
Sign up to save your podcasts
Or


Based on Podcast App listening data
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fjalla um söluna á Kerecis, hversu ánægjulegt það er að auðmönnum skuli fjölga hér á landi, það mikilvæga hlutverk sem félagið gegnir og hvaða áhrif salan kanna að hafa í för með sér. Þá er fjallað um undarleg ummæli framsóknarþingmanns í umræðuþætti ríkisradíósins, ríkisendurskoðanda sem er lítill í sér og vantar athygli, fasteignafélögin sem allt í einu er vert að ræða um og margt, margt annað. Það er engin júlíútsala í hlaðvarpi Þjóðmála.
Andrés Magnússon og Karítas Ríkharðsdóttir ræða um stöðuna í ástlausu hjónabandi ríkisstjórnarinnar, erjurnar sem hafa komið upp á stjórnarheimilinu og hvaða afleiðingar þær kunna að hafa, grein Óla Björns Kárasonar þar sem hann næstum því kallar eftir stjórnarslitum, hvernig næstu vikur og mánuðir kunna að vera og annað skemmtilegt úr stjórnmálum dagsins.
Kristján Johannessen og Stefán Gunnar Sveinsson frá Morgunblaðinu þekkja manna best stöðuna á austur-vígstöðum. Þeir fara yfir undarlega atburðarrás síðustu helgi þegar það leit út fyrir uppreisn í rússneska hernum, hvernig staðan er núna og hvað kann að vera framundan. Hlaðvarp Þjóðmála nærir og fræðir þjóðina.
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um rannsókn Fjármálaeftirlits Seðlabankans á starfsháttum Íslandsbanka, hvaða áhrif hún kunni að hafa, hvaða viðbrögð hún ætti að kalla fram og annað sem tengist málinu. Þá er fjallað stuttlega um ævintýralegt viðtal þar sem fyrrverandi seðlabankastjóri reynir, með undraverðum hætti, að endurskrifa söguna sér í hag.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar og nýsköpunarráðherra, ræðir um það af hverju það skiptir máli í efnahagslegu tillitil að fá stráka til að hefja háskólanám, hvernig við berum okkur saman við önnur ríki og hvað við gætum mögulega lært af öðrum þjóðum. Þá gagnrýnir hún stjórnmálamenn sem líta á skattgreiðendur sem hlaðborð sem hægt sé að velja úr og ræðir um það hvernig stjórnmálin eiga það til að finna skyndilausnir án þess að leysa áskoranir til lengri tíma. Loks er rætt um hin svonefndu frelsismál sem hún segir að dragi upp muninn á milli flokka í pólitík – og margt fleira.
Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um aðdraganda, áhrif og afleiðingar ráðherraskipta í ríkisstjórn, þau áhrif sem Jón Gunnarsson hefur haft og hvaða áhrif Guðrún Hafsteinsdóttir kann að hafa, það hvort að umræða um málefni útlendinga hafi breyst og þá hvernig, hvernig þingheimur tekst á við breytingar á áfengismálum, það hvort að stjórnmálin séu eftirsóttur starfsvettvangur og hvaða atvinnumöguleika fyrrverandi stjórnmálamenn eiga og margt, margt annað í stútfullum þætti.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræðir um orkumál og það hvort að stjórnvöld hafi sett sér óraunhæf markmið í loftslagsmálum, um uppbyggingu á íbúðamarkaði og mat á því hvaða áhrif þessi tvö atriði hafa á lífsgæði hér á landi. Þá er rætt um stöðuna á fjármálamarkaði og fyrirhugaðar sameiningar fjármálafyrirtækja, samkeppnishæfi landsins og margt annað.
Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson ræða um ummæli seðlabankastjóra um ríkissáttasemjara og verkalýðshreyfinguna, rætt er um verkfall BSRB, mýtuna um elíusamfélög, hverjir það eru sem greiða skatta í raun og veru og margt fleira gagnlegt.
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

462 Listeners

141 Listeners

22 Listeners

130 Listeners

26 Listeners

17 Listeners

7 Listeners

72 Listeners

32 Listeners

20 Listeners

36 Listeners

15 Listeners

7 Listeners

27 Listeners

14 Listeners