Fyrir fjórum árum bjuggu rúmlega 1.000 manns í óskráðum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Á næstu mánuðum á að kortleggja hve margir búa nú í atvinnuhúsnæði og huga að brunavörnum.
Sóttvarnalæknir segir ekki annað mögulegt en að herða sóttvarnaaðgerðir ef fram heldur sem horfir og ástandið á Landspítalanum heldur áfram að þyngjast.
Flestir, eða tæp áttatíu prósent, vilja að Framsóknarflokkurinn verði í næstu ríkisstjórn, samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup. Þar á eftir koma Vinstri græn og Sjálfstæðisflokkur.
Tveggja daga réttarhöld standa yfir í Bretlandi þar sem bandarísk stjórnvöld reyna enn að fá Julian Assange framseldan. Vestra á hann ævilangt fangelsi yfir höfði sér.
Bresku fjárlögin voru lögð fram í dag, í anda bjartsýni ríkisstjórnarinnar, en vaxandi verðbólga gæti sett strik í þjóðhagsreikninga næstu missera.
Næstu mánuðina á að kortleggja hve margir búa og hvar í atvinnuhúsnæði í borginni. Gengið verður í hús í iðnaðarhverfum og rætt við íbúa um brunavarnir og félagslegar aðstæður þeirra. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu leiðir verkefnið í samstarfi við sveitarfélögin og Alþýðusamband Íslands. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Aleksöndru Leonardsdóttur og Jón Viðar Matthíasson.
Að jafnaði hafa landsmenn skráð sig 430 þúsund sinnum á mánuði inn á Heilsuveru á þessu ári. Notendur í ár eru um 250 þúsund, mikill meirihluti landsmanna. Heilsuveru-vefurinn hefur komið í veg fyrir að símkerfi Heilsugæslunnar færi á hliðina í faraldrinum, segir Auður Harðardóttir verkefniastjóri rafrænna heilsbrigðislausna hjá Landlæknisembættinu. Stafræn heilbrigðisþjónusta sé framtíðin og að aukin þjónusta sé í bígerð í Heilsuveru. Ragnhildur Thorlacius ræðir við Auði Harðardóttur.
Bresku fjárlögin sem voru lögð fram í dag, lofa meiri útgjöldum í opinbera þjónustu sem á að fjármagna með skattahækkunum. Rishi Sunak fjármálaráðherra heldur þó fast í fyrri loforð um að minnka ríkisumsvif og lækka skatta síðar á kjörtímabilinu. En á tímum vaxandi verðbólgu og minni hagvaxtar á næstu árum gæti raunin þó orðið önnur en loforð fjármálaráðherra benda til. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.