Landspítalinn leysir ekki einn og sér úr því alvarlega vandamáli að starfsfólk hættir þar vegna álags segir Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á spítalanum. Anna Lilja Þórisdóttir talaði við hana.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra er bjartsýn á að ný ríkisstjórn verði mynduð, stjórnarsáttmáli kynntur og fjárlagafrumvarp lagt fram fyrir mánaðamót og gefur lítið fyrir tal stjórnarandstöðu um seinagang. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Katrínu.
Börnum yngri en 12 ára verður boðin kórónuveirubólusetning hér á landi ef það verður samþykkt af Evrópsku sóttvarnastofnuninni. Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Anna Lilja Þórisdóttir tók saman.
Stjórnvöld í Bresku Kólumbíu í Kanada hafa lýst yfir neyðarástandi vegna óveðurs sem gekk þar yfir um síðustu helgi. Erfitt er að koma aðstoð til fólks sem einangraðist í illviðrinu. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Ríflega helmingur þeirra sem hafa sótt um aðstoð á þessu ári hjá umboðsmanni skuldara býr í leiguhúsnæði. Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður segir að þessi hópur hafi farið stækkandi á undanförnum árum. Höskuldur Kári Schram ræddi við hana.
------------
Leigjendum hefur fækkað og leiga hélst nokkuð stöðug í fyrra en hún hefur hækkað síðustu mánuði. Anna Kristin Jónsdóttir ræddi við Karlottu Halldórsdóttur, hagfræðing hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Mikill meirihluti aldraðra á hjúkrunarheimilum þjáist vegna tannvandamála sem ekki eru meðhöndluð. Arnhildur Hálfdánardóttir tók saman. Viðæmælendur: Eva Guðrún Sveinsdóttir, tannlæknir. Hólmfríður Guðmundsdóttir, tannlæknir hjá Embætti landlæknis og Aðalheiður Svana Sigurðardóttir, doktorsnemi í tannsmíði,
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmunsdóttir.