Jökulhlaup er hafið í Grímsvötnum. Jarðeðlisfræðingur segir það eftir bókinni og að það nái hámarki um helgina.
Forsætisráðherra flytur stefnuræðu nýrrar ríkisstjórnar í kvöld.
Sendiherrar Evrópusambandsríkja samþykktu í dag refsiaðgerðir gegn hvítrússneskum embættismönnum og fyrirtækjum vegna ástandsins á landamærum Hvíta-Rússlands og Póllands.
Lyfjastofnun hafa borist tólf alvarlegar tilkynningar um aukaverkanir eftir örvunarbólusetningu.
Svalbarðsstrandarhreppur skoðar möguleika á að sameinast einhverju af fjórum nágrannasveitarfélögum.
Lengri umfjallanir
Margar þeirra aðgerða sem fyrrverandi ríkisstjórn tókst ekki að ljúka á síðasta kjörtímabili rata nær óbreyttar inn í nýjan stjórnarsáttmála. Aðrar virðast hreinlega hafa gufað upp. Formaður sambands íslenskra sveitarfélaga sýtir gistináttagjaldið sem ekki skilaði sér og formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu vonar að það komi ekki að sök þó ekkert sé minnst á hjúkrunarheimili í sáttmálanum. Arnhildur Hálfdánardóttir tók saman.
Skólayfirvöld í Gautaborg leita nú flestra leiða til að loka þremur einkareknum grunnskólum eftir að upp komst um umfangsmikið fjármálamisferli. Skólastjórnendur hafa verið gagnrýndir undanfarna tvo áratugi, meðal annars fyrir að skipta nemendum upp eftir kynjum og neyða þá til að taka þátt í bænahaldi. Annar einkarekinn skóli í Örebro, hefur greitt jafnvirði um 18 milljóna til félagsins sem rekur mosku í Ýmishúsinu í Reykjavík. Kári Gylfason, fréttaritari Spegilsins í Gautaborg fjallar um þetta.