Þjóðmál

Þjóðmál

By ÞjóðmálSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    39

    Followers

  • Typical duration

    93 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Þjóðmál episodes

  • #175 – Söknuður að samfélagi – Hvað verður um Grindavík og Grindvíkinga?

    Erla Ósk Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Marine Collagen í Grindvík, og Vilhjálmur Árnason alþingismaður, sem einnig er búsettur í Grindavík, ræða um þá stöðu sem komin er upp í bænum sem nú er búið að rýma, um þær áskoranir sem íbúar standa frammi fyrir við að koma lífinu í eins eðlilegt horf og hægt er, um stöðu atvinnulífsins á svæðinu og margt annað sem snýr að lífi Grindvíkinga um þessar mundir.

    49 min
  • #174 – Jörðin skelfur og Marel titrar – Skattar hækka í Garðabæ

    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson mæta í Þjóðmálastofuna, þó ekki skjálfandi eins og jörðin. Í þættinum er meðal annars fjallað um skattahækkanir í Garðabæ, uppsögn forstjóra Marel, lokun Bláa lónsins og það hvernig fámennur hópur hefur komið í veg fyrir að íbúar á Suðurnesjum búi við raforkuöryggi, það hvort að verkalýðshreyfingin sé líkleg til að standa sameinuð að kjarasamningum, grein þar sem krafist var brottreksturs seðlabankastjóra, laxadauða á Vestfjörðum og margt fleira.

    49 min
  • #173 – Stríð og friður í nútímanum – Stríðsfréttaritari Þjóðmála fer yfir stöðuna

    Kristján Johannessen, stríðsfréttaritari Þjóðmála og fréttastjóri á Morgunblaðinu, ræðir um stöðu mála í Úkraínu og fyrir botni Miðjarahafs. Rætt er um það hvort að innrás Rússa inn í Úkraínu falli í skuggann af átökum Ísraelsmenna við hryðjuverkasamtökin Hamas, hvernig vopnum er beitt á þessum svæðum, hvernig stuðningi Vesturlanda er háttað, hvaða hlutverki Ísland gegnir í þessu öllu saman og margt fleira.

    53 min
  • #172 – Grimmd fyrir botni Miðjarahafs – Yfirveguð umræða um hitamál

    Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um átökin sem nú eiga sér stað fyrir botni Miðjarahafs, orsök þeirra og afleiðingar, hvort og þá hvernig afleiðingar þeirra koma fram í íslenskum stjórnmálum. Rætt er um söguna sem liggur þarna að baki, um grimma stefnu Hamas-samtakanna, hvernig tillagan um tveggja ríkja lausn hefur fallið um sjálfa sig, hvort að hægt sé að byggja undir hagsæld í Gaza-svæðinu og margt fleira.

    1 hr 24 min
  • #171 – Markaðurinn lítill í sér – Vesen að eiga vildarpunkta – Bótaþegar á rafmagnsbílum

    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um hlutabréfamarkað í ládeyðu, flókna stöðu Marel og það hvort að verið sé að skortselja félagið, erfiðleika þingmanna við að eiga vildarpunkta, um verkalýðsleiðtoga sem eru ekki takt við félagsmenn sína, gagnrýni formanns Samfylkingarinnar á skattalækkanir fyrir tekjulága, afslátt við sölu á hlut í Hampiðjunni, litla framleg matvöruverslana, ríkisstyrk til rafmagnsbílaeigenda og margt fleira.

    56 min
  • #170 – Heiðrún Lind stígur ölduna í ólgusjó

    Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, ræðir um stöðu sjávarútvegsins, hvort að leyndarhyggja ríki yfir greininni eins og sumir stjórnmálamenn halda fram, möguleikann á frekar samþjöppun, um fiskeldi og tækifærin sem þar liggja, fjárfestingar og arðsemi og margt annað sem snýr að þessari mikilvægu atvinnugrein á Íslandi.

    1 hr 4 min
  • #169 – Afleiðingar óróleikans á hagkerfin – Lilja Dögg kíkir í Þjóðmálastofuna
    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, ræðir um stöðuna í efnahagslífinu hér heima og erlendis, hvaða áhrif átök hafa á hagkerfi heimsins og hvort að til sé að verða ójafnvægi í heimskerfinu út frá efnahag þjóða. Þá er rætt um stöðu ríkisstjórnarinnar, hvort það hafi virkilega verið bara best að kjósa Framsókn, Samkeppniseftirlitið og samskipti þess við atvinnulífið, stöðu fjölmiðla og hversu heilbrigt það sé að vera með ríkisstyrkta fjölmiðla, hvalrekaskatt og margt fleira.
    1 hr 9 min
  • #168 – Fjölskyldumynd í brotnum ramma á sunnudegi – Ríkisstjórn með kíki á blinda auganu – Hús Gyðinga merkt með stjörnu í Berlín
    Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson ræða um stólaskipti innan ríkisstjórnarinnar, helstu verkefni hennar, hvaða mál hún er að einblína á – og ekki að einblína á – og hver skilaboð hennar eru. Þá er einnig fjallað um átökin fyrir botni Miðjarahafs og það vaxandi gyðingahatur sem við höfum því miður orðið vitni að síðustu daga.
    1 hr 2 min
  • #167 – Aukaþáttur – Bjarni segir óvænt af sér

    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða í sérstökum aukaþætti um aðdraganda og ástæður fyrir óvæntri afsögn Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Rætt er um álit umboðsmanns Alþingis og þá þau atriði sem þar koma fram, hvaða pólitísku afleiðingar afsögn Bjarna hefur, hvort að andstæðingar Bjarna hafi borið sigur úr býtum og margt annað sem þessu tengist.

    46 min
  • #166 – Biðleikur Seðlabankans – Ráðherragrín eða ráðherrapirringur – Hrikalegir atburðir í Ísrael

    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um það hvort að ákvörðun Seðlabankans um að hækka ekki vexti í síðustu viku hafi átt að koma á óvart eða hvort um biðleik sé að ræða, um skrýtin viðbrögð við ráðherragríni og enn eitt höggið í innri samskipti ríkisstjórnarinnar, um sviptingar á fjármálamarkaði, um þá hræðilegu atburði sem áttu sér stað í Ísrael um helgina og furðuleg viðbrögð þeirra sem styðja aðgerðir Hamas-samtakanna. Þá er einnig farið yfir spurningar úr sal og margt fleira.

    1 hr 8 min

More shows like Þjóðmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners