Spegillinn

20 þúsund íbúðir og áfengisgjald hækkað


Listen Later

Með sameiginlegu átaki ríkis og sveitarfélaga á að byggja 20 þúsund íbúðir á næstu fimm árum. Sunna Karen Sigurþórsdóttir sagði frá og talaði við Elmar Þór Erlendsson, teymisstjóri hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Stjórn Flokks fólksins ræðir í kvöld um ásakanir um að flokkskonur hafi sætt áreitni og lítilsvirðingu af hendi forystukarla flokksins á Akureyri. Kristín Sigurðardóttir er við safnaðarheimili Grafarvogskirkju þar sem fundurinn er haldinn.
Hrakfarir Rússa í Úkraínu síðustu daga kynda undir ólgu í rússnesku samfélagi segir Jón Ólafsson, sérfræðingur í málefnum Rússlands og prófessor við Háskóla Íslands. Hverfisráð í Pétursborg og Moskvu hafa hvatt Vladimir Pútin Rússlandsforseta til afsagnar. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir tók saman.
Lagt er til í nýju fjárlagafrumvarpi að framlög til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og Kvikmyndasjóðs lækki um nærri þriðjung. Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar segir að frumvarpið eigi vissulega eftir að taka miklum breytingum - en er þó brugðið. Oddur Þórðarson talaði við hana.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segir að það hljóti að vera meginmarkmið alþingismanna að bæta hag og heilsu fólksins í landinu. Það hljóti að einkenna gott og öflugt þing. Forsetinn setti Alþingi formlega í dag. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir tók saman.
Rannsókn á sjálfsáningu stafafuru á Norðurlandi sýnir að hún dreifir sér á tvöfalt stærra svæði en henni var upphaflega sáð á. Brynjólfur Brynjólfsosn, rannsakandi hefur ekki áhyggjur af yfirgangi stafafuru en mikilvægt sé að fylgjast með útbreiðslunni. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við hann.
Edda Björgvinsdóttir leikkona fagnar sjötíu árum í dag. Hún segir hápunkt ferils síns vera að enda sjötug á samningi hjá Þjóðleikhúsinu. Urður Örlygsdóttir talaði við Eddu í Þjóðleikhúsinu þar sem hún var við æfingar.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir.
-----------------
Áfengisgjöld hækka um 7,8 prósent um áramót og í fríhöfninni margfaldast þau. Áætlað er að áfengisgjöld skili 25 milljörðum í ríkissjóð á næsta ári. Bruggarar segja að yfirvöld virðist líta á greinina sem mjólkurkú. Alexander Kristjánsson tók saman og ræddi við Laufeyju Sif Lárusdóttur formann Samtaka handverksbrugghúsa og Þórólf Matthíasson prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.
Ástandið í orkumálum Evrópu er ólíkt því sem áður hefur þekkst og mikil óvissa um framhaldið segir Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri. Margt velti á því hvernig stríði Rússa og
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

148 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

25 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners