Söguskoðun

Söguskoðun

By Söguskoðun hlaðvarpLeisureHistory
Download on the App Store

Söguskoðun episodes

  • 10 - Lærðir menn og handritasöfnun á 17. öld

    Ólafur las bókina Í spor Jóns lærða eftir Hjörleif Guttormsson og í kjölfar þess ræða Ólafur og Andri um menn lærdómsaldarinnar. Jón lærði Guðmundsson, Arngrímur lærði, Brynjólfur Sveinsson, Árni Magnússon og fleiri lærðir menn 17. og 18. aldar eru til umræðu í tengslum við fornfræðistörf og handritasöfnun.

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 14 min
  • 09 - Norræna byggðin á Grænlandi

    Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um norrænu byggðina í Grænlandi sem lifði í um 450 ár þar til hún lagðist af á leyndardómsfullan hátt um miðja 15 öld. Rætt er um samband fornleifafræði og sagnfræði og farið yfir sögulegar heimildir sem til eru um Grænland hið forna. Kenningar um brotthvarf norrænu byggðarinnar eru reifaðar - átti sér stað umhverfisslys eða útrýming á Grænlandi? Eru mögulega pólítískar línur að myndast í kenningum um brotthvarf Grænlendinga hinna fornu?

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 29 min
  • 08 - Um Þjóðverja og Þýskaland

    Í Crymogæu í dag ræða Ólafur og Andri vítt og breytt um sögu Þjóðverja og aðra germanskra þjóða. Rætt er um þýska sagnaritun og söguskoðanir um þýska sögu og um stöðu Þýskalands innan Evrópu og Evrópusambandsins. Sonderweg: kenningin um hina "sérstöku" innreið Þjóðverja í nútímann frá Lúter til Hitlers er tekin fyrir og samband Þýskalands og Bretlands. Kynþáttahyggja, nasismi, lýðræði og frjálslyndi koma við sögu. Hvað er að vera "normal"? Hvernig væri Evrópa ef Þjóðverjar hefðu unnið fyrri heimsstyrjöld?

    Tekið upp 24.08.2019

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 23 min
  • 07 - Landafundir og landnám í Nýja heiminum

    Í þessum síðasta þætti Crymogæu fyrir sumarfrí ræða Andri og Ólafur um Landafundina miklu í víðu og þröngu samhengi. Rætt er um orsakir og afleiðingar landafunda Evrópumanna í Nýja heiminum á 15. og 16. öld, tengslin við landafundi Íslendinga í Ameríku og samanburðinn við landkönnun Araba og Kínverja. Í framhaldi af því er bókin White Settler Reserve: New Iceland and the Colonization of the Canadian West eftir Ryan Eyford, um landnám Íslendinga í Kanada á 19. öld, tekin fyrir.

    Tekið upp 26.03.2019

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 22 min
  • 06 - Getur sagan ráðið framtíðina? II. hluti

    Í þessum þætti höldum við áfram með umræður um framtíðarspeki með hjálp kenningasmiða á borð við Francis Fukuyama, Yuval Harari og Karl Marx. Hér er einnig tekin fyrir nánar kenning Samuel Huntingon um Clash of Civilizations - og þar af leiðandi um mismunandi grundvallarsýn fólks um afstæði þróunnar mannlegs samfélags. Er kapítalisminn og vestrænt lýðræði endalok sögulegrar þróunar eða er kannski ómögulegt að spá fyrir um nokkuð á þessu sandkorni í eyðimörk tímans sem við lifum á?

    Tekið upp 03.03.2019

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 20 min
  • 05 - Getur sagan ráðið framtíðina? I. hluti

    Í þessum þætti ræða þeir Ólafur og Andri um framtíðina. Hvað getur sagan kennt okkur um framtíðina? Er hægt að ráða í framtíðina með hjálp sagnfræðilegra kenningasmiða á borð við Karl Marx, Francis Fukuyama og Yuval Harari? Hvað tekur við eftir lok kalda stríðsins og Pax Americana þegar við stöndum frammi fyrir tæknibyltingu sem á sér enga líka?

    Tekið upp 25.02.2019

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 21 min
  • 04 - Austrið og vestrið

    í þessum fjórða þætti Crymogæu er stefnan tekin nær okkur í tíma - þó eftir smá umræður um verk Arngríms lærða, Crymogæu, þaðan sem hlaðvarpið hefur nú fengið lánað nafn sitt. Annars er rætt um andstæður milli austurs og vesturs í Evrópu og Asíu, og hvernig þær hafa mótast á 20. öld, 19. öld og á fyrri öldum. Farið er yfir marxisma og kommúnisma, og nútímasögu Rússlands og Kína m.a. Að lokum er Kommúnistaávarpið sjálft tekið til umræðu.

    Tekið upp 29.01.2019

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 25 min
  • 03 - Fornminjar og forntextar

    Í þessum þætti er rætt um frumheimildir, handrit og fornminjar af ýmsu tagi, mest forn grískar, býsanskar og íslenskar. Þá er m.a. rætt um textavæðingu samfélagsins, konungsvaldið og lagabókstaf. Í lok þáttar er rætt um bókina Hnignun, hvaða hnignun? eftir Axel Kristinsson.

    Tekið upp 07.01.2019

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 25 min
  • 02 - Um kristni og íslam

    Í þessum þætti er farið yfir sögu kirkjunnar og stöðu hennar í dag, siðaskiptin á Íslandi og í Noregi og samband ríkis og kirkju á síðari öldum. Ennfremur er rætt um klassíska bók Henri Pirenne, Mohammed and Charlemagne, og ýmsar kenningar um uppruna íslams.

    Tekið upp 28.11.2018

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 20 min
  • 01 - Kimar sögunnar (pilot)

    Í þessum þætti er farið yfir víðan völl innan vébanda sagnfræðinnar, Farið er yfir rúnir og rúnalestur, misgáfulegar samsæriskenningar, tímabilaskiptingar fyrri alda og 20. aldar og margt margt fleira.

    Tekið upp 01.10.2018

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 25 min

About Söguskoðun

From the publisher's feed

Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum. 

More shows like Söguskoðun

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

27 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

12 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners