Þjóðmál

Þjóðmál

By ÞjóðmálSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    39

    Followers

  • Typical duration

    93 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Þjóðmál episodes

  • #194 – Að loknu Viðskiptaþingi – Hvað eru fylgistölur stjórnmálaflokka að segja okkur?

    Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um Viðskiptaþing, hvernig Viðskiptaráð hefur þróast, hvort að stjórnendur í atvinnulífinu eigi að taka þátt í þjóðfélagsumræðunni og þá hvernig, um samskipti einkageirans og hins opinbera, hvort að áhersla fyrirtækja á samfélagsskýrslur fari þverrandi og fleira þessu tengt. Þá er einnig tekin umræða um stöðuna í stjórnmálunum, hvort að ólík afstaða stjórnarflokkanna í mörgum málum geri stjórnarsamstarfið erfiðara en það er nú þegar, um fylgi flokkanna í skoðanakönnunum og hvort það hefur áhrif á stefnur og mannaval – og margt annað í pólitíkinni.

    1 hr 23 min
  • #193 – Ísland er gulleyja full af tækifærum – Þórdís Kolbrún í ítarlegu viðtali

    Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra og varformaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir um stöðuna í stjórnmálunum og á stjórnarheimilinu, þá gagnrýni sem ríkisstjórnin fær á sig fyrir að ná ekki saman um stór og mikilvægi mál, um fjármálaráðuneytið og ríkisfjármálin, fyrirhugaða sölu á Íslandsbanka, hvernig hægt er að bregðast við stöðunni í Grindavík, stöðu Sjálfstæðisflokksins og margt fleira í ítarlegu viðtali.

    1 hr 18 min
  • #192 – Verðbólgan kólnar og gul viðvörun á vinnumarkaði – Er ástæða til að stofna þjóðarsjóð?

    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um hjaðnandi verðbólgu og útlitið framundan, hvort að von sá á vaxtalækkun, kjaraviðræður sem nú eru í frosti, ummæli Vilhjálms Birgissonar í nýlegu viðtali í Spursmálum, hvort að rétt sé að stofna þjóðarsjóð eða ekki, andstöðu Landverndar við framförum, um stöðu Alvotech og Marel og margt fleira.

    1 hr 19 min
  • #191 – Sannleikurinn er fyrsta fórnarlambið í stríði – Upplýst umræða um átökin fyrir botni Miðjarahafs
    Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Bjarni Már Magnússon, prófessor og forseti lagadeildar við Háskólann á Bifröst, ræða um stöðuna fyrir botni Miðjarahafs, um þá skautun sem á sér stað í umræðu um þau mál, frjálslega notkun gildishlaðinna hugtaka, og margt annað sem tengist þeim átökum sem nú eiga sér stað á svæðinu.
    1 hr 21 min
  • #190 – Er fálkinn orðinn múkki? – Tvígrip á glasið og ólögleg blokkering

    Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir atburði dagsins í pólitíkinni, vantrauststillögu sem var lögð fram en dregin til baka, aðdragandann og mögulegar afleiðingar, stöðuna í ríkisstjórnarsamstarfinu, aðgerðir vegna stöðunnar í Grindavík og þær ríkislausnir sem þar eru boðaðar, færslu utanríkisráðherra um mótmæli vegna hælisleitenda og margt fleira.

    1 hr 15 min
  • #188 – Svandís í vanda og siðfræðingarnir þagna – Árangur áfram, ekkert stopp í hlaðvarpi þjóðarinnar

    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um heitustu mál dagsins. Svandís Svavarsdóttir er í vanda og hlutabréfin eru græn. Það er ekki endilega orsakasamhengi þarna á milli en það er farið nánar yfir það í þættinum. Rætt er um stöðu matvælaráðherrans og ríkisstjórnarinnar, um þróun mála í kjaraviðræðum, dulda varasjóði ríkisins, stöðuna í orkumálum og afturhaldsáróður Landverndar, mögulegan smásölurisa sem kann að vera í smíðum og margt fleira. Svona byrjum við vikuna í hlaðvarpi þjóðarinnar.

    1 hr 7 min
  • #187 – Aukin orkuframleiðsla er forsenda framfara og hagsældar

    Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq Minerals, og Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og efnahagsráðgjafi Þjóðmála, ræða um orkumál í sögulegu og efnahagslegu samhengi. Rætt er um mögulegan orkuskort hér á landi, hvaða þýðingu það hefur að búa til orku, til hvers hún er nýtt, hvernig hægt er að auka orkuframleiðslu, hvernig við stöndum í samanburði við aðrar þjóðir og margt fleira.

    1 hr 26 min
  • #186 – Guðni kveður Bessastaði – Margir (halda að þér séu) kallaðir en fáir útvaldir

    Stefán Einar Stefánsson og Friðjón Friðjónsson ræða um þá óvæntu ákvörðun Hr. Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, að gefa ekki kost á sér á ný. Rætt er um hvaða ástæður kunna að liggja þar að baki, aðdragandann að því hvernig Guðni varð forseti, sögulegan fróðleik um forsetaembættið og þá sem setið hafa á Bessastöðum, hvaða kandídatar eru líklegir til að bjóða sig fram og það sem meira máli skiptir – hverjir eigi yfir höfuð erindi í þetta embætti.

    1 hr 44 min
  • #185 – Áramótaþáttur og flugeldasýning á Kringlukránni

    Það er mikill gestagangur í síðasta hlaðvarpþætti ársins sem tekinn er upp á Kringlukránni. Við horfum til viðskipta, atvinnulífs, stjórnmála og annarra þáttar þegar við förum yfir allt það helsta á árinu, tökum stöðuna um áramót og leggjum mat á komandi ár. Við förum yfir þetta í þremur lotum. Fyrst koma þeir Hörður Ægisson, Stefán Einar Stefánsson og Örn Arnarson. Í lotu tvö koma þau Gréta María Grétarsdóttir, Hermann Guðmundsson og Þórður Pálsson. Við ræðum við Sophus Sigurþórsson, eiganda Kringlukrárinnar, og í lotu þrjú þau Andrés Jónsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Sigríður Á. Andersen. Það er hörkuþáttur hér á ferð.

    3 hr 7 min

More shows like Þjóðmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners