
Sign up to save your podcasts
Or


Based on Podcast App listening data
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um stýrivaxtahækkun Seðlabankans og það hvort að bankinn sé að missa salinn eða standi fastur fyrir á sínu, um stöðuna á vinnumarkaði og undarleg ummæli verkalýðsforystunnar, um forstjóraskiptin í Kviku banka, hlutverk Stoða í fjárfestingum hér á landi, undarlegan samning Samkeppniseftirlitsins við matvælaráðuneytið og margt fleira. Þá svörum við nokkrum spurningum frá hlustendum sem við fengum sendar fyrir þáttinn.
Við skellum í fjögurra klukkustunda þátt fyrir þá sem hlaupa maraþon – og alla hina sem vilja alvöru umræðu um þjóðfélagsmál. Fjölmargir gestir líta við og bjóða hér upp á úrvalsefni sem enginn má láta framhjá sér fara.
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um hugmyndir framsóknarmanna um bankaskatt, losunarheimildir í skipaflutningum og viðhorf stjórnvalda til atvinnulífsins í því samhengi, um undarleg ummæli orkumálastjóra, kyrrstöðu í frekari orkuöflun og verðmætasköpun í landinu og það hvort að stjórnkerfið sé fullt af fólki sem vill ekki sjá frekari orkuöflun. Í þættinum er einnig rætt um bréf forstjóra Stoða til hluthafa félagsins og gagnrýni hans á rekstur Kviku banka, um það hvort að Þorsteinn Víglundsson sé að munda sig upp í það að verða formaður Samtaka atvinnulífsins, hvort að von sé á frekari hækkun stýrivaxta í næstu viku, hvort að Vestfjarðarlína sé mikilvægari en Borgarlína og margt fleira.
Björn Bjarnason ræðir um stöðuna í stjórnmálunum, bæði hér á landi og erlendis. Rætt er um kvikmyndina um Oppenheimer og það hvaða áhrif framleiðsla á kjarnorkuvopnum hefur haft á valdajafnvægi í heiminum, stöðuna í Úkraínu og hvað kann að vera framundan á þeim vígstöðvum, um það hvort við séum að meta alþjóðastjórnmál í baksýnisspeglinum eða hvort við getum metið framtíðina af atburðum nútímans og margt fleira. Þá er einnig rætt um stöðuna í stjórnmálum hér á landi, ágreining innan ríkisstjórnarinnar, brothætta stöðu Samfylkingarinnar og fleira.
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara léttir inn í verslunarmannahelgina. Í nýjum þætti er rætt um stöðu ferðaþjónustunnar og hvernig ferðamenn við viljum helst fá til landsins, um hagnað bankanna og traust almennings til bankakerfisins, um nýja stjórn Íslandsbanka og það hvernig kjör hennar fór fram, um þingmann Pírata sem vill efla lögregluna og margt fleira.
Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson fara yfir málefni líðandi stundar á helgarvakt hlaðvarps Þjóðmála. Rætt er um tiltrú á aðgerðir Seðlabankans og stjórnvalda í baráttu við verðbólgu og hvort að það sé rétt að tala um verðbólgu sem gróðabólgu, hvort það sé góð hugmynd að stofna þjóðarsjóð, það hvernig stjórnvöld nota Samkeppniseftirlitið eins og svissneskan vasahníf, um hluthafafund í Íslandsbanka, hvort að ferðaþjónustan sé að draga niður kaupmátt heimilanna og það hvort að heimurinn sé að stikna eða hvort það eigi bara við um gufubaðið hjá Stefáni Einari.
Hlaðvarp Þjóðmála kíkir í heimsókn á Friðheima og þáttur dagsins er tekinn upp í nýrri vínstofu þar á bæ. Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um mikilvæga atvinnuuppbyggingu í tómataframleiðslu og ferðaþjónustu og hvaða þýðingu það hefur þegar fólk tekur áhættu og leggur sig fram við að ná árangri. Þá er rætt um minnkandi verðbólgu og hvort ástæða sé fyrir bjartsýni í þeim málum, um veiðiferð Samkeppniseftirlitsins á sjávarútveginn, viðtal við Þorstein Víglundsson sem birtist í ViðskiptaMogganum, evruþráhyggju Viðreisnar, komandi hluthafafund í Íslandsbanka og margt annað í innihaldsríkum þætti.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, kemur víða við í ítarlegum þætti. Rætt er um samstarfið í ríkisstjórninni og það hvort að samstarfið hangi á bláþræði, þann pólitíska vilja sem skortir til að taka á málefnum hælisleitenda, helstu áskoranirnar sem eru framundan á vettvangi stjórnmálann, hvort að til greina komi að selja fleiri ríkisfyrirtæki, hvort að við séum búin að missa tökin á ríkisfjármálum, hvort til greina komi að lækka skatta enn frekar, hvort að embættismenn hafi fengið of mikil völd og margt fleira.
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um þau mál sem hæst bera í góða veðrinu, hvernig þjóðfélagsumræðan fær að þróast og hverjir móta hana, hvort að hrópræði nái yfirtökum á umræðu á vettvangi stjórnmála, flókna stöðu forsætisráðherra sem segist vera á móti Atlantshafsbandalaginu en missir helst ekki af fundi þar, einkennilega áráttu opinberra starfsmanna til að banna allt mögulegt, og margt margt fleira.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, ræða um viðskiptafrelsi, samkeppnishæfni, samkeppni einkaaðila við ríkið, hvernig ríkið setur reglur sem reynast þröskuldar fyrir atvinnulífið, hvort einhver hafi beðið um ríkisrekstur í bögglasendingum og margt annað sem tengist útþenslu hins opinbera og það hvernig einkageirinn líður fyrir vikið.
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

462 Listeners

141 Listeners

22 Listeners

130 Listeners

26 Listeners

15 Listeners

7 Listeners

72 Listeners

32 Listeners

19 Listeners

34 Listeners

15 Listeners

7 Listeners

27 Listeners

15 Listeners