Spegillinn

19. janúar 2022. Þriðjungur launamanna í erfiðri fjárhagsstöðu


Listen Later

Fólk sem er í einangrun vegna covid má nú fara í gönguferðir nálægt heimili sínu tvisvar á dag og krafa um sýnatöku í tengslum við smitgát hefur verið afnumin.
Fjárhagsstaða innflytjenda og einstæðra foreldra hefur versnað milli ára, Ný könnun Vörðu - rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins sýnir að tæplega þriðjungur vinnandi fólks á erfitt með að ná endum saman. Bjarni Rúnarsson talaði við Kristínu Hebu Gísladóttur, framkvæmdastjóri Vörðu, Drífu Snædal ASÍ og Sonju Ýr Þorbergsdóttur BSRB.
Matvælastofnun hefur ákveðið að bændur á bæ í Dalvíkurbyggð verði sviptir 150 nautgripum.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingmaður Vinstri grænna og formaður fjárlaganefndar sagði á Alþingi í dag að hún væri algerlega ósammála gagnrýni Vilhjálms Árnasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins um að skort hafi lýðræðislega umræðu um COVID faraldurinn.
Eldur kviknaði í þaki íbúðarhúss á Framnesvegi í Vesturbæ Reykjavíkur á þriðja tímanum í dag. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var með talsverðan viðbúnað en búið er að slökkva eldinn. Sólveig Klara Ragnarsdóttir ræddi við Vernharð Guðnason deildarstjóra hjá Slökkviliðinu.
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra standa fyrir samfélagsmiðladegi landsbyggðarfyrirtækja í samvinnu við aðila frá þremur öðrum löndum. Anna Þorbjörg Jónasdóttir ræddi við Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur, atvinnuráðgjafa fyrirtækja hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
Nýlunda var tekin upp á söfnum og tónleikasölum víðs vegar um Holland í dag þegar almenningi var boðið að þiggja þar klippingu eða stunda líkamsrækt. Yfirvöld skipuðu stöðunum umsvifalaust að láta af athæfi sínu. Markús Þór Þórhallsson sagði frá.
Fyrsti leikurinn karlalandsliðsins í milliriðli á EM í handbolta er gegn Dönum annað kvöld. Hægri hornamaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson segir sjálfstraustið mikið í íslenska liðinu þó að lið Dana sé sterkt.
-------------
Könnun Vörðu - Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins sýnir að fjárhagsstaða félagsmanna í ASÍ og BSRB hefur versnað síðasta árið en í fyrra var sambærileg könnun gerð í fyrsta skipti. Bjarni Rúnarsson ræddi við Kristínu Hebu Gísladóttur, framkvæmdastjóri Vörðu, Drífu Snædal ASÍ og Sonju Ýr Þorbergsdóttur BSRB.
Liðsflutningar til Gotlands, rússnesk herskip í Eystrasalti, tölvuárásir á sænsk fyrirtæki og stofnanir. Ógnin frá Rússlandi er mjög raunveruleg í sænskri fjölmiðlaumræðu, þótt engin viti hvort hún sé raunveruleg eða nákvæmlega í hverju hún felst.Kári Gylfason sagði frá. Heyrist í Gudrun Persson, Rússlandssérfræðingi Kenny Vedin og Gunillu Axén íbúum á Gotlandi, Mich
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners