Verkfall hjúkrunarfræðinga hefst að óbreyttu eftir fjóra daga en boðað hefur verið til sáttafundar í fyrramálið. Komi til verkfalls mun Landspítali fresta allri þjónustu sem hægt er að fresta.
Tveir af um þrjú þúsund manns sem komið hafa hingað til lands frá því skimun hófst á landamærunum hafa greinst með virkt COVID-19 smit. Landlæknir lýsir áhyggjum af hugsanlegu verkfalli hjúkrunarfræðinga.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin vonast til að á þessu ári verði hægt að framleiða nokkrar milljónir skammta af bóluefni gegn veirunni sem veldur COVID-19.
Lengri umfjallanir:
Stjórnsýsla loftslagsmála er um margt veik og fátt bendir til þess að Ísland standi við markmið um kolefnishlutleysi fyrir árið 2040. Þetta kemur fram í drögum að skýrslu sem Capacent vinnur fyrir Loftslagsráð. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá.
Doktor Pétur M. Jónasson vatnalíffræðingur er 100 ára í dag, 18. júní. Hið íslenska náttúrufræðifélag heiðrar Pétur með því að tileinka honum nýjasta hefti Náttúrufræðingsins. Í því er fjallað um Þingvallavatn og rannsóknir á lífríki og vistfræði þess. Kristján Sigurjónsson ræðir við Hilmar Malmquist.
Eftir tuttugu ára baráttu fengu heilbrigðisgagnafræðingar því framgengt að nám þeirra var fært upp á háskólastig. Við það stórjókst aðsókn í námið. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Hólmfríði Einarsdóttur.