
Sign up to save your podcasts
Or


„Von og líf“ er fræðsluþáttur sem inniheldur m.a. forvarnir, sjálfstyrkingu og jákvæðan boðskap sem er nauðsynlegur fyrir alla.
Ljós í myrkri er spjallþáttur um fólk og málefni og er hér rætt m.a. við einstaklinga sem að hafa verið myrkrinu en fundið með hjálp leiðina inní lausnina og lifa í dag góðu lífi. Í þessum þáttum fáum við m.a.. til okkar fólk úr samfélaginu í spjall sem segir okkur hvernig líf þeirra var, hvað gerðist og hvernig það er í dag.
Í þáttunum Frelsi frá fíkn heyrum við reynslusögur fra vinum í bata - Í þessum þætti heyrum við reynslu manns sem var fastur í fjötra fíknar í mörg ár en með góðri hjálp fann hann lausn og lifir í dag hamingjusamur , glaður og frjáls.
Spilafíkn getur dulist lengur og betur en áfengissýki eða önnur fíkninefnaneysla. Það er vegna þess að spilafíkilinn ber ekki fíkn sína utan á sér með sama hætti og áfengissjúklingar og líkamlegir tilburðir verða ekki eins áberandi. En engu að síður endar hún með sama hætti og hjá alkahólistum, þ.e. með geðveiki eða dauða, nema mikið inngrip eigi sér stað.
„Von og líf“ er þáttur sem inniheldur m.a. fræðslu , forvarnir, sjálfstyrkingu og jákvæðan boðskap sem er nauðsynlegur fyrir alla.
Eðli fíknar er þannig að á endanum er botninum náð, eða jafnvel mörgum botnum. Ungt fólk sem prófar vímuefni í fyrsta skipti, þarf ekki að falla í skóla, glata öllu sem þeim er kært, enda í fangelsi eða standa við dauðans dyr. En margir ná oft því stigi áður en þau taka ákvörðun eða fá hjálp við það að leita bata, meðan aðrir eru heppnari en svo. Oft stendur einstaklingurinn frammi fyrir enn meiri erfiðleikum en margir hafa upplifað, þegar reynt er að snúa við af leiðinni. Í þessum þætti er fjallað um þá leið sem hægt er að fara til að finna lausnina frá fíkn áður en það verður of seint.
Sjálfsvíg eiga sér margar og flóknar skýringar og því er ekki hægt að fullyrða að um eina meginskýringu sé að ræða. Orsakir sjálfsvígs eru flókið samspil geðrænna, sálrænna, félagslegra og lífeðlisfræðilegra þátta. Ekki er því unnt að rekja beinar orsakir sjálfsvígs en þó er unnt að greina áhættuþætti og atferli sem stuðlað getur að því að einstaklingur fremur sjálfsvíg.
Þekking á áhættuþáttum og einkennum vímuefnaneyslu getur komið sér vel, í tilfellum þar sem um neyslu vímuefna er að ræða eða hætta er á slíku. Einnig til að koma í veg fyrir misskilning, óþarft vantraust og grunsemdir vegna atvika eða hegðunar sem ekkert hefur með neyslu vímuefna að gera.
„Von og líf“ er þáttur sem inniheldur m.a. fræðslu , forvarnir, sjálfstyrkingu og jákvæðan boðskap sem er nauðsynlegur fyrir alla.
„Von og líf“ er þáttur sem inniheldur m.a. fræðslu , forvarnir, sjálfstyrkingu og jákvæðan boðskap sem er nauðsynlegur fyrir alla.
From the publisher's feed

8 Listeners

5 Listeners

4 Listeners

0 Listeners