
Sign up to save your podcasts
Or


Þegar Dansk-norska ríkið liðaðist í sundur eftir Napóleonsstyrjaldirnar árið 1814 varð Noregur hluti Svíþjóðar en Danir héldu yfirráðum yfir eyjunum á Atlantshafi: Íslandi, Grænlandi og Færeyjum.
Rúmri öld síðar, á fyrri hluta 20. aldar, voru Norðmenn upprennandi veldi á norðurslóðum og Íslendingar stóðu í sjálfstæðisbaráttu og höfðu áætlanir um útrás á fiskimiðin. Þessar gömlu samveldisþjóðir deildu nú um það hver ætti að fara með fullveldi yfir nýlendunni Grænlandi. Íslendingar sögðust hafa fundið og byggt landið fyrst, Noregskonungur hafði slegið eign sinni á það fyrstur valdhafa, en Danir státuðu af því að hafa fyrir 300 árum í ár, fundið það aftur og gerðu tilkall til eyjunnar allrar. Fáir spurðu hvað Grænlendingum sjálfum fannst.
Í þessum síðasta þætti af Söguskoðun fyrir sumarfrí ræða Ólafur og Andri um þessa sögu sem ekki mikið hefur verið fjallað um en er þó bæði stórmerkileg og stórfurðuleg.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þessum framhaldsþætti um heimildir ræða Ólafur og Andri um Ólafur og Andri um ýmsar tegundir heimilda og hvar þær er að finna.
Gamli sáttmáli er tekinn til rækilegrar umræðu í ljósi rannsóknar Patriciu Pires Boulhosa frá 2005, sem hélt því fram að sáttmálinn væri ekki skrifaður árið 1262, heldur nokkrum öldum síðar. Er hægt að segja að þessi grundvallarheimild um sögu Íslendinga sé uppspuni? Ef svo er, krefst slík niðurstaða endurskoðun sögunnar?
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þessum þætti ræða Ólafur og Andri um heimildir vítt og breytt. Allt starf sagnfræðinga byggist á notkun heimilda og eru þær gluggi okkar inn í fortíðina. Þegar fram líða stundir breytist verk sjálfra sagnfræðinganna í frumheimildir um þeirra eigin tíma, og þannig heldur hringrás heimildanna áfram.
Rætt er um heimildagildi, sanngildi heimilda og aðgengi að heimildum, allt frá handritasöfnun á 18. öld, til prentútgáfu á 19. og 20. öld og stafrænnar útgáfu heimilda á 21. öld. Hvaða álitamál fylgja þessari þróun og hvernig stöndum við frammi fyrir heimildum í dag á tímum hinnar stafrænu vendingar?
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Hirðingjaþjóðir Mið-Asíu hafa alltaf spilað rullu í sögu Evrópu og Austur Asíu beint og óbeint. Hræringar þeirra hafa komið af stað breytingum í báðum heimshlutum sem lengst av voru ótengdir, og einnig hafa þessar þjóðir verið brú á milli heimshlutanna þar sem viðskipti og sjúkdómar fengu að breiðast út. En steppuþjóðirnar hafa þó alltaf haft á sér ógnvænlega ímynd í Evrópu og Asíu og skapað mikinn ótta. Kínverjar byggðu heimsins stærsta múr til að verjast Mongólum, og Húnar fóru um Rómarveldi rænandi og ruplandi.
Fáir menn hafa verið jafn alræmdir fyrir grimmd og skelfingu í sögunni eins og Genghis Khan, hinn mikli leiðtogi Mongóla á 13. öld. Honum tókst að sameina steppuþjóðir Mongólíu og setti á legg eitt stærsta samhangandi veldi allra tíma (næst stærst á eftir breska heimsveldinu að faltarmáli). Ríki Mongóla náði undir lok 13. aldar frá Kyrrahafsströnd Kóreu í austri og alla leið til Úkraínu og Tyrklands í vestri.
Í þættinum í dag fræðir Ólafur Hersir Andra og hlustendur um þetta mikla veldi, og um manninn sem stofnaði það.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Þegar Vestrómverska ríkið féll með Rómarborg árið 476 e. kr. lifði Austrómverska ríkið áfram í mörg hundruð ár. Í raun lifði ríkið allt fram til ársins 1453 þegar borgin Konstantínópel, Nýja Róm, féll í hendur Tyrkja. Oft hefur Austrómverska ríkið, eða Býsanska ríkið, fallið í skuggann í sögunni. Gibbon kallaði Býsanska ríkið eina samfellda sögu spillingar og niðurifs - eins konar hægan dauða í þúsund ár.
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hugtakanotkun um þetta ríki. Er hugtakið "býsanskur" gildishlaðið og neikvætt? Afhverju köllum við ríkið ekki bara Rómarveldi, eða Rómaníu, eins og íbúar þess kölluðu landið sitt sjálf allt frá falli Rómar 476 fram að falli Nýju Rómar 1453?
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Árið 1944 varð Ísland sjálfstætt lýðveldi og rofnuðu þá síðustu böndin á milli Íslendinga og Danakonungs. Oft hefur því verið fleygt fram eftir unnið sjálfstæði að Ísland hafi verið dönsk nýlenda á fyrri öldum, og hafa fræðimenn rannsakað íslenska menningu og sögu með gleraugum eftirlendufræðanna.
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um nýlendur og stöðu Íslands innan danska ríkisins frá lokum siðaskipta og fram á 19. öld. Var Ísland nýlenda á fyrri öldum? Hvað er nýlenda? Erum við eftirlendusamfélag?
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Lengi hefur verið litið á Jón Arason, síðasta kaþólska biskupinn á Íslandi, sem þjóðhetju sem barðist gegn erlendu valdi, en hann og synir hans voru hálshöggnir árið 1550. Jón Sigurðsson kallaði nafna sinn eftirminnilega "síðasta Íslendinginn" í þessu samhengi, og síðasta mann fornaldarinnar.
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um siðaskiptin sem sögulegt fyrirbæri, eða siðbótina - eða rökkurbýsni, allt eftir því hvaða skoðun menn hafa á henni. Rætt er um þetta vítt og breytt og sérstaklega baráttu Jóns Arasonar fyrir kaþólsku kirkjunni á Íslandi.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um íslenska nasista og tengsl þýskra nasista við Ísland á árunum fyrir síðari heimsstyrjöld. Ekki hefur mikið borið á sagnfræðilegri umræðu um þetta málefni síðastliðna áratugi, en mikil gróska var í útgáfu bóka fyrir um það bil 30 árum síðan, um íslenska nasista heima og erlendis og njósnir og ráðabrugg þýskra nasista á íslandi.
Í þættinum er rætt um Flokk þjóðernissinna sem var nasistaflokkur starfandi á Íslandi, og Íslendinga sem unnu með þjóðverjum á Norðurlöndum. Þá er spjallað um kynþáttahugmyndir nasista og hlutverk Íslands og Íslendinga í þessum hugmyndaheimi nasista.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Söguskoðun snýr aftur ef dágott jólafrí á nýju ári 2021! Í dag spjalla Ólafur og Andri m.a. um tímabilaskiptingu sögunnar og þann atburð sem talinn er marka upphaf evrópskra miðalda og var vafalaust einn mest mótandi atburður í sögu álfunnar: Fall Rómarveldis.
Róm var ekki byggð á einum degi, og ekki féll Rómarveldi daginn sem síðasta keisaranum var steypt af stóli árið 476. Hvenær féll Rómarveldi? Hverjar eru orsakir falls þessa heimsveldis, og með því hins rómverska heims, sem síðari tíma Evrópubúar áttu eftir að móta sögu sína út frá?
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ætluðu Andri og Ólafur að ræða meira um fornaldarsögu, en vegna anna urðu úr nokkuð samhengislausar og handahófskenndar umræður um sögu og samtíma. Við sögu kemur m.a. doktorsnám, tímaritaútgáfa, sagnfræðihlaðvörp og sagnfræðiráðstefnur, COVID-19 og hugmyndafræði og stjórnmál nútímans í sögulegu samhengi. Einnig er rætt um skjalaheimildir og skjalasöfn í nútíð fortíð, og framtíð.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
From the publisher's feed
Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum.

461 Listeners

140 Listeners

22 Listeners

130 Listeners

90 Listeners

19 Listeners

17 Listeners

27 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

20 Listeners

15 Listeners

12 Listeners

27 Listeners

15 Listeners