Þjóðmál

Þjóðmál

By ÞjóðmálSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    39

    Followers

  • Typical duration

    93 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Þjóðmál episodes

  • #125 – Andvökunætur Alvotech – Bjagaðar hugmyndir Katrínar um arðgreiðslur

    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um þær áskoranir sem Alvotech stendur frammi fyrir, hóflega væntingastjórnun til vaxtafyrirtækja og hvaða afleiðingar rekstur félagsins getur haft á íslenskt efnahagslíf. Þá er rætt um misheppnaða tilraun forsætisráðherra til að tengja saman arðgreiðslur og verðbólgu, aðför matvælaráðherra að sjávarútvegi, stöðuna á samruna VÍS og Fossa og undarlegan skort á vilja yfirvalda til að hækka lánshæfismat landsins. Það er komið víða við í þætti dagsins.

    1 hr 9 min
  • #124 – Rekstur Reykjavíkur í ruglinu og „rútínubréf“ í ruslinu – Þriðja vaktin fer yfir málin

    Þórður Gunnarsson hagfræðingur og Örn Arnarson, ritstjórnarfulltrúi á Viðskiptablaðinu, fjalla um fjárhagsvandræði Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga, útskýringar – eða útúrsnúninga –borgarstjóra á vandanum, óðavöxt stjórnsýslunnar í borginni og hvort að hægt sé að snúa við þessu olíuskipi sem siglir í strand. Þá er fjallað um skýrslu starfshóps um endurskoðun þjónustuhandbókar um vetrarþjónustu og þá snilldartillögu að miða snjómokstur við snjókomu. Loks er fjallað um það þá ákvörðun ráðherra vinnumarkaðsmála að gera ekki nauðsynlegar breytingar á vinnumarkaðslöggjöfinni.

    44 min
  • #123 – Páskauppgjörið með Herði og Stefáni Einari
    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson mæta í páskaskapi. Fjallað er um ársfund Seðlabankans og ráðningu aktívista í nýja stöðu innan bankans, breytingar á forystu Samtaka atvinnulífsins, leigubílstjóra sem líta á snjallsímavæðingu sem „verkfæri Satans“, orð forsætisráðherra um að atvinnulífið skuldi ríkinu pening, „táknræna“ skattahækkun, um gildi Gildis og margt fleira í gamansömum þætti með alvarlegu ívafi.
    1 hr 15 min
  • #122 – Ríkisstjórn í hagkvæmnishjónabandi – Dracula í blóðbankanum
    Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, mæta í Þjóðmálastofuna eftir viðburðarríka viku. Rætt er um endalok Fréttablaðsins og stöðu fjölmiðla, misheppnaða vantrauststillögu á dómsmálaráðherra og kostnaðarsamt ríkisstjórnarsamstarf, fjármálaáætlun sem enginn fagnar og það hvort að við séum búin að missa tökin á ríkisútgjöldum.
    1 hr 15 min
  • #121 – Hið ósýnilega stríð Seðlabankans – Kjósendur VG ávarpaðir úr Saga Class sæti
    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson mæta í sínu besta formi í afmælisþátt hlaðvarps Þjóðmála. Rætt um er hækkandi stýrivexti, vandann sem felst í því að takast á við verðbólgu, um stjórnmálamenn sem fljúga á fyrsta farrými og vilja auka tekjur ríkisins frekar en að lækka útgjöld þess og margt annað áhugavert. Þá er sérstaklega rætt um valdabaráttu um og innan Seðlabankans, sem kann að hafa áhrif á það hvað bankinn segir og gerir.
    1 hr 13 min
  • #120 – Þórður Pálsson fer yfir stöðuna – Niðursveifla er lækning, ekki sjúkdómur
    Þórður Pálsson fer yfir stöðu mála í alþjóðlega fjármálakerfinu sem titrar aðeins þessa dagana – og ástæður þess að titringurinn er til staðar, um aukna skuldasöfnun ríkja, um efnahagshorfurnar framundan og ástæðuna fyrir því að hann telur að Seðlabankinn þurfi að hækka vexti enn frekar. Þá er rætt um hagnað og arðgreiðslur fyrirtækja, en hvoru tveggja er mikilvægt til að hagkerfin haldi áfram að vaxa.
    52 min
  • #119 – Breytt heimsmynd – Þörf á alvöru umræðu um öryggis- og varnarmál

    Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ræðir um stöðu mála í Úkraínu, hvaða áhrif stríðið þar hefur haft á samstarf vestrænna ríkja, hverjir mögulegir eftirmálar stríðsins geta orðið og annað þessu tengt. Þá er rætt um öryggis- og varnarmál hér á landi, skort á umræðu um þessa þætti á vettvangi stjórnmála, hugmyndir sem komið hafa fram um íslenskan her og fleira. Þá er einnig fjallað um sumt af því helsta á vettvangi stjórnmála hér á landi um þessar mundir, endurteknar mýtur um Evrópusambandið, stöðu fjölmiðla og margt fleira.

    1 hr 4 min
  • #118 – Sjáumst í næsta stríði – Miðlunartillaga og minnipokamenn
    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir stöðuna á vinnumarkaði og hvað nú tekur við eftir að miðlunartillaga var samþykkt, rætt er um fjarlægan möguleika á þjóðarsátt gegn verðbólgu, um meint ofurlaun forstjóra og það hvaða hlutverki lífeyrissjóðir gegna við mótum starfskjarastefnu skráðra fyrirtækja, afsökunarbeiðni Aftenposten og fleira.
    56 min
  • #117 – Verðbólga og vargöld á vinnumarkaði – Vinnumálaráðherra í felum
    Karítas Ríkharðsdóttir og Þórður Gunnarsson ræða um hækkandi verðbólgu, deilu Eflingar á vinnumarkaði og fleira. Rætt er um það hvort og þá hvernig stjórnmálin eigi að bregðast við og hvaða áhrif núverandi staða kann að hafa á stjórnarsamstarfið. Þá eru ræddar vangaveltur um það hvort að Alþingi megi sín mikils gagnvart ráðuneytum og ríkisstofnunum þar sem þau síðarnefndu hafa talsvert svigrúm til að setja reglur og viðmið um daglegt líf borgaranna.
    54 min
  • #116 – Rútuslys á vinnumarkaði en Efling fær kaffi með forsætisráðherra

    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um nýjustu vendingar í vinnudeilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins, boð um verkbann, hvort tilefni sé fyrir stjórnvöld til að grípa inn í málið, stöðu (og mistök) ríkissáttasemjara, orðræðunni um þá sem ekki lúta boðum Eflingar og margt fleira. Þá er rætt um fyrirhugaðan samruna VÍS og Fossa í samanburði við samruna Kviku og Íslandsbanka.

    1 hr 2 min

More shows like Þjóðmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners