóði og mynd  á YouTube.

    Hlaðvarpið Söguskoðun snýr snögglega aftur úr sumarfríi með sérstakan sumar-special í tilefni þess að báðir meðlimir hlaðvarpsins eru staddir á sama stað - í óklipptri upptöku frá Borgarbókasafni. 

    Í þessum fyrsta  þætti hlaðvarpsins bæði í hljóði og mynd ræða Ólafur og Andri um Þrjátíu ára stríðið sem skók Þýskaland árin 1618-1648, orsök þess og afleiðingar. Stríðið og eftirmáli þess markaði djúp spor í sögu Þýskalands og Evrópu. 

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 28 min

About Söguskoðun

From the publisher's feed

Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum. 

More shows like Söguskoðun

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

27 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

12 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners