Þjóðmál

Þjóðmál

By ÞjóðmálSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    39

    Followers

  • Typical duration

    93 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Þjóðmál episodes

  • #85 – Krýning Kristrúnar – Er pláss fyrir pólitík í stjórnmálum? – Einar tekur boltann en ekki hitann
    Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um framboð Kristrúnar Frostadóttur til formanns Samfylkingarinnar, stöðu flokksins og hvar hann ætlar að staðsetja sig í íslenskum stjórnmálum. Einnig er einnig rætt um stöðu annarra flokka og hvort að það séu leiðtogakrísur framundan, klúður meirihlutans í Reykjavík við úthlutun leikskólaplássa, það hvort að borgarstjóri sé búinn að missa salinn og hlutverk Einars Þorsteinssonar. Loks er rætt um styrjaldarástandið sem ríkir innan verkalýðshreyfingarinnar og hvort – og þá hvaða – áhrif það mun hafa á kjaraviðræður.
    1 hr 34 min
  • #84 – Kampavín og kjarasamningar – Skemmdarverk Samkeppniseftirlitsins – Hver ræður hverju innan Seðlabankans?
    Stefán Einar Stefánsson og Hörður Ægisson ræða um brotthvarf forseta ASÍ og átök innan verkalýðshreyfingarinnar, áhrif þess á komandi kjaraviðræður, áhrif byltingarinnar á liðsmenn hennar og fleira þessu tengt. Þá er rætt um sölu Símans á Mílu og þann skaða sem Samkeppniseftirlitið hefur valdið í því máli. Loks er rætt um möguleika Seðlabankans til að takast á við verðbólgu og efnahagsaðstæður – en ekki síst um stöðu Ásgeirs Jónssonar innan Seðlabankans, þann mannskap sem hann hefur sér til aðstoðar og hvernig til hefur tekist með sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins
    1 hr 20 min
  • #82 – Brekkusöngur kapítalismans með Hannesi Hólmsteini
    Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor mætir í gott spjall í aðdraganda verslunarmannahelgarinnar. Í þættinum er meðal annars rætt um það hvort að hið frjálsa markaðshagkerfi hafi í raun sigrað eftir að ráðstjórnarríkin hrundu og hvort kapítalisminn sé ríkjandi sigurvegari. Þá er rætt um það hvort að hugsuðir og hugmyndafræðingar séu enn til, um baráttu hugmynda, popúlisma, slaufunarmenningu og vælugang, afleiðingar af of háum sköttum og margt fleira.
    1 hr 5 min
  • #81 – Undir ægivaldi Samkeppniseftirlitsins – Eru tilnefninganefndir óþarfar?
    Viðskiptablaðamennirnir Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta sem er að gerast í viðskiptalífinu; kaup Ardian á Mílu, tafir Samkeppniseftirlitsins á því máli og fleirum, valdabaráttu í Festi og hlutverk tilnefninganefnda, nýjar skráningar á markaði, verðbólguhorfur, það hvort að aðgerðir Seðlabankans séu að virka eða ekki og margt fleira.
    1 hr 30 min
  • #80 – Tjáningarfrelsið sett á bálköstinn?

    Arnar Þór Jónsson, lögmaður og varaþingmaður, fjallar um tjáningarfrelsi og þjóðfélagsumræðu, hver má segja hvað, hvenær og hvernig – og hver ekki. Þá er rætt um hvaða afleiðingar það hefur ef að dómstóll götunnar tekur sér aukið vald á kostnað réttarríkisins, hvort að opinberar stofnanir og embættismenn hafi gengið of langt gagnvart almenningi og fyrirtækjum og hvort það samfélaginu sé stjórnað af lýðræðislega kjörnum fulltrúum eða öðrum kerfisþáttum.

    1 hr 8 min
  • #79 – Hver er Jordan Peterson og hvað hefur hann að segja?
    Gunnlaugur Jónsson fjallar um kanadíska sálfræðinginn Jordan Peterson, sem kemur í annað sinn til Íslands og flytur fyrirlestur í Háskólabíó á laugardaginn. Peterson hefur vakið athygli víða um heim og bækur hans hafa verið metsölubækur. En hver er þessi maður, hvað hefur hann að segja og af hverju sækja svo margir, þá sérstaklega karlmenn, í það að hlusta á hann? Þessum spurningum og fleiri til er svarað í þættinum, einnig er farið fyrir muninn á eitraðri karlmennsku og því að sýna krafta sína, hvort réttara sé að fylgja hópnum eða standa með sjálfum sér og margt fleira.
    53 min
  • #78 – Hvað er að gerast í hagkerfinu? – Þegar Kína hnerrar fær Evrópa kvef
    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um stöðu mála í hagkerfinu, af hverju hlutabréfaverð er að lækka, hvað sé að valda aukinni verðbólgu, áhrif stríðsins í Úkraínu á hagkerfi bæði hér heima og erlendis, hvort við séum að fara inn í kreppuástand og fleira til. Þá er einnig rætt um nýlegt útboð Ölgerðarinnar og Nova og það hvernig mismunandi aðferðir við útboðin geta haft áhrif á trúverðugleika hlutabréfamarkaðarins.
    56 min
  • #77 – Ekki pláss fyrir tvær drottningar í sömu höll – Er Einar Þorsteinsson íslenska útgáfan af Obama?
    Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um myndun nýs meirihluta í Reykjavík, það hvort að Dagur B. Eggertsson hafi snúið sér út úr erfiðri stöðu og hvort hann eigi erindi í formannsstól Samfylkingarinnar, hvort að Einar Þorsteinsson sé íslenska útgáfan af Obama og hversu lengi nýjabrumið varir, hvort að komið sé fordæmi fyrir því að útiloka Sjálfstæðisflokkinn frá ríkisstjórnarsamstarfi og margt fleira sem helst ber á góma í pólitískri umræðu í dag.
    54 min
  • #76 – Sjálfstæðisflokkurinn þarf að vakna

    Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og fv. borgarfulltrúi, ræðir um endurmyndun vinstri meirihluta í Reykjavík, stöðu Sjálfstæðisflokksins og áform vinstri aflanna að setja flokkinn út í horn í landsmálunum. Þá er rætt um dyggðarstjórnarmál, hneykslunarbylgjur og bergmálshella í stjórnmálaumræðu sem nær litlum framförum.

    53 min

More shows like Þjóðmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners