Sign up to save your podcasts
Or

Í þættinum í dag halda Andri og Ólafur til fornaldar og ræða um fornaldarsögu, aðdráttarafl hennar og áskoranir sem tengjast henni. Fókusinn er á mögulega einn frægasta mann fornaldar, og þann sem stundum hefur verið kallaður ein sú frægasta veraldlega mannkynssögupersónan. Það er Alexander III Makedóníukonungur - betur þekktur sem Alexander hinn mikli, en hann lagði undir sig hinn þekkta heim á örskömmum tíma á 4 öld f.kr.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Undir lok síðustu aldar var mikið rætt um sögukennslu og framreiðslu sögunnar á Íslandi. Íslenskir sagnfræðingar höfðu þá á síðustu áratugum 20. aldar skorað á hina hefðbundnu söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar, sem ríkt hafði á Íslandi frá 19. öld, um að þjóðin hafi í aldanna rás staðið sameinuð gegn náttúruöflunum og erlendu valdi í gegnum gullöld, niðurlægingartímabil og endurreisn.
Íslenska söguendurskoðunin hefur skotið föstum rótum í fræðasamfélaginu og hjá stórum hluta almennings, en enn má finna söguskoðun Jónasar Jónssonar frá Hriflu víða, enda flest okkar sem nú lifa alin upp við hana. Þar fyrir utan er hún hluti af menningararfi og sameiginlegu minni þjóðarinnar.
Hvað er söguskoðun? Afhverju og hvernig breytist hún? Munum við sjá nýja allsherjar endurskoðun Íslandssögunnar á næstu áratugum þegar við göngum inn í nýja öld?
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í ágúst var þess minnst að 75 ár eru liðin frá kjarnorkusprengingunum í Hiroshima og Nagasaki. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu eyðileggingu er Japan eitt af fremstu iðnríkjum heims. Í þessari trílógíu er rætt um vegferð Japans til nútímans sem hófst um miðja 19. öld en sú vegferð átti eftir að leiða Japani í gegnum hraða iðnvæðingu og nútímavæðingu, en einnig hervæðingu og heimsvaldastefnu sem endaði með gríðarlegum hörmungum í Japan, Kóreu, Kína, Suð-Austur Asíu og á Kyrrahafi.
Þríleikurinn er samsoðningur af þáttum 25, 26 og 27.

Í þessum síðasta þætti í trílógíunni um Japan fram til 1945 er rætt um Japan í síðari heimsstyrjöld, frá því að stríð braust út milli Japans og Kína 1937. Rætt er um árásina á Pearl Harbor, bandalagið við Þjóðverja og Ítali, stríðsglæpi Japana og endalok japanska heimsveldisins 1944-1945. Einnig er rætt hvernig þessa hefur verið minnst í sögulegu minni og sagnaritun, hvernig söguskoðun Japana hefur breyst og hvaða áhrif stríðið hafði á Asíu.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í ágúst var þess minnst að 75 ár eru liðin frá kjarnorkusprengingunum í Hiroshima og Nagasaki. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu eyðileggingu er Japan eitt af fremstu iðnríkjum heims. Í þessari trílógíu er rætt um vegferð Japans til nútímans sem hófst um miðja 19. öld en sú vegferð átti eftir að leiða Japani í gegnum hraða iðnvæðingu og nútímavæðingu, en einnig hervæðingu og heimsvaldastefnu sem endaði með gríðarlegum hörmungum í Japan, Kóreu, Kína, Suð-Austur Asíu og á Kyrrahafi.
Í þessum þætti ræða Ólafur og Andri um sögu Japans á millistríðsárunum frá þáttöku Japana í fyrri heimsstyrjöld þar til annað stríð Japana og Kínverja braust út árið 1937.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í ágúst var þess minnst að 75 ár eru liðin frá kjarnorkusprengingunum í Hiroshima og Nagasaki. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu eyðileggingu er Japan eitt af fremstu iðnríkjum heims. Í þessari trílógíu er rætt um vegferð Japans til nútímans sem hófst um miðja 19. öld en sú vegferð átti eftir að leiða Japani í gegnum hraða iðnvæðingu og nútímavæðingu, en einnig hervæðingu og heimsvaldastefnu sem endaði með gríðarlegum hörmungum í Japan, Kóreu, Kína, Suð-Austur Asíu og á Kyrrahafi.
Í þessum þætti ræða Ólafur og Andri um sögu Japans fram að fyrri heimsstyrjöld, með áherslu á stríð Rússa og Japana 1904-1905. Einnig eru rædd álitamál sem þetta málefni snertir, eins og eurosentrisma og hugtakið nútímavæðing.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Hlaðvarpið Crymogæa snýr aftur úr sumarfríi undir nýju og öllu þægilegra nafni í framburði og ritun: Söguskoðun!
Í þessum þætti ræða þeir félagar Andri og Ólafur um landnám Íslands sem mætti ætla að væri jafnvel einn mikilvægasti atburður Íslandssögunnar. Rætt er um ritheimildir og fornleifarannsóknir um landnámið og alls kyns kenningar og aðferðir aðrar sem fjalla um þetta mikla málefni. Töluverðu púðri er rætt í umræður um heimildagildi Landnámu, en það virðist vera heitasta debattið í þessum kima íslenskrar sagnfræði.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þessum síðasta þætti Crymogæu fyrir sumarfrí ræða Ólafur og Andri áfram um Napóleon þar sem frá horfði þegar hann snéri heim frá Egyptalandi árið 1799 og hrifsaði völdin í Frakklandi. Rætt er um valdaránið þann 18. þokumánaðar (Brumaire), Napóleonsstyrjaldirnar og stofnun franska keisaradæmisins. Þá er einnig rætt um sagnaritun um þetta tímabil og kenningar marxista og síðari tíma byltingarmanna um bónapartismann. Var stofnun keisaradæmisins 1804 hápunktur frönsku byltingarinnar eða endalok hennar?
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um herför Napoleons Bonaparte til Egyptalands árið 1798, en þá var hann hershöfðingi fyrsta franska lýðveldisins sem átti í stríði m.a. við Breta. Leiðangurinn var fyrir margar sakir merkilegur atburður bæði í sögu Mið-Austurlanda og Frakklands en ekki síður fyrir sögu vísinda og fræða. Að endingu yfirgaf Napóleon menn sína og hélt heim þar sem hann rændi völdum og varð einvaldur í Frakklandi.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag taka Ólafur og Andri bókina Orientalism eftir bókmenntafræðinginn Edward Said til umræðu. Bókin kom út árið 1978 og hafði gríðarleg áhrif um allan heim en hún fjallar krítískt um orðræðu Vesturlanda í garð austursins bæði í fræðum (orientalisma) og í listum. Said er einn af upphafsmönnum eftirlendufræðanna og er hann vægast sagt umdeildur, enda spunnust miklar umræður á meðal Crymogæumanna í þættinum.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
From the publisher's feed
Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum.

461 Listeners

140 Listeners

22 Listeners

130 Listeners

90 Listeners

19 Listeners

17 Listeners

27 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

20 Listeners

15 Listeners

12 Listeners

27 Listeners

15 Listeners