Síðdegis var hert á veðurviðvörunum á Suður- og Vesturlandi, þar gilda nú appelsínugular viðvaranir. Spáð er foráttuveðri; suðaustanstormi í nótt og fram undir morgun. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðing.
Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir viðbúið að verkefni sem tengjast veðrinu verði ærin, sér í lagi á suðvesturhorninu og á Snæfellsnesi. Alma Ómarsdóttir talaði við hann.
Delta-afbrigðið herjar enn á börn og getur valdið alvarlegum veikindum, segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og hvetur til bólusetningar. Brynjólfur Þór Guðmundsson sagði frá.
Öllum Tékkum á vinnumarkaði verður gert skylt að láta skima sig fyrir kórónuveirunni tvisvar í viku meðan omíkron-afbrigði veirunnar geisar. Sóttkví og einangrun verður stytt. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Skóflustunga að nýju þrjú hundruð íbúða hverfi á Akureyri var tekin í dag. Þórhallur Jónsson, formaður skipulagsráðs Akureyrar segir alla innviði vera fyrir hendi og þetta hagkvæma lausn. Óðinn Svan Óðinsson talaði við hann.
Listasafn Íslands fékk í dag afhent listaverkasafn hjónanna Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar sem kenndur var við Síld og fisk. Verkin eru um 1.400, Katrín Þorvaldsdóttir segir að foreldrar hennar hafa frá upphafi gert sér grein fyrir að þau væru að safna fyrir íslensku þjóðina. Safnið sé tákn um ástir samlyndra hjóna.
----------
Barnasmitsjúkdómalæknir segir að ef ekkert verði að gert þurfi líklega að leggja tuttugu til þrjátíu börn inn á sjúkrahús næsta hálfa árið.
Þrátt fyrir úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Erlu Bolladóttur í gær er ekki þar með sagt að málið verði tekið fyrir að nýju. Þetta segir lögmaður sem átti sæti í endurupptökunefnd.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir