Sign up to save your podcasts
Or

Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur miðaldakonungsríkið Kongó í Mið-Afríku sem stofnað var undir lok 14. aldar og leið ekki formlega undir lok fyrr en á 20. öld. Fá miðstýrð ríki voru til staðar í Afríku sunnan Sahara fyrir nýlenduvæðinguna, en konungsríkið Kongó varð til við samruna ættbálka og samþjöppun valds í kringum höfuðstaðinn Mbanza-Kongo sem nú er í norðanverðri Angóla.
Kongó varð fljótt upp úr 15. öld að miðstöð portúgölsku þrælaverslunarinnar og rann hægt og rólega inn í portúgalska heimsveldið. Konungur Kongó varð lénsmaður portúgalska konungsins í Angóla og árið 1885 var Kongósvæðinu formlega útdeilt á milli Belga, Frakka og Portúgala.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Austurblokkin var samansafn kommúnistaríkja í Mið- og Austur-Evrópu sem Sovétmenn settu á laggirnar í aðdraganda kalda stríðsins. Árið 1989 hrundu þau öll eins og spilaborgir, í flestum tilfellum friðsamlega. Segja má að kraftaverkaárið 1989 marki upphaf okkar samtíma, en þá gjörbreyttist sú heimsmynd sem komið hafði verið á eftir seinni heimsstyrjöld. Kalda stríðinu var lokið, kommúnisminn hruninn og við tók tímabil samruna Evrópu og útþennslu NATO til austurs. Sovétríkin liðu undir lok árið 1991.
Í þessum tvöfalda þætti ræða Söguskoðunarmenn ris og fall kommúnismans austan við járntjald, nánar tiltekið í Austur-Þýskalandi, Póllandi, Ungverjandi, Tékkóslóvakíu, Albaníu, Rúmeníu og Búlgaríu. Hrunið átti sér dágóðan aðdraganda og til þess að ræða kraftaverkaárið 1989 er farið hér vítt og breytt um sögu svæðisins frá 1944 til vorra daga.

Heródótos frá Kalikarnassos er kallaður faðir sagnfræðinnar (og faðir lyganna). Í þættinum í dag hverfum við aftur til fornaldar og skoðum það sem kallað hefur verið fyrsta eiginlega sagnfræðiverkið í vestrænni sagnaritunarhefð, en það er saga Heródótosar af Persastríðinum milli Grikkja og Persa árin 499 til 449 f. kr.
Persaveldi var mesta heimsveldi sem sést hafði á þessum tíma, en Grikkland var samansafn sjálfstæðra og ólíkra borgríkja. Persar gerðu tvær innrásir í Grikkland, en tókst ekki að leggja undir sig landið. Heródótos segir frá þessari miklu baráttu austurs og vesturs, eins og hann kaus að líta á það, þar sem Davíð sigraði Golíat.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Franska byltingin hófst árið 1789 og er hún jafnan talin á meðal merkustu atburða mannkynssögunnar. Byltingin varð til í umróti nýrra hugmynda í landi sem bar einkenni mikils félagslegs óréttlætis. Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur þetta samfélag sem stundum er kallað Ancien Régime - gamla stjórnin, með áherslu á síðasta franska Búrbónakonunginn, Loðvík XVI, en hann var tekinn af lífi af byltingarmönnum árið 1793.
Heitar umræður spunnust um endurskoðun sögunnar, um lögstéttarkerfið, skattkerfið og minningu konungsins og drottningarinnar Marie Antoinette. Var Ancien Régime eins gegnumsýrt af spillingu og óstjórn eins og byltingarmenn höfðu uppi, eða var byltingin óumflýjanleg afleiðing óskilvirks og óréttláts samfélags?
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Fyrir jólin kom út ný bók eftir Helga Þorláksson, Á sögustöðum, þar sem fjallað er um sex fræga sögustaði á Íslandi, sögu þeirra og framsetningu sögunnar. Bókin vakti mikla athygli enda er beint sjónum að mikilvægu stefi í íslenskri sagnfræði sem er söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar og samspil akademískrar sagnfræði og almennrar söguvitundar.
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri bók Helga, og um söguskoðun og sögustaði almennt.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Heilaga rómverska ríki hinnar þýsku þjóðar hefur oft borið á góma hér í hlaðvarpinu, enda spannar saga þess 1000 ár í hjarta Evrópu. Saga þessa ríkis hófst með krýningu Karlamagnúsar sem nýs Rómarkeisara í vestrinu árið 800, og það leið undir lok þegar nýr keisari frönsku byltingarinnar réðist inn í Þýskaland 1806 og nýr keisari Austurríkis lagði frá sér krúnu Karlamagnúsar í hinsta sinn.
Ólafur og Andri ræða heilaga rómverska ríkið sem sögulegt fyrirbæri, hvernig litið hefur verið á það í sagnfræðinni, og hvaða þýðingu það hefur fyrir Evrópu í dag. Var það heilagt? Var það rómverskt? Var það ríki? Var það þýskt?
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag segir Ólafur frá Aisin Gioro Puyi sem var síðasti keisari Kína. Puyi fæddist á miklum umrótartímum og ber ævi hans þann vott. Hann var settur af sem keisari þegar Kína varð lýðveldi árið 1912 og bundinn var endir á yfir 2000 ára sögu kínverska keisaradæmisins. Puyi varð á stríðsárunum leppur Japana í Mansjúríu fram til 1945, og eftir 15 ára fangavist og endurmenntun endaði hann ævina sem almennur borgari og fyrirmyndarkommúnisti í Alþýðulýðveldinu Kína.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Krossferðirnar eru mikilvægur þáttur í sögu Evrópu á hámiðöldum. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri aðdraganda og gang fyrstu krossferðarinnar 1096-1099. Þá héldu tugir þúsunda kaþólskra pílagríma, fótgönguliða og riddara til Anatólíu til að létta undan létta undan Alexíusi I rómarkeisara í baráttunni við Tyrki, en síðan til Jerúsalem, þar sem krossfararnir stofnuðu krossfararíki í borginni heilögu.
Í síðari hluta þessarar yfirferðar ræðum við atburði fyrstu krossferðarinnar eftir fall Antíokkíu þegar Austrómverjar yfirgefa krossfarana og þeir stofna sjálfstæð krossfararíki við botn Miðjarðarhafs.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Krossferðirnar eru mikilvægur þáttur í sögu Evrópu á hámiðöldum. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri aðdraganda og gang fyrstu krossferðarinnar 1096-1099. Þá héldu tugir þúsunda kaþólskra pílagríma, fótgönguliða og riddara til Anatólíu til að létta undan létta undan Alexíusi I rómarkeisara í baráttunni við Tyrki, en síðan til Jerúsalem, þar sem krossfararnir stofnuðu krossfararíki í borginni heilögu.
Í þessum fyrri hluta ræðum við aðdraganda krossferðarinnar og gang hennar þar til leiðir skiljast við Alexíus við Antíokkíu 1098.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
From the publisher's feed
Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum.

462 Listeners

141 Listeners

22 Listeners

130 Listeners

90 Listeners

19 Listeners

17 Listeners

27 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

20 Listeners

15 Listeners

12 Listeners

27 Listeners

14 Listeners