Frambjóðendur sem ekki hrepptu þingsæti eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi vilja ýmist að kosið verði aftur á landsvísu eða að fyrri talning í kjördæminu standi. Frambjóðandi sem kærði til lögreglu vill ekki munnhöggvast við formann yfirkjörstjórna í NV. Anna Lilja Þórisdóttir ræddi við Karl Gauta Hjaltason (M) og Lenyu Rún Taha Karim (P).
Á níunda þúsund störf voru laus á þriðja ársfjórðungi og það segir Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar merki um bata. Drífa Snædal, forseti Alþýðusambandsins segir að stór hópur þurfi enn aukinn stuðning. Markús Þór Þórhallsson tók saman.
Sjúkratryggingar Íslands hafa ákveðið að endurskoða ákvarðanir sem tengjast bótagreiðslum úr sjúklinga- og slysatryggingum vegna miska eða læknisfræðilegra örorku síðustu fjögur árin. Höskuldur Kári Schram ræddi við Maríu Heimisdóttur, forstjóra Sjúkratrygginga.
Afar ólíklegt er að aðeins púðurskot hafi verið í byssu sem bandaríski leikarinn Alec Baldwin hleypti af með þeim afleiðingum að kvikmyndatökumaður lést. Þetta segir Ármann Áki Jónsson formaður Skotvíss, Kristín Sigurðardóttir talaði við hann.
Það verður mikið rokkað á Akureyri um helgina á tónlistarhátíðinni Eyrarrokki en þar spila meðal annars hljómsveitir sem hafa ekki heyrst í mörg ár. Ágúst Ólafsson hitti Rögnvald Braga Rögnvaldsson, einn þeirra sem standa fyrir Eyrarrokki.
-----
Líklegast er að kjörbréfin sem Landskjörstjórn gaf út eftir alþingiskosningarnar verði látin standa segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði; lagalega gangi að kjósa aftur í einu kjördæmi - en ekki pólitískt. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann.
Innan tíðar gæti tekið nokkrar sekúndur að fá skjölum þinglýst, til að mynda vegna fasteignakaupa. Nú getur það tekið langan tíma. Andri Heiðar Kristinsson framkvæmdastjóri Stafræns Íslands segir að ferlið sé eins öruggt og mögulegt er og öruggara en gamla pappírsvinnan. Ragnhildur Thorlacius ræddi við hann.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.