Spegillinn

15. nóvember 2021, Reykjavíkurborg fjallar um málefni Sælukots


Listen Later

Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur segir að berist alvarleg kvörtun vegna starfsmanna í skólum skuli starfsmenn fara í leyfi á meðan mál er rannsakað. Kannað verði hvort það hafi ekki verið gert þegar starfsmaður leikskólans Sælukots var kærður til lögreglu.
Hátt í sjö þúsund manns mættu í þriðju sprautu í Laugardalshöll á fyrsta degi örvunarbólusetningar. Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðiisns segir að óbólusettir íþyngi heilbrigðiskerfinu.
Viðbúnaður vegna yfirvofandi hryðjuverka hefur verið aukinn í Bretlandi eftir að sprengja sprakk í leigubíl í Liverpool í gær. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Óbólusettu fólki í Berlín, höfuðborg Þýskalands, er frá og með deginum í dag óheimilt að borða á veitingahúsum, fara á bari eða í kvikmyndahús svo nokkuð sé nefnt. Kórónuveirusmitum hefur fjölgað mjög í landinu að undanförnu. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Stórtónleikum tenórsins Andrea Bocelli hefur verið frestað í þriðja sinn vegna faraldursins. Ísleifur Þórhallsson, talsmaður Senu segir yfirvöld þurfa að finna lausnir svo hægt sé að halda stóra viðburði.
---------
Það var ys og þys í Laugardalshöll í Reykjavík í dag þegar fyrsti boðaði hópurinn kom í örvunarbólusetningu - fékk þriðja skammtinn af bóluefni gegn Covid. Alls voru 9.700 boðuð í bólusetningu. 6.615 mættu eða um 68 prósent. Í fyrsta hópnum í dag voru sextugir og eldri og fólk með undirliggjandi sjúkdóma. Kristján Sigurjónsson ræddi við Sigríði Dóru Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Á næstu árum hverfa mjög fjölmennar kynslóðir af vinnumarkaði á Íslandi, fólk sem er um sjötugt eða nærri því, og við það gerist ýmislegt, meðal annars lækkar hlutfall þeirra sem eru starfandi á móti þeim sem komnir eru á eftirlaun segir Ólöf Garðarsdóttir, prófessor í sagnfræði og forseti hugvísindadeildar Háskóla Íslands. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Ólöfu.
Í kvöld funda innanríkisráðherrar Frakka og Breta í París um flóttamannamál eftir að hnútur hafa flogið á milli þeirra. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners