Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
ÞÚ skiptir máli hlaðvarp hefur að geyma þætti um málefni sem margir eru að glíma við í sínu daglega lífi. - Já . forvarnir til framtíðar og við vonum að þið munið hafa gagn af og við náum að hjálpa ei... more
FAQs about ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp:How many episodes does ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp have?The podcast currently has 214 episodes available.
April 19, 2020Góð sjálfsmynd - sterk forvörn.Sterk sjálfsmynd er eitt besta veganesti sem unglingar geta fengið út í lífið þar sem hún eykur líkurnar á velgengni og vellíðan. Með því að styrkja sjálfsmyndina er því unnið að forvörnum gegn þunglyndi, kvíða, óábyrgri áfengisneyslu, vímuefnaneyslu, brottfalli úr skóla o.fl....more4minPlay
April 19, 2020Slepptu takinuÞað að sleppa takinu af einhverju sem þú hefur ríghaldið í er ekki veikleikamerki, heldur merki um að þú sért að þroskast. Það býr feikna kraftur og andlegur styrkur í því að leyfa sér að vera með opin huga og hlusta eftir því sem aðrir hafa að segja og taka tillit til þeirra skoðana. Þú getur jafnvel komist að því með því að gera þetta, getur það umbreytt erfiðum aðstæðum sem þú finnur þig í....more4minPlay
April 19, 2020Ljós í myrkri - spjallþáttur (II)Ljós í myrkri er spjallþáttur um fólk og málefni og er hér rætt m.a. við einstaklinga sem að hafa verið myrkrinu en fundið með hjálp leiðina inní lausnina og lifa í dag góðu lífi. Í þessum þáttum fáum við m.a.. til okkar fólk úr samfélaginu í spjall sem segir okkur hvernig líf þeirra var, hvað gerðist og hvernig það er í dag....more16minPlay
April 07, 2020Bætt hugsun til betra lífs - þáttur 6Bætt hugsun til betra lífs er þáttur þar sem hann Bjarni Steinar Kárason einkaþjálfari og markþjálfi tekur fyrir ýmsar hliðar sem koma að forvörnum hugans og hvernig hægt er að temja hugann í átt til betra lífs. “Í þessum sjötta þætti fær hann Bjarni Steinn góðan gest til sín í sófann þar sem hann spjallar við hann og fær að skyggnast inní líf hans og fræðast um hans sögu , hvernig þetta var , hvað gerðist og hvernig líf hans er í dag“....more29minPlay
April 05, 2020Heilbrigt Líf - þáttur 4Heilbrigt Líf - er þáttur í umsjón Dagnýjar Pálsdóttur í þáttunum segir hún frá reynslu sinni, draumum og hugrenningum í gegnum lífið og tekur fyrir málefni sem fólk getur vel tengt við og margir eru að fara í gegnum í sínu lífi. „Í þessum fjórða þætti hennar sem við köllum “Það er alltaf VON“ talar Dagný opinskátt um reynslu sína af því að lifa í myrkri og vera í algjörri uppgjöf á lífinu, þar sem hún var m.a. farin að skaða sjálfa sig og reyndi að taka líf sitt“. - Kæri vinur ÞÚ skiptir máli, tölum upphátt og verum góð hvert við annað....more46minPlay
April 05, 202012 sporin "Hugrekki til að breytast"Eftirfarandi þáttur um sporin 12, eru ábendingar varðandi sporin, og einnig til að hjálpa nýliðum að nálgast persónulega sporavinnu sína svo þeir mikli síður fyrir sér það verkefni. Að sjálfsögðu er hægt að líta á sporin 12 frá ótal mörgum hliðum. Umfjöllunin og ábendingarnar hér eru því einungis ein leið til að nálgast þessa vinnu. Vert er einnig að benda á að sporin 12 er fyrst og fremst andlegt prógramm, en um leið og það er heiðarleika og framkvæmdarprógramm....more17minPlay
March 30, 2020Heilbrigt líf - þáttur 3Heilbrigt líf - er þáttur í umsjón Dagnýjar Pálsdóttur. - Í þáttunum segir hún frá reynslu sinni, draumum og hugrenningum í gegnum lífið og tekur fyrir málefni sem fólk getur vel tengt við og margir eru að fara í gegnum í sínu lífi. „Í þessum þriðja þætti fer hún náið í sögu sína og fjallar á einlægan hátt m.a. um skilnað foreldra sinna, anorexiu, tilfinningar, líkamsímynd og fleira“....more36minPlay
March 23, 2020Við erum einstök - 5. þátturVið erum einstök - eru þættir í umsjón Ingibjargar R. Þengilsdòttur andlegs ráðgjafa. Í þessum þáttum hennar segir hún okkur sína sögu í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. - „Við erum öll að fara í gegnum erfiða tíma í þjóðfélaginu og um allan heim og í þessum þætti fer Ingibjörg inná margt hvað við getum gert fyrir okkur og fólkið okkar , því öll getum við gert eitthvað , því að við erum öll einstök“...more10minPlay
March 22, 2020Bréf frá sjúkdómnum "Fíkn"Til umhugsunar fyrir þá sem eru að glíma við sjúkdóminn fíkn, afhverju við verðum að snúa við til betra lífs....more3minPlay
March 22, 2020Heildarsýn - þáttur 7Heildarsýn er forvarna,- og fræðsluþáttur þar sem félagsráðgjafinn Sveinn Ingi Bjarnason leiðir okkur inn í hin ýmsu málefni sem margir eru að fást við í sínu daglega lífi. "Í þessum þætti ræðir Sveinn Ingi um það hvernig á að bregðast við í kringumstæðum þegar börn og ungmenni hefja af fyrra bragði umræðu um ofbeldi , neyslu og fleira og hvað er gott að hafa í huga í þeim samtölum"....more7minPlay
FAQs about ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp:How many episodes does ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp have?The podcast currently has 214 episodes available.