
Sign up to save your podcasts
Or


Í þættinum í dag fjalla Andri og Ólafur um langvarandi og blóðuga togstreitu Danmerkur og Svíþjóðar um yfirráð í Skandinavíu og við Eystrasalt, frá endalokum Kalmarsambandsins til Napóleonsstyrjaldanna.
Stundum er sagt að fá ríki hafi háð jafn margar styrjaldir sín á milli og Danmörk og Svíþjóð. Á tímabilinu 1500–1800 háðu þau að minnsta kosti tíu stríð, með misjöfnum árangri, auk þess sem þau tóku þátt í þrjátíu ára stríðinu og stóðu andspænis öðrum rísandi stórveldum Evrópu. Danmörk var lengi valdamesta ríki Norðurlanda, en á 17. öld reis Svíþjóð til metorða og varð stórveldi við Eystrasaltið.
Á 19. öld höfðu bæði Danmörk og Svíþjóð misst fyrri stöðu og þróuðust í smærri þjóðríki, undir áhrifum og þrýstingi stærri ríkja á borð við Rússland, Þýskaland, Bretland og Frakkland.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarbræður sögu páfadæmisins, þessa fornu stofnunar sem hefur gegnt lykilhlutverki í kristinni trú og evrópskri sögu öldum saman.
Mögulega er páfadómurinn eitt elsta embætti sem enn er mannað í okkar heimshluta, og varla fór framhja neinum þegar nýr páfi var kjörinn nú fyrir skömmu. Í þessum þætti ræða Ólafur og Andri um þróun og sögu páfans, löggildingu hans sem arftaki Péturs postula, deilur hans við konunga og keisara á miðöldum, klofninginn við austurkirkjuna, siðaskiptin og fleira og fleira.
Er hinn heilagi faðir í Róm arftaki Krists á jörðu, eða er hann afurð veraldlegra og pólitískra hreyfinga eftir fall Rómarveldis?
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hið svonefnda "ástand" á Íslandi í seinni heimsstyrjöld: Ástarsambönd íslenskra kvenna og breskra og bandarískra hermanna, og afskipti íslenskra yfirvalda af því.
Hernámið hafði gríðarlegar samfélagslegar breytingar í för með sér fyrir Ísland. Með komu hernámsliðsins 1940-1941 streymdu tugir þúsunda hermanna til landsins og þegar mest lét var fjöldi setuliðsmanna á Íslandi nær helmingur íbúafjöldans. Sambönd íslenskra kvenna og setuliðsmanna ollu siðferðilegri skjálftaöldu hjá elítunni, og ríkisvaldið brást við af hörku. Fylgst var með ungum konum, haldið var skrá yfir sambönd þeirra og gripið til harðra aðgerða samkvæmt sérstökum lögum sem sett voru.
Mikið hefur verið fjallað um "ástandið" á síðastliðnum áratugum í íslenskri sagnfræði, ekki síst í tengslum við sögulegt réttlæti, og þá sérlega hin síðustu ár eftir að skjöl urðu aðgengileg sem varpa ljósi á mögulega einar umfangsmestu njósnir íslenskra yfirvalda um einkalíf borgaranna fyrr og síðar.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um samúræjana – stríðsmenn gamla Japans og táknmyndir japanskrar menningar.
Samúræjarnir voru kjarninn í japönsku lénsskipulagi og áttu gullöld sína á Tokugawa tímabilinu (1600–1868), þegar Japan var sameinað undir sterku miðstjórnarvaldi sjógúnanna. Þetta tímabil einkenndist af friði, einangrunarstefnu og blómaskeiði í menningu, listum og heimspeki.
Samúræjarnir voru hermenn, aðalsmenn og embættismenn og gegndu lykilhlutverki í samfélagi þar sem heiður, hollusta og agi réðu ríkjum. Riddaralegur lífstíll og siðir samúræjanna byggði á bushidō, „leið stríðsmannsins“, og hafa þessir japönsku riddarar verið táknmynd hins forna Japans sem leið undir lok á 19. öld.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um stórveldisdrauma ítalska einræðisherrans Benito Mussolini og misheppnaðar tilraunir Ítalíu til að verða stórveldi á árunum 1923-1943.
Eftir fyrri heimsstyrjöld fannst Ítölum þeir hafa verið sviknir um verðskuldað herfang – Vittoria Mutilata eða „limlestur sigur“ var Versalafriðurinn kallaður. Þetta átti eftir að móta utanríkisstefnu Mussolinis, sem sóttist eftir því að gera Ítalíu að heimsveldi á ný, eða endurreisa Rómarveldi, eins og sagt er. Hann stefndi á eigin landvinninga í Afríku og á Balkanskaga og gekk til liðs við Hitler og Öxulveldin í aðdraganda ófriðarins mikla.
Í seinni heimsstyrjöld stóð ítalski herinn frammi fyrir miklum erfiðleikum. Skortur á skipulagi, úrelt vopnabúnaður og óraunhæfar hernaðaráætlanir ollu því að ítölsk hernaðarframmistaða var hörmuleg. Frá innrásinni í Grikkland til ósigranna í Norður-Afríku og fall Ítalíu árið 1943, var herinn stöðugt háður stuðningi Þjóðverja.
Í þessum seinni hluta ræða Ólafur og Andri Ítalíu í seinni heimsstyrjöld, gang stríðsins, bandalagið við Þjóðverja og fall Mussolinis 1943/1945.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um stórveldisdrauma ítalska einræðisherrans Benito Mussolini og misheppnaðar tilraunir Ítalíu til að verða stórveldi á árunum 1923-1943.
Eftir fyrri heimsstyrjöld fannst Ítölum þeir hafa verið sviknir um verðskuldað herfang – Vittoria Mutilata eða „limlestur sigur“ var Versalafriðurinn kallaður. Þetta átti eftir að móta utanríkisstefnu Mussolinis, sem sóttist eftir því að gera Ítalíu að heimsveldi á ný, eða endurreisa Rómarveldi, eins og sagt er. Hann stefndi á eigin landvinninga í Afríku og á Balkanskaga og gekk til liðs við Hitler og Öxulveldin í aðdraganda ófriðarins mikla.
Í seinni heimsstyrjöld stóð ítalski herinn frammi fyrir miklum erfiðleikum. Skortur á skipulagi, úrelt vopnabúnaður og óraunhæfar hernaðaráætlanir ollu því að ítölsk hernaðarframmistaða var hörmuleg. Frá innrásinni í Grikkland til ósigranna í Norður-Afríku og fall Ítalíu árið 1943, var herinn stöðugt háður stuðningi Þjóðverja.
Í þessum fyrri hluta ræða Ólafur og Andri Ítalíu á millistríðsárunum í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um Markús Árelíus, keisara og heimspeking, sem stundum er kallaður síðasti gullaldarkeisari Rómaveldis. Stjórn hans markaði lok tímabils friðar og stöðugleika í ríkinu, en einnig upphaf hnignunar.
Markús Árelíus var ekki aðeins valdamikill keisari heldur einnig hugsuður í anda stóuspekinnar. Í riti sínu, Hugleiðingar, sem ekki var ætlað til birtingar, speglar hann eigin siðferðisviðhorf, ábyrgð sína sem stjórnanda og viðleitni til að lifa í samræmi við náttúrulega reglu heimsins. Þrátt fyrir heimspekilega rósemi þurfti hann að leiða Rómarveldi í gegnum stríð við Parþa og Germani, og mikla drepsótt sem loks varð hans bani.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag skoða Söguskoðunarmenn innreið konungsvalds og upphaf íslenzka skattlandsins þegar íslenskir höfðingjar gengu Noregskonungi á hönd á 13. öld.
Konungsvald á Íslandi hefur alltaf verið fyrirferðarmikið atriði í íslenskri sögu, enda er sá tími mjög svo tengdur sjálfsmynd þjóðarinnar, afnámi þjóðveldisins og svo stofnun þjóðríkisins. Þegar Ísland varð hluti af norska konungsríkinu áttu erlendir konungar eftir að ríkja á Íslandi fram til ársins 1944.
Í kjölfar ófriðarins á Íslandi samþykktu íslenskir höfðingjar að gerast þegnar konungs með Gamla sáttmála 1262-1264. En norska miðaldakonungsveldið var í mikilli sókn á 13. öldinni og náði einnig til annarra skattlanda. Grænland, Færeyjar, Orkneyjar, Hjaltland og fleiri jaðarsvæði í hinum Vest-Norræna menningarheimi gengu einnig undir - eða kannki væri réttara að segja, tóku upp - norskt konungsvald.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í framhaldi af hundrað þátta hittingi Söguskoðunarmanna í Norður-Noregi lögðu hlaðvarpsmenn land undir fót og héldu í vettvangsferð á söguslóður í Narvik.
Þann 9. apríl 1940 gerðu Þjóðverjar innrás í Danmörku og Noreg. Danmörk féll strax, en upphófst þá þriggja mánaða barátta um Noreg. Baráttan um Noreg hófst og lauk í Narvik, litlum hafnarbæ í Norður-Noregi þar sem sænskt járn hefur ætíð verið flutt úr landi.
Ástæður innrásarinnar til að byrja með snérust að miklu leiti um aðgang að þessari höfn, og Þjóðverjar lentu með herlið í Narvik strax 9. apríl. Alþjóðlegt lið Norðmanna, Breta, Frakka og Pólverja mætti þar svo talsvert minna liði Þjóðverja í orrustunni um Narvik. Baráttunni um Noreg lauk í Narvik þegar herir bandamanna yfirgáfu bæinn 10. juní 1940 og var landið hernumið í fjögur ár.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Þessi þáttur er aðgengilegur með hljóði og mynd á Youtube.
Í tilefni hundraðasta þáttarins komu Söguskoðunarbræður saman í egin persónu í herstöðvarbænum Setermoen i Norður-Noregi og ræddu um sagnfræði, heimspeki, norðurslóðir, gervigreind, heimsmálin og áfram mætti telja.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
From the publisher's feed
Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum.

462 Listeners

141 Listeners

22 Listeners

130 Listeners

90 Listeners

19 Listeners

17 Listeners

27 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

20 Listeners

15 Listeners

12 Listeners

27 Listeners

14 Listeners