Þjóðmál

Þjóðmál

By ÞjóðmálSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    39

    Followers

  • Typical duration

    93 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Þjóðmál episodes

  • #115 – Réttlátt réttarfar – Jón Steinar fer yfir málin
    Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fv. hæstaréttardómari, ræðir um þá gagnrýni sem hann hefur lagt fram á íslenska dómskerfið, það hvernig dómarar starfa og hvernig þeir eru skipaðir, hvaða afleiðingar það getur haft að gefa afslátt af grundvallarreglum réttarríkisins, fjallað er um dómara sem dæmdu bankamenn í fangelsi eftir að hafa sjálfir tapað töluverðum upphæðum og margt fleira.
    1 hr 4 min
  • #113 –Djúpgreining SKE á majónesmarkaði – Upplestur
    Hlaðvarp Þjóðmála er upplýsandi hlaðvarp. Við fengum því góðan vin þáttarins til að lesa upp hluta af úrskurði Samkeppniseftirlitsins þar sem samruni Kaupfélags Skagfirðinga og Gunnars ehf. var ógildur. Eftir að hafa skoðað málið í heila níu mánuði er það mat Samkeppniseftirlitsins samruninn hefði haft alvarlegar afleiðingar fyrir samkeppni, viðskiptavinum og neytendum til tjóns, eins og það var orðað í tilkynningu á vef eftirlitsins. Hér er majónesmarkaðurinn greindur í þaula og mikilvægt að þjóðin sé vel upplýst um alla anga málsins. Ekki ríkir þó ágreiningur um sinnepsmarkaðinn.
    44 min
  • #112 – Hrun Framsóknar í Reykjavík – Hversu lengi skín stjarna Kristrúnar? – Þarf Gísli Marteinn Hummer?
    Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson fara yfir það helsta í stjórnmálunum í dag – og það sem er ekki að eiga sér stað sem stundum er ekki síður mikilvægt. Rætt er um fylgisaukningu Samfylkingarinnar, hvernig hún kemur til og hvort hún sé komin til vera, um það hvort forystuskipti verði í íslenskum stjórnmálum á næstu árum, umræðu um málefni útlendinga sem nú fer fram á Alþingi, hvaða áhrif staðan í efnahagsmálum kann að hafa á stjórnmálin, hrun Framsóknar í borginni og margt fleira.
    1 hr 5 min
  • #111 – Úkraínumenn fá betri vopn og búnað – Hvað er framundan í stríðinu?
    Kristján Johannessen, fréttastjóri á Morgunblaðinu, mætir aftur til að ræða um stöðu mála í Úkraínu, hvernig stríðið hefur breyst úr því að vera varnarstríð yfir í að vera átök um landvinninga, hvort að sá búnaður sem Vesturlönd eru að senda Úkraínumönnum muni gagnast og hvernig, hvað kunni mögulega að vera framundan í átökunum, hvort og þá hvernig átökin geta stigmagnast, hvaða áhrif átökin hafa á umræðu hér á landi um öryggis- og varnarmál, hvort að stríðið sé einnig stríð um upplýsingaflæði og margt fleira.
    48 min
  • #110 – Ríkissáttasemjari ýtir á rauða hnappinn – Meðalgóður dansari stígur út á sviðið og skyggir á ballerínuna
    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fjalla um nýjustu vendingar í kjaramálum eftir að ríkissáttasemjari lagði fram miðlunartillögu sem knýr félagsmenn í Eflingu til að kjósa um þann kjarasamning sem lagður hefur verið fram og samþykktur af öðrum félögum. Rætt er um hvort það sé ábyrg ákvörðun eða ótímabær. Þá er rætt um stöðu ÍL sjóðs, hvort að fyrrverandi umboðsmaður Alþingis hafi eitthvað raunverulegt fram að færa um sölu ríkisins í Íslandsbanka, um uppkaup á gjaldeyrismarkaði og hversu spenntir íslenskir fjárfestar eru fyrir Alvotech.
    1 hr 1 min
  • #109 – Heiðar Guðjóns fjallar um hringrásarhagkerfi vondra hugmynda frá vinstri

    Heiðar Guðjónsson fjárfestir ræðir um hvaða áhrif – og afleiðingar – það hefur þegar ríkisvaldið verður of stórt og ósjálfbært, hvort að Ísland sé að stefna í þá átt, hvernig hagkerfi heimsins koma til með að breytast á næstu áratugum í samanburði við liðin ár, hvernig stjórnmálamenn tala ítrekað um sjálfbærni en reka ósjálfbæran ríkissjóð, fortíðarþrá vinstri manna og hringrásarhagkerfi vondra hugmynda. Þá er rætt um yfirvofandi orkukreppu, ónýtt tækifæri Íslands í notkun orkuauðlinda og þann efnahagslega skaða sem sjónarmið Landverndar hafa verði þau ofan á í umræðunni. Loks ræðir hann um það hvað gerist þegar stjórnmál og viðskipti rugla reitum og fyrirtæki huga meira að pólitískum rétttrúnaði frekar en því að skapa verðmæti. Það er því komið víða við í innihaldríkum þætti.

    57 min
  • #108 – Þegar fíflunum fjölgar – starfsmaður á plani í egótrippi – ríkisbankinn sópar upp gjaldeyri
    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um stöðuna á vinnumarkaði og þann skaða sem Efling kann að valda með fyrirhuguðum aðgerðum, lélegt val RÚV á álitsgjöfum um viðskipti og efnahagsmál, hvaða þýðingu það hefur að gera sátt við yfirvöld, um skrýtinn fréttaflutning af mengun í Reykjavík, uppsagnir forstjóra og loks stöðuna á gjaldeyrismarkaði. Það er því komið víða við í þætti dagsins .
    1 hr 30 min
  • #107 – Fjárfestingar og fjármálalæsi með Fortuna Invest
    Aníta Rut Hilmarsdóttir, viðskiptastjóri í eignastýringu hjá Fossum fjárfestingabanka, og Rósa Kristinsdóttir, sérfræðingur í fjárfestingum hjá sjóðastýringarfélaginu Vex, stofnuðu samstarfsvettvanginn Fortuna Invest ásamt Kristínu Hildi Ragnarsdóttur. Tilgangur Fortuna er að stuðla að auknu fjármálalæsi og auka fjölbreytta þátttöku á fjármálamarkaði. Í þættinum ræða þær Aníta og Rósa um ræða um fjárfestingar, sparnað, fjármálalæsi, kynjahlutföll á markaði og margt annað – auk þess sem þær velta upp spurningunni hvort að fjárfestingar séu fyrir alla.
    42 min
  • #106 – Þriðja vaktin með Þórði og Erni
    Þórður Gunnarsson frá Innherja og Örn Arnarson frá Viðskiptablaðinu taka þriðju vaktina þessa helgi. Lifandi þáttur þar sem rætt er um mikilvægi styttingu vinnuviku opinberra starfsmanna, hringrásaverðmæti verðmætanna sem meðal annars leggja grunn að ríkisreknum fjölmiðli, það hvort að matvöruverslanir þurfi að gefa eftir af arðsemiskröfu sinni og margt annað skemmtilegt.
    53 min

More shows like Þjóðmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners