Þjóðmál

Þjóðmál

By ÞjóðmálSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    39

    Followers

  • Typical duration

    93 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Þjóðmál episodes

  • #214 – Jack í kók fyrir Bessastaðakapphlaupið – Bjartasta vonin á markað

    Stefán Einar Stefánsson og Örn Arnarson ræða um þau forsetaframboð sem komin eru fram, erfiðar spurningar sem frambjóðendur hafa fengið um lífsgildi sín og viðhorf, hvernig kannanir eru að þróast og fleira því tengt. Þá er rætt um stöðu verðbólgunnar, þróun og áhrif vaxta, skráningu Oculis á markað og annað skemmtilegt í líflegum þætti.

    53 min
  • #213 – Reynum að hætta að rífast fyrir framan börnin

    Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, fer yfir stöðuna í stjórnmálunum, undarlega grein nýs formanns VG um orkumál, skot Framsóknar á Samfylkinguna um helgina, stöðu Bjarna Benediktssonar, hvort að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn gætu mögulega unnið saman, um skrýtna stöðu í borginni og afneitun borgarfulltrúa á veruleikanum. Þá er rætt um komandi forsetakosningar, áhugavert viðtal við Katrínu Jakobsdóttur í Spursmálum Morgunblaðsins og margt fleira.

    59 min
  • #212 – Kjósendum mútað með eigin peningum – Kauptækifæri á markaði

    Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson ræða um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem er líkleg til að viðhalda verðbólguþrýstingi, yfirlýsingar þeirra sem héldu því fram að hugtakið gróðaverðbólga væri raunverulegt, skrýtin átök bankaráðs Landsbankans við Bankasýsluna, árshátíðarferð Landsvirkjunar, fjármunina sem streyma til Rúv, hugmyndir um alheimsskatt og margt fleira.

    57 min
  • #211 – Íran og Ísrael ræsa vélarnar – Albert Jónsson fer yfir stöðuna í alþjóðakerfinu

    Albert Jónsson, fv. Sendiherra og einn helsti sérfræðingur landsins í alþjóðamálum, ræðir um áhrif og afleiðingar af árás Írans á Ísrael um helgina, stöðu Ísraels og viðbrögð alþjóðasamfélagsins, hvernig útlitið er framundan á þessu svæði, hvaða hagsmuni Kínverjar hafa á svæðinu og fleira þessu tengt. Þá er rætt um stöðuna í Úkraínu, hvort að Bandaríki og evrópsk ríki hafi brugðist Úkraínumönnum og hvaða staða myndast ef að Rússar hafa betur í því stríði sem nú stendur yfir. Loks er rætt um loftlagsstefnu Íslands sem er í ógöngum og samræmist ekki reglum í alþjóðasamstarfi.

    1 hr 12 min
  • #210 – Endurnýjuð heit í hagkvæmnishjónabandi ríkisstjórnarinnar – Flókin staða í hagkerfinu næstu mánuði

    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um skipun nýrrar ríkisstjórnar, hvort líklegt sé að hún nái að leysa þann ágreining sem ríkt hefur, hvaða aðrir möguleikar voru í boði, hvort að VG reyni að sprengja ríkisstjórnina síðar á árinu og hvort að gagnrýni þingmanna Sjálfstæðisflokksins á Svandísi Svavarsdóttur hafi verið innantóm. Þá er rætt um stöðu Alvotech sem hefur valdið óróa á markaði, aukna bindiskyldu bankanna sem mun fela í sér kostnað fyrir viðskiptavini þeirra, brotthvarf aðstoðarseðlabankastjóra, stöðuna í hagkerfinu og margt fleira.

    1 hr 18 min
  • #209 – Mamma fer í framboð og hinir finna bara út úr þessu

    Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson ræða um nýjustu vendingar í pólitíkinni, forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur, hvaða áhrif pólitísk fortíð hennar hefur og þá hvaða áhrif hún mun hafa, hverjir möguleikar annarra forsetaframbjóðenda eru, hvernig ný ríkisstjórn getur litið út, hvort að þessar breytingar feli í sér tækifæri fyrir aðra flokka og margt fleira.

    1 hr 3 min
  • #207 – Páskaþáttur með Þorsteini Má Baldvinssyni

    Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, fjallar um sögu og uppbyggingu félagsins, hvernig það kom til að þrír ungir frændur ákváðu að reyna fyrir sér í sjávarútvegi, um framtíð greinarinnar og samkeppnina við erlenda risa, hvaða möguleikar kunna að felast í fiskeldi, hvort til greina komi að skrá Samherja í Kauphöllina, hvernig umræða um fiskveiðistjórnunarkerfið hefur þróast, 12 ára baráttu við Seðlabankann og aðra anga kerfisins, ummælin um Gugguna sem átti að vera gul og margt fleira. Stútfullur páskaþáttur hér á ferð.

    1 hr 21 min
  • #206 – Þú tryggir ekki (samskiptin) eftir á – Forsætisráðherra á ríkisstyrk

    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fjalla um fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM, um ákvörðun Seðlabankans um óbreytta stýrivexti og ákall formanns VR um götuóreiðir, forstjóraskipti hjá Play og hvort að hægt sé að reka hér tvö alþjóðleg flugfélög, um hlaðvarpsgerð starfsmanna Rúv um sjálfa sig, um endalausar uppsprettur skattahækkana, um ríkisstyrk til forsætisráðherra og margt fleira.

    1 hr 16 min
  • #205 – Hér er enginn lítill í sér – Sigmundur Davíð í viðtali

    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fv. forsætisráðherra, ræðir um stöðuna í stjórnmálunum bæði hér og erlendis. Rætt er um þunga málaflokka sem stjórnmálin eiga erfitt með, hvort að gagnrýni Miðflokksins á Sjálfstæðisflokkinn eigi rétt á sér, hvort að erindi stjórnmálamanna sé það sama í aðdraganda kosninga og að kosningum loknum, um Samfylkinguna sem Sigmundur Davíð segir vera í tísku, fyrirhugað forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur og margt fleira.

    1 hr 42 min

More shows like Þjóðmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners