Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Marteinn Marteinsson.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra segir að það séu vonbrigði að aftur hafi þurft að herða sóttvarnaraðgerðir. Nýjar takmarkanir taka gildi á miðnætti og gilda næstu þrjár vikurnar. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra er hugsi yfir stöðunni og því að nú séu svipaðar ráðstafanir uppi, þegar svo margir eru bólusettir og voru fyrir um ári. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra segir að samstaða ríki um ráðstafanirnar en að sjálfsögðu hafi verið skipst á skoðunum. Höskuldur Kári Schram tók saman.
Þrátt fyrir hertar aðgerðir er útlit fyrir að jólatónleikar verði haldnir víðast hvar. Leiksýningar og menningarviðburðir falla ekki niður en gestir þurfa að framvísa neikvæðu hraðprófi. Sigríður Beinteinsdóttir sönkona, ætlar að halda tónleika á næstu vikum; minni hætta stafi af því að fara á tónleika en fara út í búð. Bjarni Rúnarsson talaði við hana.
Ekki er ljóst hvenær loftlagsráðstefnnni í Glasgow lýkur en ráðgert var að slíta henni núna klukkan sex. Ekki hefur náðst saman um samkomulagi loftslagsráðstefnunnar
Uber og önnur slík fólksflutningsfyrirtæki geta starfað hér á landi, verði svokallað leigubílafrumvarp samþykkt á komandi þingi, svo lengi sem þau uppfylla skilyrði laganna. Þetta segir Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitastjórnarráðherra.
Skógarhögg í Amazon-regnskógunum var meira í október en á sama tíma fyrir ári þrátt fyrir loforð stjórnvalda um að draga úr því. Þetta sést á gervihnattarmyndum brasilísku geimvísindastofnunarinnar. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá.
----------
Loftslagsvandinn er afleiðing nýlendustefnunnar og röskunar á tengslum fólks við landið. Þetta eru skilaboð ungrar konu, Ta'Kaiya Blaney, sem hóf upp raust sína ásamt nokkrum öðrum á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow í dag. Arnhildur Hálfdánardóttir tók saman, Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir talaði við Blaney.
Í byrjun mánaðar veittu stjórnvöld í Bretlandi leyfi fyrir lyfinu Molnipiravir gegn COVID-19 og von er á fyrstu skömmtum þess þangað fyrir mánaðamót. Miklar vonir eru bundnar við lyfið, það jafnvel sagt valda vatnaskilum í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn. Lyfið er í töfluformi, inntakan og geymslan auðveldari en fyrir viðkvæm bóluefni sem sum hver þarf að geyma í fimbulkulda. Rúna Hvannberg Hauksdóttir forstjóri Lyfjastofnunar segir að það geti skipt miklu víða í heiminum, Anna
Næturdrykkja smábarna og aukin tortryggni foreldra gagnvart flúortannkremi er meðal þess sem sérfræðingar í barnatannlækningum telja ógna ta