
Sign up to save your podcasts
Or


Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um uppruna bandarísku þjóðarinnar sem fyrst og fremst varð til upp úr landnámi breskra landema á 17. og 18. öld.
Ólafur las bókina Albion's Seed: Four British Folkways in America eftir David Hackett Fischer og segir frá fjórum grunnstraumum landnema frá Bretlandseyjum til Nýja Englands, Pensylvaníu, Virginíu og Suðurríkjanna þriggja (Karólínunum og Georgíu). Þessir ólíku samfélagshópar mótuðu kjarnann í bandarísku samfélagi og má sjá spor þeirra í menningarsögu Bandaríkjanna allt fam á okkar daga.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í tilefni sviptinga í heimsmálunum settust Söguskoðunarmenn niður þann 11. janúar 2026 til að bera saman bækur sínar um stöðu mála.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í dag er Þorláksmessa að vetri, 23. desember - síðasti dagur jólaföstu og aðventu. Í tilefni þess ræða Söguskoðunarbræður um Þorlák helga Þórhallsson (1033-1093), Skálholtsbiskup og verndardýrðling Íslands í kaþólsku kirkjunni - sem dagurinn er kenndur við.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um krossafararíkin sem komið var á fót í Austurlöndum Nær í kjölfar fyrstu krossfararinnar 1095-1099.
Konungsríkið Jerúsalem var stærst og mikilvægast krossfararíkjanna, enda var höfuðborg þess borgin helga. Í konungsríkinu lifðu múslimar og ýmsir kristnir trúarhópar, gyðingar, armenar, arabar og ítalskir kaupmenn, undir innfluttu lénskerfi frönsku- og latínumælandi Franka. Viðskipti milli Evrópu og Asíu blómstruðu og ríkið varð fastur hluti af heimsmynd Mið-Austurlanda.
En sem hluti af heilögu stríði var tilvist krossfararíkjanna háð sundrungu múslima. Eftir að múslimar sameinuðustu á 12. öld, síðast undir stjórn Saladíns, féll Jerúsalem með dramatískum hætti árið 1187 og konungsríkið þurrkaðist út. Síðustu leifar krossfararíkjanna féllu eftir þegar Mamelúkar tóku Acre 1291.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um Þýsku riddararegluna, einnig þekkt sem Tevtónska reglan eða Maríuriddarar, sem kom á fót þýsku landnema- og krossfararíki við Eystrasaltið á 13. öld.
Þýska riddarareglan var stríðsmunkahreyfing, stofnuð í Palestínu eftir þriðju krossferðina um 1190. Hlutverk reglunnar var að hjúkra sjúkum krossförum og pílagrímum og berjast með krossförum í heilögu löndunum.
Með dvínandi árangri í Palestínu færðu þýsku riddararnir sig heim til Þýskalands og leiddu krossferðirnar í norðri, þ.e. stríð gegn heiðnum þjóðum við Eystrasaltið, kristniboð og landnám. Riddararnir stofnuðu regluríki sitt í Prússlandi og Líflandi, og á hápunkti veldis reglunnar réði hún yfir öllu því svæði sem í dag er Norður-Pólland og Eystrasaltsríkin.
Ríki reglunnar leið undir lok á 16. öld, en lönd þess urðu kjarninn í því sem síðar varð Prússland.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag halda Söguskoðunarmenn aftur til fornaldar til að ræða um hellenimsann sem var tímabilið í sögu Grikklands og Mið-Austurlanda eftir dauða Alexanders mikla og fram að öld Rómaveldis.
Þegar Alexander lést árið 323 f.kr. eftirlét hann engan erfingja sem gat tekið við hinu gríðarstóra víðfeðma ríki sem hann hafði lagt undir sig frá Balkanskaga til Indlands. Ríkið skiptist upp í smærri einingar þar sem arftakar Alexanders stofnuðu grísk konungsríki, m.a. á svæðinu sem í dag er Afganistan.
Undir hellenismanum varð grísk tunga ráðandi í Ptólemíska ríkinu í Egyptalandi og Selevkídaríkinu í Austurlöndum nær, og austræn menning rann saman við gríska menningu í listum, arkítektúr, trúarbrögðum, vísindum og fræðum. Hellenimsinn er formlega talinn enda árið 30. f.kr. með Kleópötru í Egyptalandi, þegar síðasta gríska arftakaríkið rann inn í Rómaveldi.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um Júgóslavíu eftir seinni heimsstyrjöld og fram að falli kommúnismans.
Þátturinn er sjálfstætt framhald af þætti 89 - Um Júgóslavíu 1918-1941.
Skæruliðar kommúnista undir stjórn landsföðurins Josip Broz Tito sameinuðu þjóðarbrot Júgóslavíu eftir miklar blóðsúthellingar seinni heimsstyrjaldar og endurreistu fjölþjóðlega ríkið á nýjum grunni.
Sósíalíska Júgóslavía var öðruvísi en hin kommúnistaríkin í Austur-Evrópu. Eftir klofninginn við Stalín 1948 fór Tító egin leiðir og mótaði sérstakan júgóslavneskan sósíalisma. Júgóslavía stóð einnig utan hernaðarbandalaga og tróð milliveginn á milli Vesturveldanna og Sovétríkjanna í kalda stríðinu.
En undir niðri kraumuðu þjóðernisdeilur og andstæður, og eftir efnahagshamfarir 9. áratugarins og fall kommúnismans í Austur-Evrópu lá leið Júgóslavíu til borgarastyrjaldar.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag komu Ólafur og Andri saman til að ræða um þriðju heimsstyrjöldina sem sögulegt fyrirbæri, þ.e. stríðið sem aldrei varð á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna á síðari hluta síðustu aldar.
Kalda stríðið var hugmyndafræðileg barátta tveggja ofurvelda sem skiptu heiminum á milli sín eftir endalok seinni heimsstyrjaldar. Í hálfa öld stóðu vígvélar NATO og Varsjárbandalagsins andspænis hverri annarri sitt hvoru megin við járntjaldið og lögðu á ráðin.
Í þessum tvöfalda þætti ræða Söguskoðunarmenn um kalda stríðið og undirbúninginn fyrir þriðju heimsstyrjöldina sem kom sem betur fer ekki.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag komu Ólafur og Andri saman til að ræða um þriðju heimsstyrjöldina sem sögulegt fyrirbæri, þ.e. stríðið sem aldrei varð á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna á síðari hluta síðustu aldar.
Kalda stríðið var hugmyndafræðileg barátta tveggja ofurvelda sem skiptu heiminum á milli sín eftir endalok seinni heimsstyrjaldar. Í hálfa öld stóðu vígvélar NATO og Varsjárbandalagsins andspænis hverri annarri sitt hvoru megin við járntjaldið og lögðu á ráðin.
Í þessum tvöfalda þætti ræða Söguskoðunarmenn um kalda stríðið og undirbúninginn fyrir þriðju heimsstyrjöldina sem kom sem betur fer ekki.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Í þættinum í dag fjalla Ólafur og Andri um íslam og hinar ýmsu hreyfingar og trúfélög innan íslamstrúar.
Íslam er næstfjölmennustu trúarbrögð heims með yfir tvo milljarða fylgjendur. Eftir landvinninga og trúboð Múhameðs spámanns á 7. öld og útþennslu kalífadæmisins klofnaði hreyfingin fljótt í tvær höfuðgreinar, súnní og sjía íslam. Síðan þá hafa margar hreyfingar og hópar komið fram, eins og drúsar, alavítar, súfistar, alevistar, wahabistar, og svo mætti áfram telja.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
From the publisher's feed
Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum.

471 Listeners

139 Listeners

21 Listeners

131 Listeners

90 Listeners

18 Listeners

18 Listeners

27 Listeners

29 Listeners

22 Listeners

21 Listeners

16 Listeners

13 Listeners

25 Listeners

11 Listeners