Þjóðmál

Þjóðmál

By ÞjóðmálSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    39

    Followers

  • Typical duration

    93 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Þjóðmál episodes

  • #105 – Áramótasprengjan með Herði og Stefáni Einari
    Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja, og Stefán Einar Stefánsson, dagskrárgerðarmaður á Morgunblaðinu, fara yfir árið sem nú er að líða. Fjallað er um áhrif af verðbólgunni sem fáum nú að kynnast í fyrsta sinn af einhverri alvöru í tæp 40 ár, aukin ríkisútgjöld, kjánaskap verkalýðshreyfingarinnar, stjórnleysið í Reykjavík, undarlega umræðu í kringum söluna á Íslandsbanka og skrýtna skýrslu Ríkisendurskoðunar, söluna á Mílu, aðra jákvæða þætti í viðskiptalífinu og margt fleira.
    1 hr 9 min
  • #104 – Geir H. Haarde ræðir um landsdómsmálið og ferilinn í stjórnmálum
    Geir H. Haarde, fv. forsætisráðherra, ræðir um nýútkomna bók Hannesar H. Gissurarsonar stjórnmálafræðiprófessors um landsdómsmálið, sem líklega er svartasti blettur á íslenskri stjórnmálasögu. Beita þurfti pólitískum klækjum til að velta málinu af stað og dómarar í málinu teygðu sumir lagabókstafinn nokkuð langt til að komast að þeirri niðurstöðu. Þá ræðir Geir jafnframt um feril sinn í stjórnmálum, árangurinn sem hann náði og hvað tók við eftir að ferlinum lauk.
    51 min
  • #102 – Uppgjör bankamanns með Lárusi Welding
    Lárus Welding, fv. forstjóri Glitnis, segir frá nýútkominni bók sinni, Uppgjör bankamanns. Í þættinum ræðir hann um tíma sinn hjá Glitni og 12 ára baráttu í réttarkerfinu, lærdóminn sem draga má af því ferli, um mýturnar sem sköpuðust í kringum starfsemi bankanna fyrir hrun og fleira þessu tengt. Þá ræðir hann einnig um stöðuna í íslensku efnahagslífi – sem og því breska þar sem hann starfar hluta af ári.
    51 min
  • #101 – Allt sem þú vilt vita um Kóreustríðið og hvaða áhrif það hafði á heiminn
    Út er komin bókin Kóreustríðið eftir breska sagnfræðinginn Max Hastings, í þýðingu Magnúsar Þórs Hafsteinssonar. Magnús Þór er gestur í hlaðvarpi Þjóðmála þar sem hann fjallar um bókina, pólitíkina á bakvið stríðið, af hverju það er stundum talað um Kóreustríðið sem týnda stríðið, af hverju því lauk í raun aldrei, hvaða afleiðingar það hefur enn í dag, hvaða áhrif stríðið hafði á Ísland og marga aðra vinkla sem þessu tengjast.
    57 min
  • #100 – Eru Tenerife-ferðir flatskjáir nútímans? – Borgarlína toppar ÍL-sjóð – Velmegunarvandi Landverndar
    Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara, í hundraðasta þættinum í hlaðvarpi Þjóðmála, yfir það helsta sem er að eiga sér stað þessa dagana. Þar má nefna kjaraviðræður og óstöðuga leiðtoga verkalýðshreyfingarinnar, hvort að þjóðin sé að hlusta á varnarorð seðlabankastjóra, hvort og hvenær velmegun leiðir okkur út í skurð og hverjir það eru sem skapa raunveruleg verðmæti. Þá er rætt um atburði sem eru að eiga sér stað í Kína og Íran þar sem ungt fólk er að rísa upp gegn stjórnlyndi.
    1 hr 15 min
  • #99 – Lækkun skatta er ákvörðun – Hægt að gera betur í rekstri sveitarfélaga
    Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, kom eins og stormsveipur inn íslensk stjórnmál fyrr á þessu ári. Hún ræðir hér um rekstur Kópavogsbæjar, um loforðalistann sem hún lagði fram fyrir kosningar, mikilvægi þess að halda sköttum og gjöldum í lágmarki, hvernig skattar eru að lækka í Kópavogi á meðan þeir eru að hækka í Reykjavík, hvort að sveitarfélögin séu að sinna óþarfa verkefnum, hvort það sé gott fyrir skattgreiðendur að mynduð sé pólitísk sátt um útgjöld hins opinbera og margt fleira.
    47 min
  • #98 – Verðmætin í hafinu verða ekki til af sjálfu sér
    Agnes Guðmundsdóttir, markaðsstjóri hjá Icelandic-Asia, og Margrét Kristín Pétursdóttir, forstöðumaður gæðamála hjá Vísi, ræða um Félag kvenna í sjávarútvegi og stöðu kvenna í karllægum geira, um stöðu sjávarútvegsins, nýsköpun í greininni, sjálfbærni og umhverfismál, um framtíðina í íslenskum sjávarútvegi, breytta neytendahegðun og auknar kröfur neytenda og margt fleira.
    46 min
  • #97 – Blind stjórnarandstaða leiðir halta fjölmiðla - Allt sem þú þarft að vita um sölu á ríkisbanka
    Viðskiptablaðamennirnir Hörður Ægisson og Örn Arnarson ræða um viðbrögðin við skýrslu Ríkisendurskoðunar um söluna á Íslandsbanka, þá þætti sem stjórnmálamenn kjósa að líta framhjá eða misskilja, hvort ríkið hefði getað fengið meira fyrir bankann en raun bara vitni og hvort það hefði verið æskilegt markmið, umfjöllun fjölmiðla og margt annað sem tengist þessu máli sem er á allra vörum um þessar mundir.
    47 min
  • #96 – Líf eftir landsfund – Einn fyrir alla og allir fyrir alla
    Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson fara yfir landsfund og formannskjör Sjálfstæðisflokksins, stöðu þeirra sem þar buðu sig fram eftir fundinn, stöðu flokksins og áhrifin á stjórnmálin. Þá er einnig rætt um stöðu Samfylkingarinnar sem nýlega kaus sér nýjan formann, það hvort að flokkurinn hafi tekið upp nýja stefnu, stöðu annarra flokka sem vilja verða stórir og það hvernig flokkum sem vilja ná höfða til allra gengur í pólitík.
    54 min

More shows like Þjóðmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners