Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
ÞÚ skiptir máli hlaðvarp hefur að geyma þætti um málefni sem margir eru að glíma við í sínu daglega lífi. - Já . forvarnir til framtíðar og við vonum að þið munið hafa gagn af og við náum að hjálpa ei... more
FAQs about ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp:How many episodes does ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp have?The podcast currently has 214 episodes available.
February 21, 2020"Skaðsemi áfengis og fíkniefna". - Forvarnir hefjast heima IITalaðu við barnið þitt um skaðsemi áfengis og fíkniefni. Sú fræðsla skiptir máli. Vímuefnaneysla unglinga getur raskað uppvaxtarferli þeirra og ógnað velferð þeirra og framtíð. Eftir því sem unglingar byrja fyrr að neyta vímuefna aukast líkurnar á að þeir ánetjist þeim, hætti í skóla, einangrist félagslega, fái sjúkdóma, lendi í slysum og verði fyrir óæskilegri kynlífsreynslu. Börn og unglingar eiga rétt á vímulausu umhverfi. það er afar mikilvægt að skapa tækifæri til að eiga þetta áríðandi samtal við barnið þitt....more6minPlay
February 21, 2020Þetta hófst allt þegar var 5 ára gömul - (Reynsla af ofbeldi)Oft tengist ofbeldi innan fjölskyldu áfengismisnotkun eða misnotkun á vímuefnum af einhverju tagi. Því oft veldur langvarandi misnotkun áfengis og vímuefna ofbeldishneigð. Þeir sem búa við ofbeldi af einhverju tagi, reyna oftast að fela það út á við og verður ofbeldið þannig gjarnan best varðveitta leyndarmál fjölskyldunnar, sem samt er svo nauðsynlegt að tala um. ...more4minPlay
February 20, 2020Dulbúið ofbeldiAndlegt ofbeldi er ósýnilegt og dulbúið og þess vegna getur verið erfitt að koma auga á það. Andlegt ofbeldi er m.a. algengt innan fjölskyldna og í nánasta umhverfi barna og getur verið í formi t.d. hótana, niðurlægingu, einelti, auðmýkingu, ógnun og vanrækslu og lengi muna börnin....more3minPlay
February 19, 2020Forvarnir hefjast heimaMeð því að gefa barni sínu tíma og byggja upp góða sjálfsmynd og traust innan fjölskyldunnar geta foreldrar dregið verulega úr líkum þess að barnið ánetjist vímuefnum þegar það kemst á unglingsár. Vímuefnaneysla unglinga getur raskað uppvaxtarferli þeirra og ógnað velferð þeirra og framtíð. Eftir því sem unglingar byrja fyrr að neyta vímuefna aukast líkurnar á að þeir ánetjist þeim, hætti í skóla, einangrist félagslega, fái sjúkdóma, lendi í slysum og verði fyrir óæskilegri kynlífsreynslu. Börn og unglingar eiga rétt á vímulausu umhverfi....more4minPlay
February 16, 2020Heildarsýn - þáttur 3Heildarsýn er forvarna,- og fræðsluþáttur þar sem félagsráðgjafinn Sveinn Ingi Bjarnason leiðir okkur inn í hin ýmsu málefni sem margir eru að fást við í sínu daglega lífi. „í þessum þriðja þætti af Heildarsýn fjallar Sveinn Ingi um meðvirkni en þetta er jafnframt annar þátturinn af þremur þar sem hann er að ræða það merka málefni, sem margir eru að glíma við. - Meðvirkni er ákveðið samskiptamynstur sem þróast hjá fólki, oft t.a.m. hjá aðstandendum alkóhólista og fíkla.- „Lykil atriði í meðvirkum samböndum er að setja sjálfum sér og öðrum mörk og æfa sig í því að fara eftir þeim, taka lítil skref og vera meðvitaður í tali og láta hegðun og líðan annara ekki draga sig aftur inn í meðvirk samskipti“...more9minPlay
February 16, 2020Ég játaði mig sigraða... (Reynslusaga)"Ég játaði mig sigraða , áfengið var mér yfirsterkara og allt hrundi í kringum mig , þar til ég komst á minn fyrsta AA fund og kynntist sporunum , þá breyttist allt". Hér heyrum við reynslusögu alkóhólista sem var föst í heimi neyslunnar , hvernig þetta var , hvað gerðist og hvernig líf hennar er í dag. ...more6minPlay
February 12, 2020Ný áskorunErtu að takast á við einhver verkefni sem þú ert þreyttur á ? Ertu að vinna að einhverju takmarki en gleðin er farin úr vinnunni ? Þegar við tökumst á við ný verkefni eða áskoranir er algengt að S-in þrjú banki upp á í ferlinu....more3minPlay
February 11, 2020Frelsi frá fíkn - þáttur 4“Reynslusaga fra vin í bata” - Í þessum þætti heyrum við reynslu manns sem var fastur í fjötra fíknar í mörg ár en með góðri hjálp fann hann lausn og lifir í dag hamingjusamur , glaður og frjáls frá fíkn....more17minPlay
February 10, 2020Segðu já við lífinu.Óttinn minn er sá sami og hjá flestum öðrum – ótti við höfnun. Ekki frá einhverjum sérstökum einstaklingi heldur frá lífinu. Þetta er sammannleg tilfinning sem því miður getur haft þau áhrif að maður tekur síður áhættur og fer á mis við að kanna lífið. Ímyndaðu þér hvernig það væri að upplifa líf án óttans við að elska eða að vera ekki elskaður. Að þú værir ekki að rogast með ótta við höfnun og hefðir ekki þessa miklu þörf fyrir að vera samþykktur hvort sem það tengist vinnu eða einkalífi. - Segðu já við lífinu og taktu öllum verkefnum með jákvæðni og horfðu á þau sem leið til að þroskast. ...more6minPlay
February 09, 2020Heildarsýn - þáttur 2Heildarsýn er nýr forvarna,- og fræðsluþáttur þar sem félagsráðgjafinn Sveinn Ingi Bjarnason leiðir okkur inn í hin ýmsu málefni sem margir eru að fást við í sínu daglega lífi. „í þessum öðrum þætti af Heildarsýn fjallar Sveinn Ingi um Meðvirkni en þetta er jafnframt fyrsti þáttur af þremur þar sem hann ætlar að ræða það merka málefni, sem margir eru að glíma við. „Meðvirkni er ákveðið mynstur sem þróast hjá fólki, oft t.a.m. hjá aðstandendum alkóhólista og fíkla. Hún lýsir sér helst í því að hegðun og líðan annarra fer að stjórna hegðun og líðan manns sjálfs . Meðvirkni má þó finna víðar en í samskiptum við áfengis- og vímuefnasjúklinga. Hún getur þróast í ýmis konar samskiptum og mismunandi aðstæðum“....more14minPlay
FAQs about ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp:How many episodes does ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp have?The podcast currently has 214 episodes available.