Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
ÞÚ skiptir máli hlaðvarp hefur að geyma þætti um málefni sem margir eru að glíma við í sínu daglega lífi. - Já . forvarnir til framtíðar og við vonum að þið munið hafa gagn af og við náum að hjálpa ei... more
FAQs about ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp:How many episodes does ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp have?The podcast currently has 214 episodes available.
February 09, 2020Áfengi var orðið nauðsyn... (Reynslusaga alkóhólista)"Ég var að deyja inní mér, áfengið var hætt að virka og réttum 5 árum var ég komin í allgjört þrot með líf mitt , en allt breyttist þegar ég fór á minn fyrsta AA fund og kynntist lausninni" Hér heyrum við reynslusögu alkóhólista sem var föst í heimi neyslunnar , hvernig þetta var , hvað gerðist og hvernig líf hennar er í dag. - Það er til lausn!!! ...more6minPlay
February 08, 2020Viltu breytingar ?Stendur þú á tímamótum eða viltu breytingar? Þegar við erum að fara í gegnum þroskakreppur í lífinu, breytingar sem gætu við fyrstu sýn virst erfiðar og jafnvel óyfirstíganlegar, er gott að staldra við og skoða líf sitt. Hvað hef ég lært, hver er reynsla mín fram að þessu og hvað get ég gert öðruvísi í framtíðinni? Mikilvægustu breytingar sem margir gera eru í kjölfar áfalla – og þrátt fyrir að sjá það ekki á sínum tíma, þá áttar maður sig oft á því að þú stóðst þá uppi sterkari vegna þess að þú þurftir þá oft að spyrja þig ýmissa spurninga varðandi líf þitt....more5minPlay
February 08, 2020Við erum einstök - þáttur 2Við erum einstök er þáttur hér á hlaðvarpinu í umsjón Ingibjargar R. Þengilsdòttur andlegs ráðgjafa. Í þessum öðrum þætti hennar sem hún kallar „Hver er ég ?“ segir hún okkur söguna sína. "Eitt það stórkostlega við mannlífið er hversu fjölhæf, mismunandi og ólík við erum, allir eiga sitt eitthvað og öll höfum við okkar sögu. já!! haltu áfram að vera þú sjálf/ur og gefðu þér tækifæri til að blómsta í því hlutverki einu og mundu að við erum öll einstök“...more13minPlay
February 05, 2020Ljós í myrkri - spjallþátturLjós í myrkri er spjallþáttur um fólk og málefni og er hér rætt m.a. við einstaklinga sem að hafa verið myrkrinu en fundið með hjálp leiðina inní lausnina og lifa í dag góðu lífi. Í þessum þáttum fáum við m.a.. til okkar fólk úr samfélaginu í spjall sem segir okkur hvernig líf þeirra var, hvað gerðist og hvernig það er í dag....more9minPlay
February 03, 2020Kærleikur í verkiÖll þurfum við á því að halda að tilheyra öðrum, finnast við skipta máli og séum elskuverð. Þar sem um grundvallarþörf er um að ræða reynum við oft að uppfylla hana með því að fá aðra til að samþykkja okkur á sama tíma og við erum dauðhrædd um að við séum ekki ,,nóg“ og okkur verði hafnað....more3minPlay
February 02, 2020Heildarsýn - þáttur 1Heildarsýn er nýr forvarna,- og fræðsluþáttur þar sem félagsráðgjafinn Sveinn Ingi Bjarnason leiðir okkur inn í hin ýmsu málefni sem margir eru að fást við í sínu daglega lífi. „í þessum fyrsta þætti fjallar hann um àhættuþætti sem auka líkur á að unglingur byrji í neyslu og verndandi þætti sem hindra að unglingur hefji neyslu“....more8minPlay
February 01, 2020HöfnunHvað gerir það að verkum að við upplifum höfnun? Hvað veldur því að við finnum til höfnunar, jafnvel oft sama daginn. Við upplifum gjarnan þessa sterku tilfinningu þegar einhver segir eitthvað við okkur sem okkur líkar ekki. Það er eins og það sé takki í huganum sem við getum kveikt og slökkt á, bara svona eftir því hvort okkur líkar eða líkar ekki það sem sagt er við okkur ....more3minPlay
January 31, 2020Að takast á við sjálfan sig.þegar við stöndum frammi fyrir áskorunum stöndum við gjarnan frammi fyrir því að þurfa að stíga inn í óttann og skrefið í átt að sjálfum okkur. Það er ekki auðvelt að viðurkenna fyrir sjálfum sér og öðrum hver maður er. En í því felst engu að síður mikið frelsi - frelsið til að geta verið maður sjálfur....more5minPlay
January 29, 2020MótlætiTilgangur lífsins er ekki fólginn í hlutum, athöfnum eða velgengni. Hann er fólginn í manneskjunni sjálfri og viðhorfi hennar til lífsins. Við áföll og mótlæti opnast gluggi breytinga í lífi okkar því að þau knýja okkur út af beinu brautinni. Þau geta vakið okkur til vitundar um það sem skiptir raunverulega máli. - Orðið til þess að breyta lífssýn okkar, gildismati og forgangsröðun í lífinu....more3minPlay
January 27, 2020Ert þú einmana ?Er ég einmana þegar ég er ein/nn eða kannski bara þegar ég er í kringum fullt af fólki sem ég finn mig ekki með ? Það skiptir máli fyrir andlega og líkamlega heilsu að vera í góðum og uppbyggilegum tengslum við aðra en upplifun okkar fer líka mikið eftir því hvernig okkur líður sjálfum....more5minPlay
FAQs about ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp:How many episodes does ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp have?The podcast currently has 214 episodes available.