
Sign up to save your podcasts
Or


Í þáttunum "Frelsi frá fíkn" heyrum við reynslu fólks sem var fast í fjötra fíknar í mörg ár en með góðri hjálp fundu þau lausn og lifa í dag hamingjusöm, glöð og frjáls frá fíkn , hér segja þau okkur hvernig þetta var, hvað gerðist og hvernig þetta er í dag.
Hefur þú velt því fyrir þér hver verðlaun lífsins eru. Getur það verið að verðlaunin séu af hinu veraldlega af eigum okkar eða af því sem okkur langar í eða það sem að okkur vantar. Eru verðlaunin fólgin í veraldlegum eigum eða einhverju öðru.
Við erum einstök - eru þættir í umsjón Ingibjargar R. Þengilsdòttur andlegs ráðgjafa. Í þessum þáttum hennar segir hún okkur sína sögu í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. Í þessum fjórða þætti sem kallar hún „Úr einángrun í kærleik" heldur hún Ingibjörg áfram sögu sinni þar sem frá var horfið í síðasta þætti. "Eitt það stórkostlega við mannlífið er hversu fjölhæf, mismunandi og ólík við erum, en allir eiga sitt eitthvað og öll höfum við okkar reysnslusögu. Því öll erum við einstök“
Hæfileikar eru hlutir sem að við höfum öll og við höfum mikið af þeim en sjaldnast kunnum við á þá alla og er þetta fyrirbæri oft vannýtt og lítið notað. Það er frekar getan sem stjórnar því hvað við gerum og gerum ekki, ekki hæfileikarnir . Ef að það er ekki samræmi milli hæfileika og getu þá náum við ekki árangri í því sem við erum að gera í dags daglegu lífi.
Bætt hugsun til betra líf" er podcast þáttur þar sem hann Bjarni Steinar Kárason einkaþjálfari og markþjálfi tekur fyrir ýmsar hliðar sem koma að forvörnum hugans og hvernig hægt er að temja hugann í átt til betra lífs. “Í þessum fimmta þætti sem hann kallar "Þekktu sjálfan þig" fjallar hann um hversu miklvægt það er að þekkja sjálfan sig , sínar tilfinningar og þann kraft sem býr innra með þér og hver sé einfaldasta leiðin til að komast að því hver við erum í raun og veru”.
Heildarsýn er forvarna,- og fræðsluþáttur þar sem félagsráðgjafinn Sveinn Ingi Bjarnason leiðir okkur í hin ýmsu málefni sem margir eru að fást við í sínu daglega lífi. „Í þessum þætti fjallar Sveinn Ingi um „Mörk“ hversu mikilvægt það er að setja mörk , hvort sem er að setja sjálfum okkur mörk eða fólkinu í kringum okkar, við þurfum að standa með okkur sjálfum og setja okkur sjálf í fyrsta sæti.
Heildarsýn er forvarna,- og fræðsluþáttur þar sem félagsráðgjafinn Sveinn Ingi Bjarnason leiðir okkur í hin ýmsu málefni sem margir eru að fást við í sínu daglega lífi. „Í þessum fimmta þætti af Heildarsýn fjallar Sveinn Ingi um nokkrar skilgreiningar, hugtök og hugmyndafræði varðandi fíkn og vímuefnasýki sem gott er fyrir nýliðann og aðstandendur að vita , hvort þú ert að glíma sjálf/ur við fíkn og neyslu eða ert aðstandandi“.
Átraskanir eru alvarlegir langvinnir geðsjúkdómar sem einkennast af miklum truflunum á mataræði. Þekktustu átraskanirnar eru lystarstol (anorexía) og lotugræðgi (búlemía), en í báðum þessum tilfellum eru sjúklingarnir mjög uppteknir af líkamsþyngd og hræðslu við að þyngjast. Átraskanir valda iðulega alvarlegum líkamlegum og andlegum einkennum sem geta í verstu tilfellum leitt til dauða.
Við erum einstök - eru þættir inná ÞÚ skiptir máli hlaðvarpinu í umsjón Ingibjargar R. Þengilsdòttur andlegs ráðgjafa. Í þáttum hennar segir hún Ingibjörg okkur reynslusögu sína í þeirri stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. Í þessum þriðja þætti sem kallar hún „Flutningar" heldur hún Ingibjörg áfram sögu sinni þar sem frá var horfið í síðasta þætti. "Já! eitt það stórkostlega við mannlífið er hversu fjölhæf, mismunandi og ólík við erum, allir eiga sitt eitthvað og öll höfum við okkar sögu. já!! Við erum öll einstök“
Heildarsýn er forvarna,- og fræðsluþáttur þar sem félagsráðgjafinn Sveinn Ingi Bjarnason leiðir okkur í hin ýmsu málefni sem margir eru að fást við í sínu daglega lífi. Í þessum fjórða þætti af Heildarsýn sem jafnframt er þriðji hluti af þremur um „Meðvirkni“ það merka málefni sem margir eru að glíma við. – „Eins og fram hefur komið í síðustu þáttum af Heildarsýn er meðvirkni ákveðið samskiptamynstur sem þróast hjá fólki, oft t.a.m. hjá aðstandendum alkóhólista og fíkla.- „Í þessum þætti talar Sveinn Ingi um það hvernig hægt er að bregðast öðruvísi við í mörgum þeim hugsana villum og aðstæðum sem meðvirklar koma sér í. Hann fer yfir þær æfingar sem hægt er að gera og þau úrræði sem í boði eru, sem hjálpar þér að setja sjálfum þér og öðrum mörk, byggja upp sjáfsvirðinguna og þannig líða betur með sjálfa/n þig og þína kosti.“
From the publisher's feed

8 Listeners

5 Listeners

4 Listeners

0 Listeners