Þjóðmál

Þjóðmál

By ÞjóðmálSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    39

    Followers

  • Typical duration

    93 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Þjóðmál episodes

  • #95 – Formannsslagur í Sjálfstæðisflokknum og umbúðaskipti á Samfylkingu
    Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um væntanlegan formannsslag í Sjálfstæðisflokknum, viðhorf flokksmanna gagnvart ríkisstjórnarsamstarfinu, hvað getur haft áhrif á formannskjör, hvaða erindi Guðlaugur Þór Þórðarson eigi í embætti, hvort að Bjarni Benediktsson og stuðningsmenn hans hafi sofið á verðinum og margt fleira. Þá er rætt stuttlega um nýja forystu og nýjar umbúðir Samfylkingarinnar.
    1 hr 6 min
  • #94 – Ungliðadeildin rýnir í heitustu málin
    Brynjar Níelsson og Óli Björn Kárason ræða um félagafrelsi á vinnumarkaði og mikilvægi þess að fólk geti valið hvort það standi innan eða utan stéttarfélaga og um þá stöðu sem hefur skapast í málefnum útlendingar og hvort – og þá hvernig – stjórnmálin ætla að bregðast við. Þá er rætt um ríkisstjórnarsamstarfið, samskipti þeirra flokka sem eru í meirihluta á þinginu og hvort hægt sé að réttlæta samstarfið með þeim rökum að það sé skásti kosturinn.
    1 hr 9 min
  • #93 – Hver vann (skrípa)leikinn á ASÍ þinginu?

    Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða nýafstaðið ASÍ þing þar sem allt fór í háaloft, verkalýðsbaráttu sem snýst um allt mögulegt nema launþegana sjálfa, hvað má og má ekki segja í þjóðfélagsumræðunni, hvort að ríkisstjórnin hafi burði til að takast á við þau flóknu málefni sem hún stendur frammi fyrir og margt fleira.

    1 hr 26 min
  • #92 – Að heyja stríð með úreltum búnaði – Farið yfir stöðuna í Úkraínu
    Kristján Johannessen, fréttastjóri á Morgunblaðinu, ræðir um innrás Rússa inn í Úkraínu, hvað veldur því hvernig átökin hafa dregist á langinn, um hernaðartaktík sem ýmist hefur brugðist eða verið illa undirbúin, um strákana frá Síberíu sem fóru á heræfingu en snúa aldrei aftur, hvaða þýðingu það hafði að sökkva flaggskipi Svartahafsflota Rússa, hvernig tækni er notuð til að verjast innrásinni, hvers vænta má á næstu vikum og margt fleira.
    56 min
  • #91 – Að kaupa undir vopnaglamri og selja undir lúðrablæstri – Rauðglóandi markaðir en pantanabókin í lagi
    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða stöðuna á hlutabréfamarkaði, aukin ríkisútgjöld, það hvort að það sé hollt að upplifa verðbólgu eða ekki, stöðu Marels og traust fjárfesta í garð félagsins, komandi hluthafafund í Sýn, rannsókn á sölu Íslandsbanka, komandi kjaraviðræður, horfurnar í efnahagslífinu og mikilvægi þess að félagsmenn í stéttarfélögunum láti ekki fámenna klíku í forystu félaganna leiða sig út í skurð.
    53 min
  • #90 – Peningar og pólitík krúnunnar

    Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóra Greiningar Íslandsbanka, og Davíð Þorláksson, lögfræðingur og framkvæmdastjóri, fjalla um arfleið Elísabetar II. Bretlandsdrottningar, veraldleg verðmæti krúnunnar, pólitíkina í kringum breska konungsdæmið, framtíð þess og sögulegt samhengi og fleira markvert á þeim merkilegu tímamótum sem nú eiga sér stað í Bretlandi og samveldinu.

    50 min
  • #89 – Lífsgæðin í dag fengin að láni – Innantóm umræða um hækkun skatta – Flókin staða lífeyrissjóða
    Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um útgjaldaaukningu í fjárlögum og það hvort að ríkisstjórnin hafi misst tökin á fjármálum ríkisins, hvar fjármagni er sóað, hvort að núverandi lífsgæði sé fengin að láni, hvort hægt sé að loka gatinu í hallarrekstri og fleira. Þá er rætt um sölu Símans á Mílu og það tjón sem Samkeppniseftirlitið hefur valdið lífeyrissjóðum sem eru stórir hluthafar Símans, um ákvarðanir lífeyrissjóða við stjórnarkjör í Festi og í Sýn, hvort að tilnefndinganefndir skráðra félaga muni heyra sögunni til og margt fleira.
    1 hr 22 min
  • #87 – Það sem ekki má ræða og verkefnin sem stjórnmálin ráða ekki við – Þarf að fara fram covid-uppgjör?
    Andrés Magnússon og Sigríður Á. Andersen fara yfir allt það helsta, hvort tilefni sé til að hefja umræðu um svonefnd Evrópumál, hvaða áhrif stríðið í Úkraínu mun hafa hér heima sem erlendis, hvort að viðskiptaþvinganir eigi rétt á sér, um hvaða burði við höfum til að taka á móti flóttamönnum og hvort að stjórnmálamenn ráði við flókin verkefni. Þá er rætt um það hvort að rétt sé að skoða og gera upp aðgerðir stjórnvalda í covid-faraldrinum og hvaða áhrif slíkt uppgjör á að hafa.
    1 hr 8 min
  • #86 – Hvað gerir Evrópa þegar henni verður kalt? – Björn Bjarnason fyrir yfir stöðu mála erlendis og hér heima

    Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ræðir um stöðu mála í Úkraínu, hvaða afleiðingar átökin þar geta haft á stjórnmál í Evrópu og víðar, hvort að ríki vesturlanda séu að standa með úkraínsku þjóðinni í raun og veru, um viðskipti vestrænna ríkja við Rússland og fleira. Þá er rætt um vandræðagang meirihlutans í Reykjavík, skort á erlendum fjárfestingum á Íslandi og tilgangslausar ríkisstofnanir.

    1 hr 4 min

More shows like Þjóðmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners