Þrír hafa greinst með omíkron-afbrigði kórónuveirunnar hér á landi. Einn þeirra er á sjúkrahúsi, karlmaður á áttræðisaldri sem er fullbólusettur.
Rennsli í Gígjukvísl er orðið tífalt meira en í venjulega árferði. Það kæmi vísindamönnum ekki á óvart ef gos yrði í Grímsvötnum á næstunni.
Óljóst er hvað þeim gekk til sem fjarlægði sjö hraðaskilti við Sauðárkrók. Hámarkshraði við bæinn var nýlega lækkaður.
Sebastian Kurz, fyrrverandi kanslari Austurríkis, tilkynnti óvænt í dag að hann væri hættur í stjórnmálum. Hann lét af embætti fyrir nokkrum vikum vegna ásakana um fjármálaspillingu.
Lengri umfjallanir:
Fyrsta umræða um fjárlagafrumvarpið stóð á Alþingi í allan dag. Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir kröftugum hagvexti en stjórnarandstöðuþingmanni finnst að ríkisstjórnin segi pass í fjárlagafrumvarpinu. Hagfræðingur saknar útfærslna á hvernig eigi að ná niður hallanum á ríkissjóði. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Katrínu Ólafsdóttur, hagfræðing.
Umræðan um Omíkron er í algleymingi í Bretlandi, hvað eigi að gera, í landi þar sem ríkisstjórnin hefur verið áberandi óviljug til að grípa til hamlandi veiruráðstafana. Enn frekar stórmál þegar jólin eru fyrir dyrum. Jólaboðin eru ákaft rædd, ekki aðeins jólaboðin í ár heldur líka jólaboð í Downing stræti í fyrra. Pólitíska spurningin er hvort Covid reglurnar þá hafi verið brotnar, sem væri stjórnarandstöðunni kærkomið dæmi um að forsætisráðherra telji sig yfir aðra hafinn. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.